Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 13

Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Blaðsíða 13
SKÁTABLAÐIÐ FAXI Menningarreisa nokkurra Eyjaskáta Þann 6. nóvember fóru nokkrir vaskir foringjar á foringjanámskeið á Ulfljóts- vatni. Við fórum með Herjólfi um morguninn og sökum þess að rútan á námskeiðið fór ekki fyrr en kl. 20, áttum við nægan frítíma í Reykjavíkinni. Sumir heimsóttu ættingja en við hin gerðum okkur glaðan og menningar- legan dag. Frá Skátahúsinu, þar sem við geymdum farangurinn okkar, var förinni heitið til Reykjavíkurtjarnar þar sem við gáfum frekum en gæfum öndunum brauð. Þaðan gengum við í gegnum Ráðhúsið sem okkur fannst ekki mikið til koma sökum þess hversu tómt það var. Við, sem söngelskir skátar, ákváðum að heilsa upp á Arna Johnsen vin okkar og skelltum okkur á Alþingi. Því miður var Arni ekki við en vel var tekið á móti okkur og fengum við leiðsögn um hið glæsilega hús, því ekkert þing var þenn- an dag. Flestir tóku andköf er gengið var um tignarlega salina og setustofurnar. Það sem vakti þó mesta athygli okkar, var hversu svakalega lítill hinn eiginlegi þingsalur er. Maður sagði bara “VA!!!” og hugsaði svo til þess er salurinn er þéttsetinn !!! Ráðherrarnir þurfa svo sannarlega að sitja þröngt (sem er mör- gum ábyggilega afar erfitt) en þeim er bætt það upp með leðurklæddum hægin- dastólum. Einnig vöktu baðherbergin mikla lukku en þó skelk því allan tímann var maður dauðhræddur um að brjóta eitthvað. Það gekk sem betur fer allt slysalaust, fyrir utan að okkur tókst að spora út gólfteppin með forugum Freydís skoðuð eftir stökkið. gönguskónum. Þessi viðdvöl mun seint gleymast en förinni var haldið áfram. Stefnan var tekin á Þjóðarbókhlöð- una. Þrátt fyrir að hafa tilkynnt komu okkar á undan, var okkur meinaður aðgangur vegna aldurs. Þetta olli að sjálfsögðu miklum vonbrigðum. Alla þessa vegalengd gengum við ekki til einskins því komið var við í bakaríi. Eins og ekta túristar spókuðum við okkur í sólskininu á gangstéttinni þar fyrir framan og átum sætabrauð. Vel mettar héldum við áleiðis að tjörninni aftur og þaðan rakleitt upp Laugarveginn og svo í áttina að Hallgrímskirkjuturni. A leiðinni komum við við á myndlistarsýningu sem var svo innantóm og furðuleg að við hröðuðum okkur áfram upp í kirkju. Spenningurinn var mikill er stigið var í lyftuna því svo og svo margar kvik- myndir og lyftuslys voru rifjuð upp og ollu nokkurri skelfingu en í turninn komumst við samt. Bergmálið var svo mikið að öll samtöl áttu sér stað í lágum röddum þó að ónefnd manneskja hafi rofið kirkjulegu þögnina með ískurháu hræðsluöskri, er hún sá hversu hátt uppi við vorum. Það var stórfengleg sjón að skoða hinar fornu og margrómuðu kirkjuklukkur. Einhverjum datt í hug að þær gætu byrjað að hringja er við stæðum undir þeim en “bráðgreindur “ foringi nokkur sagði að þær hringdu bara á 30 mínútna fresti og þær hringdu síðast fyrir 10 mínútum. Þegar þessu orði var sleppt, lá við að hljóðhimnur okkar spryngju vegna þeirra ægiháu hljóða úr klukkunni sem dundu í góðan tíma yfir okkur. Hálf heyrnarlausar sigum við niður með lyftunni og ákváðum að athuga hvort Drakúla greifi sæti við hið rosalega og jafnamt það stærsta pípuorgel sem fyrir augum okkar hefur borið. Drakúla var reyndar ekki þarna en Reykjarvíkurlaug var á sínum stað og þar var gott að hvíla þreytta fæturna eftir viðburðaríkan og ofur- menningarlegan dag. Foringjar á farandfæti Slappað af á Alþingi

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.