Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Side 9
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
Radíósk
Við vorum í útilegu þegar Einar Örn
kom til okkar og bað okkur að skrifa
grein um Radió þ.e.a.s. Radíóskáta og
radíóamatöra (radíó áhugmenn/ noten-
dur).
Það sem radíóskátar gera er t.d. að
fara á refaveiðar. Þeir fela lítið senditæ-
ki (oftast snjóflóðaýli) einhversstaar.
Leikmenn eru með móttökutæki og eiga
að finna “refinn” (sendinn) með því að
miða hann út með kortum og mót-
tökutækinu.
Radíóskátar eru einnig með vinnu-
kvöld (félagið í Reykjavík) þar sem þeir
smíða sér loftnet og annað í þeim dúr.
Loftnet geta verið mjög einföld svo að
jafnvel krakkar geta smíðað þau. Þess
má nú geta að við vorum með eitt
heimasmíðað loftnet, svo kallað dípól í
útilegunni sem minnst var á hér á undan.
Jæja, á maður þá að fara út í tæknilega
lýsingu á talstöðvum? Nei, við nennum
því ekki núna, en við skulum gera það ef
við fáum MJÖG margar áskoranir, og
MJÖG mörg ár til þess að vinna það.
Ættum við að segja frá radíóa-
matörunum (umræður fóru fram meðan
þetta var unnið)? Ok, jájá. Islenskir
radíóamatörar eru í samtökum sem heita
IRA (ekki írski Lýðveldisherinn) en það
merkir íslenskir Radíó Amatörar. Þeir
eru með fundi einu sinni í viku (bara í
Reykjavík, sniff sniff) og eru með aðal-
fundi einu sinni á ári þar sem stjóm er
Greinarhöfundar
kosin og ýmislegt fleira.
Okkur langaði að minnast á það að
það koma sennilega radíó amatörar frá
Reykjavík hingað í sumar að heilsa uppá
okkur félagana héma á skerinu.
Er þetta ekki orðið gott núna? Jújú,
Bless bless.
Þór og Jóhann Friðrikssynir,
hvorki bræður né tvíburar
Prentsmiðjan
Eyrún efif.
A'O/Op HOPP HopP HOPP HOPP
HOPP v\OpP HOPP HOpp HOPP
Það kostar aðeins fer. 2.165,- að hoppa með obbur
HOPP
HOPP
WOfp
ttOþp
HOPP
3(0 <£><£>
ISLANDSFLUG
GERIR FLEIRUM FÆRT AÐ FLIÚGA