Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Page 8

Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Page 8
SKÁTABLAÐIÐ FAXI 0 Dagur hjá D.S. Vestmönnum D.S. Vestmenn ásamt sveitarforingja sínum Eftir að hópurinn mætti niður í Skátaheimili lagði hann af stað. Fyrst var farið í bátsferð á Þór sem er björg- unarskip Björgunarfélags Vestmanna- eyja. Skipstjórinn á Þór var Tobbi. Sigldum við í kringum Heimaey. Þegar bátsferðinni lauk var gengið af stað. Ferðinni var heitið á Heimaklett sem er hæsta fjallið á Heimaey. Gangan upp á fjallið gekk vel. Vorum við svo heppin að pabbi hans Palla, Rabbi Páls, gaf okkur kók og sprite til að drekka þegar við kæmum upp. Var það vel þegið. Uppi á toppnum voru ýmis mál rædd og reyndi Einar Örn að fræða okkur um nöfnin á eyjunum í kringum Heimaey. Síðan barst það í tal hjá okkur strákunum að fara einhverntíma í úti- legu uppá Heimaklett. Ekki varð af því en helgina á eftir fórum við upp á Klif í tjaldútilegu. Eftir að hafa notið veðurblíðunnar, var aftur haldið niður. Niðri í réttinni ofan við stigann stillti Palli öllum upp í myndatöku. Þegar niður var komið fóru stelpurnar strax heim til sín. Við strákarnir vorum eitthvað að slæpast og græddum heldur betur á því. Einar sá að Þór var að fara að sigla og hringdi í hann þar sem hann var að fara frá bryggju. Kom í ljós að það var verið að fara í smá æfingarferð og fengum við að fljóta með. Eftir ánægjulega ferð komum við að landi og héldum heim á leið með bros á vör. D.S. vestmenn Óskum öllum bœjarbúum gleðilegs sumars Góð verslun í alfaraleið Fálki á flugi SKÁTAFÉLAGIÐ FAXI 1938 - 60 ára - 1998

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.