Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Qupperneq 4
/
Utilega með strákum frá Garðabæ
Útilegan byrjaði kl. 5 föstudaginnl4.
nóvember. Við stelpurnar áttum að
skreyta salinn í skátastykkinu. Kl. hálf
10 áttum við að fara niður á bryggju og
sækja strákana. Strákarnir eða Jón Ingi
kallaði á okkur og spurði: Eru þið
stelpur? Við sögðum: Já! Og Jón Ingi
sagði: Eru þið að bíða eftir skátum! Við
sögðum: Já! Þá sagði Jón Ingi: Hér erum
við!! Síðan fórum við að hjálpa
foringjunum. Við stelpurnar og
strákarnir, Hörður, Jón Ingi og Bjarki
áttum að labba upp í skátastykki. Þannig
að við fórum til Þóru Bjarkar og hún
spurði hvort við mættum fá far en þegar
pabbi hennar kom í hurðina hlupu
strákarnir í burtu en við fundum þá.
Þegar við komum upp í stykki voru
foringjarnir ekki komnir en það var bara
betra svo við fórum með farangurinn
upp á loftið sem við sváfum á. Jón Ingi
og Bjarki dönsuðu dans sem þeir sömdu
og var dálítið fyndin. Síðan daginn eftir
fórum við í morgunleikfimi sem Bjarki
stjórnaði. Svo fórum við inn og fengum
okkur morgunmat. Síðan fórum við
aftur út í keppni um hvor flokkurinn
yrði fljótari að brenna band sem við
stelpurnar unnum. Það er þannig leikur
að það er band sem er svolítið hátt uppi
og við áttum að kveikja eld undir. Eftir
það fórum við í popp keppni og það var
þannig keppni um hvor flokkurinn
brenndi poppið minnst og þeir unnu sem
var svindl. Því að þetta var í fyrsta skipt-
ið okkar að poppa yfir opnum eldi. Eftir
þetta fórum við inn í hádegismat. Og
Græjur til að poppa á opnum eldi!
flii
Hér má sjá keppnisandann í að poppa.
fórum svo að síga, sumir fóru að síga
hærra en aðrir fóru lægra. Síðan fórum
við niður í skátaheimili í kókosbollu-
keppni sem Ingunn vann og Bjarki var í
öðru sæti). A meðan voru foringjarnir
að baka skúffuköku. Svo áttum við að
labba upp í skátastykki aftur. Strákarnir
húkkuðu far hjá einhverjum gellum, en
við stelpurnar löbbuðum því við erum
svo hraustar. Svo fengum við okkur
kvöldmat og fóru foringjamir að
undirbúa skáta Idol. Forkeppnin var
alveg æsispenandi, Simmi og Jói voru á
staðnum(Hörður og Bjarki) og þeir
mundu aldrei hvor var hvað og það var
fyndið. Jón Ingi vann keppnina. Eftir
keppnina var haldið Idol ball með tónlist
og dansi. Eftir það fengum við okkur
köku og heyrðum draugasögu og í miðri
sögu var gerður draugagangur. Attum
við að fara að sofa, en strákamir voru að
syngja. Kl. 12 kom mamma Jakobínu og
vakti alla, fór hún heim. Svo fórum við
að tala saman og spila, og þrífa skálann.
Jakobína kom aftur og hjálpaði okkur að
taka til. Flokkakeppnin var jöfn og því
var farið í pakk til að fá loka útkomu.
Strákarnir unnu. Svo kl. 15 lögðu
strákamir af stað niður í Herjólf og
Bjarki knúsaði alla bæ.
Jólakveðja
Tröllabambar
4
SKÁTABLAÐIÐ FAXI