Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Page 11

Skátablaðið Faxi - 01.12.2003, Page 11
Flokk Flokkamót Faxa var haldið helgina 10-13 júlí upp í Skátastykki. Á mótið komu um 40 danskir skátar sem settu mikinn svip á mótið. Það komu líka flokkar frá Isafirði, Borganesi, Selfossi, Svönum og Keflavík, einnig fengum við gamla skáta sem eru búsettir á fasta- landinu til að hjálpa okkur. Við vorum mjög heppin með veður sem gerði nátt- úrulega allt miklu skemmtilegra (Það var fullt af skemmtilegum dagskráliðum í boði og má þá helst nefna þrautabraut sem var niðrí klauf, sig, sprang, göngur upp á fjöllin og svo var skemmtilegur leikur á byggðarsafninu. Kíkt var í sund og svo fóru þeir sem vildu fara í bátsferð á sunnudeginum áður en þau fóru í Herjólf. Þetta mót heppnaðist vel og fóru allir kátir og þreyttir heim eftir skemmtilegt mót. Jólakveðja, Leifa Hérna er verið að súrra saman eitthvað flott. Hér er verið að baka brauð yfír opnum eldi. Sólveig að sýna listir sínar í þrautalandi. Hér má sjá flokk úr Eyjum fá sér vænan morgunmat. Jóti/Jóta 17.-19. október (Alþjóðleg samskipta helgi skáta) Smiðjudagar eða Jóti / Jóta er alþjóðasamskipta helgi skáta um allan heim. En þessi helgi átti að vera haldin hér í Eyjum en vegna óviðráðanlegra ástæðna var það ekki hægt. En við létum það ekki á okkur fá heldur komum við með tölvur að heiman niður í skátaheimili, en komum þeim ekki á netið fyrr en seint um kvöldið og ákváðum því að fara þá heim og sofa. Hitumst um hádegi aftur og þá var netið aftur hrunið, en komum okkur aftur inn. Við héldumst á spjallsíðunni allan tíman eftir það. Var það mjög gaman, því við vorum að spjalla við skáta frá Islandi, sem voru saman komin í nýju skátamiðstöðinni okkar við Hraunbæ 123 í Reykjavík. Vorum við vakandi fram á rauða nótt, ef við megum kalla það nótt (held reyndar að það hafi verið komin morgun) Á sunnu- deginum vorum við að koma aftur um fjögur og vorum í tölvunum fram að miðnætti. En þessi helgi minnti helst á að tölvunördar leynast á mörgum stöðum. Dróttskátar takk fyrir æðislega helgi, veit að þær verða fleiri... Jólakveðja Rósa SKÁTABLAÐIÐ FAXI Heimsókn Felix Við í skátafélaginu fengum óvæntan gest nú í sumar því það var hann Felix sem er blettatígur. En hann kom hingað því allir blettatígrar eru í útrýmingarhættu, og var þetta eitthvað átak hjá skátum í Namibíu. En Felix hafði farið í heimsókn á marga staði þ.e.a.s. Danmörku, Noregs, Færeyja og svo hingað til Vestmannaeyja. Það fylgdi honum mikið af teikningum og bréfum sem við lásum yfir. Ylfingarnir í Dögun fengu að kynnast þessu frábæra dýri, með því að teikna mynd af því og fræðast um blettatígra. Felix var svo sendur til Namibíu aftur, með öllu dótinu sínu, en hann vann til mikillar luku í norðurlöndunum þar sem hann komst í fjölmiðla. Þannig má nú segja að hann Felix sé frægur bangsi. Við í skátafélaginu munum sakna hans mjög mikið. Rósa 11

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.