Skátablaðið Faxi - 01.04.1997, Blaðsíða 17
Laugardagurinn 22 febrúar var haldinn
hátíðlegur að skáta sið með því að fara í
friðargöngu inn í Herjólfsdal. Hist var kl.
18.00 við skátaheimilið og þaðan gengið í
blysför inn í dal. Mjög góð mæting var af
skátum auk nokkurra foreldra.
Þegar í Herjólfsdalinn var komið bauð
Páll Zóphóníasson félagsforingi alla
velkomna. Minntist hann þess, að á næsta
ári verður skátafélagið Faxi 60 ára.
Sungnir voru skátasöngvar.
Einn viðamesti punkturinn í þessari ferð
var vígsla skáta og fór þar mest fyrir
vígslu ylfinga. Að þessu sinni vígðust 6
skátar úr skátasveitinni Fífill, 17 ylfingar
úr ylfingasveitinni Smáfólk og 16 ylfingar
úr ylfingasveitinni Dögun.
Að lokinni vígslu tók Páll félagsforingi
aftur til máls og ræddi um mikilvægi
vígslunnar í skátastarfi. Með vígslunni eru
skátar að játa að fara eftir skátalögunum,
sem eru tíu, og skátaheitinu. Einnig eru
ylfingar að lofa að fara eftir ylfingalö-
gunum og ylfingaloforðinu, en ylfingalö-
gin eru aðeins tvö.
1. Ylfingur er hlýðinn/hlýðir gamla
úlfinum(Akelu).
2. Ylfingur gefst ekki upp.
Áður en haldið var til baka voru sungin
nokkur skátalög. Þegar komið var aftur í
skátaheimilið var boðið upp á skátakakó
og meðlæti. Þeir sem höfðu tekið vígslu
fengu afhent vígsluskjöl til staðfestingar á
vígslunni. Þessi friðarganga heppnaðist í
alla staði mjög vel og vorum við alveg ein-
staklega heppin með veður eins og undan-
farin ár.