Skátablaðið Faxi - 01.12.2013, Síða 14
Gilwell-leiðtogaþjálfun fyrir alla
fullorðna sem vilja taka þátt í
skátastarfi.
Við þurfum alltaf að setja
okkur markmið í lífinu, vinnu og
tómstundum. Margir velta því fyrir sér
hvernig sé hægt að setja sér markmið í
skátunum, er það ekki bara að vera skáti
eða súper skáti, jú og fara kannski á
einhver skátamót?
Markmiðið sem ég setti mér þegar ég
var barn í skátastarfinu var að klára
forsetamerkið. Það markmið náðist
þegar ég var 16 ára en þá höfðum við
vinirnir unnið að því í 2 ár með
tilheyrandi verkefnum og áskorunum
sem þurfti að leysa til að fá merkið.
Sú vinna var alveg svakalega
skemmtileg og ævintýraleg og svo
sannarlega þess virði.
Þegar þessu markmiði var náð var
næsta markmið orðið ljóst og það var
að taka Gilwell, en eins og hjá mörgum
gerðist það að tíminn fyrir skátastarfið
fór að minnka og að lokum flutti ég upp
á land og datt alveg úr starfi. „Eitt sinn
skáti, ávallt skáti" hefur samt alltaf haft
mikla merkingu í mínu hjarta og hef ég
alltaf fylgst vel með hvað er að gerast í
Faxa og verið boðin og búin að aðstoða
skátastarfið eftir því sem ég best get.
í fyrra þá 17 árum eftir að markmiðið
var sett hringdi Alma vinkona í mig og
sagðist ætla að skella sér á Gilwell, litla
skátahjartað mitt tók nokkra kippi og
eftir mjög stutta umhugsun stóð ekki á
svari mínu „ég kem með".
Við byrjuðum á að fara á
kynningafund í skátamiðstöðinni í
Árbænum sem var jafnframt fyrsta
skrefið í Gilwell þjálfuninni, eftir það var
ekki aftur snúið og við gerðum okkur
grein fyrir því að framundan væru nýjar
áskoranir og mörg ævintýri.
Skrefin í Gilwell þjálfuninni voru 7 þar
af voru 2 helgar á Úlfljótsvatni, þær
helgar voru tveggja daga ævintýri þar
sem við fórum aðeins út fyrir
þægindarammann og leystum
skemmtileg viðfangsefni og þrautir.
Aðra helgina fengum við að kynnast
útieldun í grenjandi rigningu allan
tímann en stemmningin var svo
skemmtileg að við munum varla eftir
rigningunni. í þjálfuninni kynntumst við
mikið af frábæru fólki, góð tengsl
mynduðust og eru margir í góðu
sambandi í dag.
Fólkið hafði mismundandi bakgrunn í
skátastarfi, sumir höfðu verið skátar allt
frá því þeir muna eftir sér, aðrir voru að
koma aftur inn eftir smá hlé í skátastarfi
og enn aðrir voru að stíga sín fyrstu
skref sem skátar, það er nefnilega aldrei
of seint að gerast skáti. Við höfðum líka
öll mismundandi hlutverkí
skátastarfinu, einhverjir voru foringjar,
aðrir voru í stjórn eða störfuðu á
skrifstofu BÍS og enn aðrir voru í
baklandi skátastarfs.
Eins og sjá má þarf fólk ekki að hafa
einhvern ákveðinn bakgrunn eða sinna
ákveðnu hlutverki innan skátastarfsins
til þess að skella sér á Gilwell.
Ef þú ert fullorðin og hefur áhuga á
skátastarfi þá hvet ég þig til að skella
þér á Gilwell og upplifa ný ævintýri.
Ávallt viðbúin,
Björk Spæta
Gilwell-leiðtogaþjálfun er æðsta leið-
togaþjálfun Skátanna. Henni er ætlað að
gera þátttakendum kleift að marka sér
stefnu og setja sér markmið til þroska,
átaka og sigra í skátastarfi og í lífinu
almennt.
Gilwell-leiðtogaþjálfun veitir innsýn í
hlutverk fullorðinna í skátastarfi, sem
öðlast þekkingu og færni til að leiða
starfið og þar með leggja sitt af mörkum
til betra samfélags.
Gilwell-námskeiðin eru fimm samtals.
Auk Gilwell-náskeiðanna þurfa þátttak-
endur að taka
námskeið í skyndihjálp og um réttindi
barna til að fá Gilwell-einkennin og
útskrifast sem Gilwell-skáti.
Markmiðið er að bjóða leiðtogaþjálfun
sem stenst kröfur samtímans um stjórn-
unarnám sem nýtist þátttakendum bæði
í skátastarfi og í lífinu yfirleitt.
Stefnt er að því að nánast allir fullorðnir
skátaforingjar og aðrir leiðtogar innan
skátahreyfingarinar hafi lokið
Gilwell-leiðtogaþjálfun innan fimm ára.
Kynntu þér Gilwell-leiðtogaþjálfun inná
www.skatar.is
einnig getur þú haft samband við
Björk Guðnadóttur eða
Ölmu Eðvaldsdóttur ef þú vilt fá frekari
upplýsingar.
Landsmót skáta 2014
Verður haldið að þessu sinni á
Akureyri
dagana 20. júlí til 27. júlí.
Þema mótsins verður "í takt við
tímann" og verður boðið uppá
þrjú dagskrárþorp á mótinu með
fjölbreyttri afþreyingu en þorpin
munu bera nöfnin Fortíð, Nútíð og
Framtíð.
Almenn dagskrá er fyrir skáta á
aldrinum 10 til 22 ára.
Staðurinn sem mótið er lialdið á
heitir Hamrar, útilífs- og
umhverfismiðstöð skáta og er
fjölbreytt útivistar- og athafnasvæði.
Svæðið er staðsett í útjaðri
Akureyrar.
Meiri upplýsingar um mótið er hægt
að nálgast á síðu mótsins
www.skatamot.is
14