Skátablaðið Faxi - 01.04.1998, Síða 15
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
Ylfingasveitin Dögun
I haust tók til starfa ylfingasveitin
Dögun en hún var samansett úr tveimur
ylfingasveitum frá fyrra ári, þ.e. Dögun
og Smáfólki. Sveitarforingjar voru
tveir, Júlía og Sif og voru í sveitinni
fimm stelpurflokkar og tveir
strákaflokkar.
Fundir hafa verið haldnir á fimmtu-
dögum kl. 17.00. Margt spennandi var
unnið fram að áramótum og stendur þar
hæst nótt í skátaheimilinu sem var um
mánaðamótin nóv. - des.
Um áramót uðru svolitlar breytingar á
sveitinni. Sif fluttist til Danmerkur,
einn flokkur færðist upp í skátasveitina
Fífil auk þess sem einn flokkur hætti og
fluttust meðlimir þeirra í aðra flokka.
Mikið hefur verið gert eftir áramót s.s.
farið í sund og á náttúrugripasafnið,
farið í göngu o.fl. Einnig eigum við
eftir að undirbúa okkur fyrir afmælis-
mótið í sumar.
Við í sveitinni Fífli höfum gert okkur
margt til skemmtunar í vetur.
Flokkarnir hafa verið að vinna að vörðu-
verkefnunum sínum og farið í útilegur í
Gamla golfskálann og sumir í tjaldúti-
legur núna um daginn í páskafrísblíðun-
ni. I janúar fórum við öll í heimsókn á
Búhamar og höfðum gaman af. Þar
kynntumst við ýmsu sem tengist fötlun
og hvað börnin aðhafast þar á daginn.
Að lokum sungum við fyrir þau nokkur
vel valin skátalög og þau gáfu okkur
svala og súkkulaði. Við hyggjum á fleiri
vettvangsferðir á næstunni til dæmis á
Slökkvistöðina og til Björgunar-
félagsins. Sumarið er framundan ásamt
mörgum útilegustundum og skemmti-
legri útiveru, þar á meðal skátamótið hér
í sumar.