Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 3

Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 3
SKÁTABLAÐIÐ FAXI o Náttúran og umhverfið Afmælismót Faxa 8.-12. júlí Ma rkmiö tí Markmiðið með mótinu er að minnast 60 ára afmælis skátastarfs í Eyjum, og um leið að gefa skátum þar tækifæri til að sækja mót á sinni heimaslóð, þar sem þeir geta kynnst náttúru Eyjanna á óvenjulegan hátt. Þá er markmiðið einnig að bjóða skátum frá öðrum byggðarlögum, þeim kynnt náttúran og unthverfið sem er þema mótsins. Tjaldbúðir mótsins verða í Skátastykkinu en það er fjögurra hekt- ara svæði sem skátafélagið Faxi hefur til umráða á suðurhluta Heimaeyjar. Þar stendur nýr 100 ferm. skátaskáli sem verður miðstöð mótsins. Dagskráin byggir á flokkum, kjama skátastarfsins. Tjaldbúðarstörf verða þungamiðja dagskrárinnar sem hefst með því að koma sér fyrir og gera tjald- búðina vistlega og skemmtilega og hin hefðbundnu störf munu verða í föstum skorðum. Til þess að undirstrika þema mótsins munu ferðir um Eyjuna og umhverfís hana verða aðaldagskrárliðir mótsins þar sem lausn verkefna verða í bland. Mótið verður sett miðvikudaginn 8. júlí kl. 21.00 og því verður slitið sunnu- daginn 12. júlíkl. 12.00. Airiur Allir skátar sem náð hafa 11 ára aldri geta sótt mótið SKÁTAFÉLAGIÐ FAXI Skátastykkið séð með augum listamnnsins Jóa Listó númer otsmerkiö Mótsmerkið, sem er hér að ofan, er sett saman úr táknum og litum sem eru einkennandi fyrir sögu, umhverfí og náttúru Vestmannaeyja. Himininn er að sjálfsögðu blár og sömuleiðis hafíð. Borðinn með nafni mótsins er rauður og táknar eldvirkni við og undir eyjunum. Fjöllin tvö eru Helgafell (græna) og Eldfell (svarta) sem varð til í gosinu 1973. Þau tákna líka eyjarnar í kring. Litirnir, sá svarti og græni eiga líka að sýna andstæðurnar í náttúrunni. Síðan eru skuggar af físki og fuglum sem eru einkennandi fyrir náttúru og umhverfi Eyjanna. Ef það vantar meiri upplýsingar þá er hægt að hafa samband við eftirtalda aðila:: Páll Zóphóníasson, félagsforingi: Hs. 481-1201 - Vs. 481-2711 Einar Örn Arnarsson: Hs. 481-1410 - GSM 895-8372 Freydís Vigfúsdóttir: Hs. 481-2075 Rósa Sigurjónsdóttir: Hs. 481-2075

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.