Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 2

Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 2
SKÁTABLAÐIÐ FAXI Hugleiðingar um skátastarfið - Þátíð, nútíð og framtíð - Núna eru rúmlega 35 ár síðan ég gerðist skáti. Þetta er auðvitað óskap- lega langur tími í augum ungra skáta, þó svo að mér finnist hann ekkert svo lang- ur svona þegar ég lít til baka. En látið ykkur ekki bregða, svona hugsa flestir sem eru aðeins farnir að eldast. Tíminn líður bara svona hratt og þegar menn líta til baka, þá þjappast minningarnar saman, þannig að langur tími virðist eins og maður hafi sett kvikmynd á hraðspólun í myndsbandstækinu. Nú ætla ég að fara í gegnum minningar mínar úr skátastarfinu á hraðspólun. Þátíð Þegar ég hóf starf í Faxa, þá var skáta- heimilið í gömlu fjósi við Fífilgötu. Fjós þetta var bæði gamalt og lítið, en þar sem ég var bæði ungur og lítill, þá fannst mér það bara vera hið flottasta hús. Fljótlega misstum við heimilið, sennilega hefur það verið ónýtt, og fluttum við þá fundina inná heimili flokksforingjanna. Seinna fluttum við inn í minnsta skátaheimili á landinu, en það var pínulítið hús við Barnaskólann. Þetta hús hafði verið notað sem kamrar við skólann, sennilega áður en menn fundu upp „sturta niður” klósettin. Þetta heimili var svo lítið að þar var aðeins pláss fyrir eitt lítið borð og nokkra stóla í kring um það. Mörgum árum seinna flutti svo skátaheimilið á jarðhæð Félagsheimilisins og það var auðvitað eins og að flytja úr koti í höll. Annars var það þannig að það skipti ekki miklu máli hvort við höfðum stórt pláss eða lítið. Skátastarfið sem ég ólst upp f var nefnilega nokkurskonar „nátt- úruskátastarf’. Við héldum auðvitað fundi eins og allir skátaflokkar gera, en Bjarni Sighvatsson ásamt eiginkonunni, Aróru Friðriksdóttur aðal starfið átti sér stað úti undir beru lofti. Það var föst regla hjá okkur , að flesta sunnudaga fór flokkurinn í göngutúra út á Eyju. Þar kveiktum við varðelda, byggðum tuma úr spírum, fórum í „bófahasar”, gengum á fjöll og skoðuðum fjörur. Og svo fórum við grimmt í útilegur. Auðvitað byrjuðum við með 30.kíló á bakinu eins og allir byrjendur, en síðan kom upp mikill metnaður og samkeppni sem gekk út á það að hafa sem minnst drasl í bakpokanum. Undir lok þess tíma sem ég starfaði í skátaflokki þá var bannað að nota tjald, heldur breiddum við plast undir okkur og yfir. Prímus var líka bannvara. Við söfnuðum spreki og spýtum og elduðum við glóðir. Auðvitað fómm við á fjölda skátamóta og kepptum við alla íslenska skáta. Við vorum alltaf með hæstu flaggstöngina og stundum nokkuð óþægir við vildum að allir vissu að við værum skátar úr Eyjum. Og að þeir gætu allt. Við höfðum náð því takmarki sem við höfðum stefnt að í mörg ár, við vorum orðnir „náttúmskátar” Nútíð Eftir að flokkastarfinu lauk, tók björg- unarsveitarstarfið við, og þar er ég enn. Eg hefi fylgst með skátastarfi úr fjar- lægð síðan og er ekki vel dómbær hvað skátar gera í dag. Þó virðist mér að mun stærri hluti starfsins gerist innanhúss. Það finnst mér ekki góð þróun ,ef mat mitt er rétt. Þegar ég var ungur skáti sögðu gamlir skátar að við væmm að gera allt annað en þeir höfðu gert. Það þótti okkur skrýtið, því við vorum akkúrat að gera hið „rétta” í okkar starfi. Þetta var hið fræga kynslóðabil og auðvitað er það ennþá í fullu gildi. Framtíð Ég veit auðvitað ekkert um það hvemig skátastarf verður í framtíðinni. En ég á gamla formúlu sem ég held sé jafngóð og hún var í „gamla daga”. Hún er svona: Útilíf, göngur, varðeldar, úti- legur, basl í vondu veðri, dásamlegur tími í vorblíðunni, minni innivera. Eyjaskátar, ég skal lofa ykkur því að sé þessi formúla notuð í hæfilegum skömmtunr verðið þið ekki bara skátar, heldur verðið þið náttúruskátar. Og það er toppurinn. Skátakveðja, Bjarni Sighvatsson 369.405 Ská 1998 16(1) Átthagi Skátablaðið Faxi. Átthagadeild 14205131 Bókasafn Vestmannaeyja Jtgefið ÍAPRÍL 1998 Jtgefandi: Skátafélagið Faxi Lbyrgðarmaður: Marinó Sigursteinsson litstjóri: Einar Örn Arnarsson Vuglýsingar: Sigríður Guðmundsdóttir ’rófarkalestur: Halla Andersen 3rentvinna: Prentsm. Eyrún hf. Ritnefnd: Einar Örn Arnarsson Freydís Vigfúsdóttir Júlía Ólafsdóttir Páll Zóphóníasson Rósa Sigurjónsdóttir D.S. Vestmenn: Inkar og Fálkar

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.