Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 14

Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 14
SKÁTABLAÐIÐ FAXI Sveitaforingjanámskeið 2 Lagt var af stað frá Skátahúsinu um átta leytið og voru þar miklir endur- fundir því ég hitti þar marga af vinum mínum sem voru með mér á Alheimsmótinu '95. Ekki var mikil stemmning hjá fólkinu sem býr á eyj- unni fyrir norðan Vestmannaeyjar svo við Eyjakrakkarnir byrjuðum að syngja fullum rómi öll þau lög sem við kun- num, stanslaust alla leiðina (lklst) við mikinn “fögnuð” hlustenda. í rútunni var okkur á sveitaforingjanámskeiðinu skipt í ílokka sem báru heiti úr gömlu norrænu goðafræðinni. Minn flokkur hét Freyr og fengum við verndarhlut sem táknar frjósemi þ.e. blórn. Er við komum upp í skála fórum við í nokkra kynningarleiki og bjuggum svo til vin- nubækur námskeiðsins. Eftir góðan nætursvefn hófst viðamikill og lær- dómsríkur dagur; leikir, fyrirlestrar og verkefni fylltu dagskrá dagsins en eins Krakkarnir á sveitarforingjanámskeiðinu í hrúgu-myndatöku. Freydís er þarna í miðri hrúgunni. Flokkurinn Freyr á sveitarforingjanámskeiði 2 með verndargripinn sinn, blómið sem Freydís heldur á. og venja er, var byrjað á skálaskoðun klukkan 8:00. Eftir hádegið var póstaleikur sem fól í sér m.a. bogfimi, súrringar og íkveikjur. Að því loknu fórum við út að renna. Um kvöldið var hörkuspennandi næturleikur (ratleikur í náttmyrkrinu) sem bæði námskeiðin tóku þátt í og auðvitað vann flokkurinn minn. Eftir kakó röltum við upp í skálann þar sem við gistum en nenntum ómögulega að fara að sofa og tróðumst því öll inn í eitt herbergið og sungum við gítarspil langt fram á nótt. Það var erfitt að vakna eftir lítinn svefn á sun- nudagsmorgninum en skálaskoðun var samt á slaginu 8:00. Kennslan hélt áfram meðan sólin sleikti útitekin andlit okkar. Eftir frábæra helgi í góðum vinahóp var komið að kveðjustund og var heimferðin frekar þreytuleg eftir þessa viðburðarríku samveru. Freydís skemmtun ÞROSKAHJÁLPAR í íþróttahúsinu

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.