Fréttablaðið - 02.01.2018, Síða 4
Útsalan
er hafin
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
m
yn
da
br
en
gl
o
g/
eð
a
pr
en
tv
ill
ur
.
SIEMENS
VEGGOFN PYROLYTIC 57L
HB74AR555S
CLATRONIC
HEILSUGRILL 2000W
KG3487
JVC
HLJÓÐSTÖNG
THD337H
SONY
49” SNJALLSJÓNVARP
KD49XE7096BAE64.995
verð áður: 79.995
4.295
verð áður: 6.995
11.995
verð áður: 19.995
39% afsláttur
19% afsláttur
40% afsláttur
84.995
verð áður:109.995
23% afsláttur
Samfélag „Við finnum áþreifanlega
fyrir því að aðrir hafa sett púður í
flugeldasölu,“ segir Smári Sigurðs-
son, formaður Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, um samkeppnisaðila
í flugeldasölu.
Hann segir endanlegar sölutölur
ekki hafa komið fram en ljóst sé að
salan hafi dregist saman hjá ein-
hverjum björgunarsveitum. Sam-
keppnin hafi þó nánast alla tíð verið
til staðar og sé því ekkert nýtt. Þrátt
fyrir það hafi þeim fjölgað sem flytja
inn og selja flugelda og segir Smári
að björgunarsveitirnar hafi fundið
fyrir því. Hann segir að ekki þýði
að tuða yfir samkeppninni og vill
hann fyrst og fremst koma á fram-
færi þökkum björgunarsveitanna til
styrktaraðila sinna.
Björgunarsveitirnar reiða sig að
stórum hluta á tekjur í gegnum
flugeldasölu en Smári segir þó að
undanfarin ár hafi borið á því að
fólk mæti á flugeldamarkaði og veiti
framlög án þess að hafa þaðan með
sér flugelda. Hann segir fólk líta á
flugeldakaupin sem stuðning við
starf björgunarsveitanna frekar en
kaup á einhverri neysluvöru. Lands-
björg leitar nú fleiri leiða til að afla
tekna til þess að sinna björgunar- og
slysavarnastarfi að sögn Smára sem
ítrekar um leið mikilvægi Bakvarða-
sveitarinnar, sem hann segir stærstu
„björgunarsveit“ félagsins. Þar gefur
hópur fólks og fyrirtækja, sem telur
hátt í sextán þúsund manns, mán-
aðarlega styrki til Landsbjargar í
formi peningagjafa.
Þrátt fyrir að um helmingur af
heildarflugeldasölu björgunarsveit-
anna fari fram á gamlársdag binda
þær vonir við ágætis sölu í aðdrag-
anda þrettándans, sem í ár ber upp á
laugardag. „Við erum bara bjartsýn á
að þau sem seldu minna nái að rétta
úr kútnum þá.“ – dfb
Aukin samkeppni á flugeldamarkaði setur strik í reikninginn
Landsbjörg leitar nú fleiri leiða til þess að afla tekna. FréttabLaðið/Ernir
fangelSiSmál Menntamál í fang-
elsinu á Hólmsheiði eru enn í óvissu
og ljóst að nám hefst ekki um ára-
mót eins og stefnt var að. Ekki hefur
verið gengið frá samningum við
menntamálaráðuneytið um nám á
Hólmsheiði en eins og Fréttablaðið
greindi frá í haust hætti Fjölbrauta-
skóli Suðurlands að sinna föngum
á Hólmsheiði í haust til að þrýsta á
um aukið fjármagn til kennslunnar.
„Starfsmenn skólans eru tilbúnir
að mæta á Hólmsheiði en það er
ekki komið á hreint með hvaða
hætti kennslumál eru hugsuð inn
í starfsemina þar,“ segir Olga Lísa
Garðarsdóttir, skólameistari FSu.
„Við höfum bætt við þjónustu
sérkennara og ráðgjafa varðandi
sérkennslu bæði á Litla-Hrauni og
Sogni, sem ekki hefur verið boðið
upp á í fangelsunum áður. Þörfin er
brýn og slíka þjónustu þarf að bjóða
á Hólmsheiði líka,“ segir Olga. Hún
segir unnið að stefnumótun fyrir
nám á Hólmsheiði og vonir standi
til að málin skýrist fljótlega eftir
áramót.
Þrátt fyrir að Hólmsheiði sé fyrst
og fremst hugsað sem móttöku-
fangelsi án umfangsmikils betr-
unarstarfs, hefur fangelsið tekið
við hlutverki fangelsisins í Kópavogi
sem kvennafangelsi og möguleikar
til náms því ekki síst hugsaðir fyrir
konur í langtímaafplánun. – aá
Enn ekkert nám
á Hólmsheiði
Þörfin er brýn og
slíka þjónustu þarf
að bjóða á Hólmsheiði líka.
Olga Lísa Garðars-
dóttir, skólameist-
ari FSu
HeilbrigðiSmál Svifryk í and-
rúmslofti á höfuðborgarsvæðinu
mældist töluvert yfir heilsuverndar-
mörkum skömmu eftir miðnætti á
nýársdag samkvæmt mælingum
loftgæðafarstöðva. Sólarhrings
heilsuverndarmörk einstaklings
vegna svifryks eru 50 míkrógrömm
á rúmmetra (µg/m3) en hæsta hlut-
fallið mældist skömmu eftir mið-
nætti hjá loftgæðafarstöðinni í
Dalsmára í Kópavogi þegar svifryks-
magn fór yfir 4.500 µg/m3. Á sama
tíma var magnið 2.500 á Grensás-
vegi í Reykjavík og 1.700 µg/m3 í
loftgæðafarstöðinni í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í Laugardal.
Til þess að setja þessar tölur í sam-
hengi má geta þess að í kjölfar eld-
gossins í Eyjafjallajökli mældist svif-
ryksmengun í Reykjavík í kringum
2.000 µg/m3.
Ragnhildur Finnbjörnsdóttir,
doktor í lýðheilsuvísindum, segir
svifryksagnirnar í flugeldum vera
smærri og fíngerðari en í eldgosinu.
„Smærri agnirnar ná miklu lengra
ofan í lungun og ná ekki að síast út í
nefinu og nefkokinu. Þær geta einn-
ig farið inn í blóðrásina og jafnvel
inn í líffærin.“
Hún segir vísindafólk hætt að
tala um það hvort svifryk sé hættu-
legt, heldur sé frekar talað um það
hvernig hættan sem því fylgir hafi
áhrif á fólk. Áhrif svifryks sjást eink-
um í lungnaþembu og með auknum
astmaeinkennum. Því hærra sem
svifryksgildi fer, því meiri eru
áhrifin á lungnastarfsemina.
Auk þess bendir Ragnhildur á
erlendar rannsóknir sem sýna fram
á samband aukinna hjartsláttar-
truflana, heilablóðfalla, hærri
blóðþrýstings og kransæðastífla
við hækkandi svifryksgildi. Það
sé því nauðsynlegt að vera á varð-
bergi gagnvart slíku. Börn, aldraðir
og fólk með öndunarfærasjúkdóma
séu þeir hópar sem berskjaldaðastir
eru fyrir auknu svifryki í andrúms-
loftinu. Notkun þungmálma er
algeng í flugeldum til þess að kalla
fram ákveðna liti og segir Ragn-
hildur að það sé nokkuð varhuga-
vert. „Þungmálmar eru þrávirk efni
sem safnast upp og eru krabba-
meinsvaldandi.“
Jón Magnús Kristjánsson, yfir-
læknir bráðalækninga á Landspítal-
anum, segir að spítalinn hafi tekið
á móti mun fleiri manns með önd-
unarvandræði í gær en á sama tíma
á undanförnum árum. „Við erum
að sjá töluvert af fólki koma inn
með versnun á lungnasjúkdómum,
astma og lungnaþembu,“ segir Jón í
samtali við Fréttablaðið.
Samkvæmt tölum bráðamót-
tökunnar leituðu allt að fimmtán
manns sér hjálpar vegna and-
þyngsla og súrefnislækkunar í
blóði. Hann segir að í sumum til-
fellum hafi fólk þurft að leggjast
inn á spítala vegna þessa. Þá bendir
hann einnig á að fleiri hafi leitað til
bráðamóttökunnar vegna öndunar-
vandræða nú en þegar gaus í Eyja-
fjallajökli árið 2010.
Þess ber að geta að svifryk á
höfuðborgarsvæðinu náði hámarki
skömmu eftir miðnætti á nýárs-
dag þegar nýju ári var fagnað með
sprengingu flugelda en fór aftur
niður í eðlilegt ástand síðdegis í
gær. danielfreyr@frettabladid.is
Mengunin skaðlegri en í eldgosi
Svifryk á höfuðborgarsvæðinu var meira skömmu eftir miðnætti á nýársdag en þegar Eyjafjallajökull gaus.
Fimmtán manns hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna andþyngsla og súrefnislækkunar.
Þykkur reykjarmökkur lá yfir höfuðborgarsvæðinu á nýársnóttu. FréttabLaðið/EgiLL
Þungmálmar eru
þrávirk efni sem
safnast upp og eru krabba-
meinsvaldandi.
Ragnhildur
Finnbjörnsdóttir,
doktor í lýðheilsu-
vísindum
2 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r i ð j U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
0
-1
D
1
0
1
E
A
0
-1
B
D
4
1
E
A
0
-1
A
9
8
1
E
A
0
-1
9
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K