Skátablaðið Faxi - 01.04.1997, Qupperneq 5

Skátablaðið Faxi - 01.04.1997, Qupperneq 5
SKÁTABLAÐIÐ 5 zulu. B-P var einn þegar hann komst að virkinu, en liðstyrkur var á leiðinni. Innfæddir urðu hræddir þegar þeir sáu hann. En hræðslan snerist upp í furðu þegar þeir sáu að B-P fór að leika sér við barn sem var að gráta. Árið 1895 var B-P aftur sendur tii Afríku, að þessu sinni til Ashanti ( Ghana ) á vesturströnd Afríku. Þar átti hann að skipuleggja starf hjá stórum hópi innfæd- dra. Þeir áttu að finna hvar Prempeh Ashanti-konungur var niður komin og hvernig væri hægt að komast lil hans. Það reyndist vera 240 km. leið í gegnum ófæran frumskóg. B-P leysti þetta verkefni einnig með uppfinningasemi og seiglu. Vertu viðbúinn Skömmu eftir að B-P kom til Englands í Júní 1899, var hann boðaður til fundar við Wolseley hershöfðingja í her- málaráðuneytinu. Þar átti eftirfarandi sam- tal sér stað: Wolseley: Ég ætla að biðja yður að fara til Suður-Afríku. B-P: Já, herra. Wolseley: Getið þér farið á laugardaginn? B-P: Nei, herra Wolseley: Hvers vegna ekki? B-P: Það fer ekkert skip á laugardaginn, en ég get farið á föstudag. Orðaskiptin eru dæmigerð fyrir B-P, sem leitaðist alltaf við að vera “ viðbúinn” ein- nig hinum ófyrirsjáanlegustu við- fangsefnum. Þessi regla kom síðar fram í drengþjálfuninni. “ Be prepared “ eða “ Vertu viðbúinn “ varð og er enn kjörorð skátahreyfingarinnar. Þegar B-P var í Suður-Afríku varð hann sérstaklega kunnur fyrir störf sín í Mafeking, bæ sem var umsetinn af Búum árið 1900. Þessi litli bær stóðst mjög langt umsátur og var að ekki síst að þakka hugmyndarflugi, áræðni og mann- þekkingu B-P. Hann virkjaði stóran hóp barna og fullorðinna og kenndi þeim að leysa ýmis verk af hendi þar til liðsstyrkur barst. S Omögulegt- Mögulegt Við þessar erfiðu aðstæður áttaði B-P sig á að börn geta lært og gert hina ótrúlegustu hluti, ef þeim er treyst, og það eru gerðar kröfur til þeirra. Þessi reynsla vakti með honum löngun til að reyna eitthvað alveg nýtt þegar hann hætti í hernum fimmtugur að aldri. Heima í Englandi fannst honum allt of mörg börn óvirk og áhugalaus. Hann fór því að þróa uppeldisaðferðir sem byggðust á reynslu hans í Afríku. Á Brownsea-eyju áttaði hann sig á því að börnum þykir mest gaman að glíma sjálf við vandamálin í stað þess að fá löng og leiðinleg fyrirmæli. Að “ læra af því að framkvæma “ varð að reglu sem stóðst próf reynslunnar á fyrstu árum skátastarfsins. Reglunni er nú beitt um allan heim. Þróun skátahreyfingarinnar Orðrómurinn um Brownsea-eyju breid- dist fljótt út um allt England, ekki síst árið 1908 þegar B-P hóf að gefa út nokkur hefti sem voru kölluð “ Scouting for Boys “. Heftin voru full af hagnýtum tilvísunum, spennandi og þroskandi verkefnum og sögum. Heftunum var tekið með hrifningu. Sextíu þúsund drengir í Englandi voru með þegar árið eftir. Efnið í heftunum var síðan gefið út í bók sem var prentuð í stóru upplagi og þýdd á mörg tungumál, m.a. á íslensku undir nafninu Skátahreyfingin. Heftin voru rituð undir áhrifum af veru B-P í Indlandi og Afríku eins og eðlilegt var. Stúlkurnar bætast í hópinn Þó að það hafi ekki verið ætlunin í upphafi fóru stúlkur að birtast í skátabúningi. Agnes systir B-P var beðin um að móta aðferðir og verkefni fyrir stúlkur. Kona B- P Olave St. Clair Soames eða Lady B-P, tók síðan þetta verk að sér Alheimsskátahreyfing Skátastarf breiddist fljótt út til annarra landa. Árið 1920 var fyrsta alheimsskáta- mótið fyrir drengi haldið í London. Árið 1924 var annað alheimsskátamótið haldið í Danmörku. B-P og kona hans, Lady B-P vörðu mörgum næstu árum í að breiða út skáta- hreyfinguna. Þau ferðuðustum allan heim og héldu fyrirlestra og skrifuðu bækur til að kynna skátahugsjónina. Aðdragandi seinni heimstyrjaldarinnar olli því að B-P átti erfitt með að viðhalda trúnni á alheimsbræðralag. Hann hafði lagt sívaxandi áherslu á friðarstarf og hafði því þungar áhyggjur er hann dó árið 1941. Olave Baden-Powell hélt áfram starfinu fyrir skátahreyfinguna af óbugandi krafti allt til dauðadags árið 1977. Þá voru 20 milljónir skáta starfandi í meira en 120 löndum. Alþjóðasamstarfið styrktist aftur eftir síðari heimsstyrjöldina. Sem tákn um þetta bræðralag halda skátar um allan heim hátíðlegan 22. febrúar “ hugleiðs- ludagurinn “, en hann var afmælisdagur beggja hjónanna.

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.