Fréttablaðið - 02.01.2018, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 2 . J a n ú a r 2 0 1 8
FrÍtt
Ú T S A L A
OPIÐ TIL 21 Í KVÖLD
Fréttablaðið í dag
skoðun Svandís Svavarsdóttir
skrifar um geðheilbrigðisþjón-
ustu. 10
sport Liverpool gekk vel í jóla-
törninni í enska boltanum. 12
lÍFið Bestu tónlistarmyndbönd
ársins og dívudansnámskeið
fyrir konur á öllum aldri . 20
plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Halldór
Þykkur reykjarmökkur lá yfir höfuðborginni á nýársnótt. Svifryk mældist meira á höfuðborgarsvæðinu en þegar gaus í Eyjafjallajökli árið 2010. Fréttablaðið/Egill
bJörgun Björgunarsveitir í Árnes-
sýslu fengu útkall á sjöunda tím-
anum á gamlársdag vegna fjögurra
kvenna sem komust ekki niður af
Ármannsfelli. „Það voru nokkrir
sem fóru í þetta útkall sem voru
varla sestir við matarborðið eða
voru að elda og þeir þurftu bara
að biðjast afsökunar og hlaupa út,“
segir Ármann Ingi Sigurðsson, for-
maður Björgunarfélags Árborgar.
Formaðurinn segir að þegar lög-
reglan hafi hringt hafi hann spurt
hvort hún væri ekki að grínast. Svo
var ekki og hentust 20 björgunar-
sveitamenn frá eldamennskunni
og undirbúningi áramótanna til að
halda á fellið.
Konurnar komust heilu og
höldnu niður fjallið og beið ilmandi
áramótasteikin eftir flestum, köld
en bragðgóð. – bb / sjá síðu 2
Kallaðir út á
matmálstíma
HeilbrigðisMál Svifryk á höfuð-
borgarsvæðinu fór mest upp í 4.500
míkrógrömm á rúmmetra (µg/m3)
skömmu eftir miðnætti á nýárs-
dag. Yfirlæknir í bráðalækningum
á Landspítala segir fleiri hafa leitað
sér aðstoðar vegna andþyngsla í gær
en þegar gaus í Eyjafjallajökli árið
2010. Svifryksmagn var þá í kringum
2.000 µg/m3 í Reykjavík. Þá sýndu
mælingar 2.500 µg/m3 á Grensásvegi
á nýársdag.
Samkvæmt tölum bráðamóttöku
Landspítala leituðu allt að fimm-
tán manns sér aðstoðar vegna and-
þyngsla á nýársdag en um er að
ræða töluverða fjölgun á milli ára.
Tilfellin eru mismunandi en sumir
þurftu að leggjast inn vegna veru-
legra öndunar erfiðleika.
Ragnhildur Finnbjörnsdóttir, dokt-
or í lýðheilsuvísindum, segir svifryk-
sagnirnar í flugeldum smærri og fínni
en í eldgosinu. Þær nái dýpra niður í
lungun og síist ekki úr í nefinu og
nefkokinu. Einnig sé hætta á að þær
berist inn í blóðrásina og jafnvel líf-
færin. Hún segir erlendar rannsóknir
sýna fram á samband aukinna hjart-
sláttartruflana, heilablóðfalla, hærri
blóðþrýstings og kransæðastífla við
hækkandi svifryksgildi. Þeir sem eru
hvað berskjaldaðastir fyrir svifryki
séu börn, aldraðir og fólk með önd-
unarfærasjúkdóma.
Hún segir notkun þungmálma var-
hugaverða í flugeldum, en þeir eru
notaðir til að kalla fram liti þegar þeir
springa. Þungmálmar eru þrávirk efni
sem safnast upp og eru krabbameins-
valdandi. – dfb / sjá síðu 4
Veiktust í reykjarmekki
Á annan tug manns leituðu á bráðamóttöku eftir að flugeldagleðin náði há-
punkti. Há svifryksgildi sögð tengjast hjartsláttartruflunum og heilablóðföllum.
Við erum að sjá tölu-
vert af fólki koma
inn með versnun á lungna-
sjúkdómum.
Jón Magnús Krist-
jánsson, yfirlæknir
bráðalækninga á
Landspítala
0
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
0
-0
4
6
0
1
E
A
0
-0
3
2
4
1
E
A
0
-0
1
E
8
1
E
A
0
-0
0
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K