Skátablaðið Faxi - 01.04.1997, Blaðsíða 4
SKÁTABLAÐIÐ
4
Skátahreyfingin
Sagan af skátahreyfingunni er eins og
ævintýri, bæði löng og heillandi.
Ævintýrið hófst árið 1907 í Englandi.
Maður að nafni Baden-Powell safnaði
saman hóp drengja í fyrstu skátaútileguna
á eynni Brownsea. Baden-Powell skipti
drengjunum í smærri hópa, sem hann
kallaði flokka. Hver flokkur fékk sitt tjald-
búðasvæði og sitt merki. Hverjum flokki
stjórnaði drengur sem var svolítið eldri en
hinir.
Enn í dag, nærri öld síðar, er flokkaker-
fið mikilvægt tæki í skátahreyfingunni.
Nú orðið eru börn næstum alltaf
umkringd fullorðnu fólki. En börn þurfa
líka stundum að vera ein og þurfa að geta
bjargað sér án fullorðinna. Það er ekki
beinlínis auðvelt að fá starfið í skátaflokk
til að ganga. En þau börn, sem hafa fengið
að reyna það, hafa haft af því mikið gagn.
Flokkarnir á Brownsea-eyju fengu mörg
verkefni, og verkefnin þyngdust með
hverjum deginum sem leið. Flest snerust
þau um að geta bjargað sér við frumstæðar
aðstæður.
Flokkarnir skiptust á um næturvaktir og
gistu þá undir tjaldhimni í stað tjalds.
Hver drengur var með föt, teppi,
suðuáhöld og tannstöngla. Maturinn var
eldaður á frumstæðan hátt.
Flokkar Baden-Powells lærðu að glíma
saman við fjöldamörg ögrandi verkefni.
Á Brownsea-eyju kyntu drengirnir oft
varðelda og þar hefur áreiðanlega oft verið
mikið fjör.
Varðeldar voru nýnæmi og í miðjum
hópnum sat Baden-Powell. Hann sagði frá
löngum og ævintýralegum æviferli sínum
þannig að drengirnir göptu.
Baden-Powell, eða B-P eins og hann er
oft nefndur, hafði verið foringi í breska
hernum í mörg ár. Erfið verkefni á ókunn-
um stigum höfðu dregið fram og þroskað
með honum óvenjulega uppfinningasemi
sem byggðist á góðri athyglisgáfu og
hugmyndaflugi.
Skilningarvit hans höfðu þjálfast þegar
hann gekk í Charterhouse-heimavista-
skólann. Uppáhaldsiðja hans var að fylgj-
ast með dýrum og fólki ofan úr tré.
Afríka
Á tímabili í Indlandi var B-P sendur til
Suður-Afríku, til Bechuanalands og
Matabetelands, þar sem hann ferðaðist
m.a. hundruð kílómetra á hestbaki. Hluta
leiðarinnar var hann dulbúinn og þóttist
vera blaðamaður.
Næst þegar B-P kom til Suður-Afríku
var eitt verkefna hans að taka þátt í
umsátri um virki Zulu-höfðingjans Dinu-
Skátafélagið FAXI verður
með kaffisöu í skátaheimilinu
við Faxstíg