Fréttablaðið - 02.01.2018, Page 8
Tilkynning um framboðsfrest
til stjórnarkjörs
Samkvæmt 37. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla
um kjör stjórnar og trúnaðarráðs.
Með hliðsjón af framansögðu tilkynnist hér með
að framboðsfrestur hefur verið ákveðinn
til kl. 16.00 mánudaginn 15. janúar 2018.
Skila ber tillögum ásamt meðmælendum
fyrir þann tíma á skrifstofu félagsins.
Kjósa skal formann, ritara, 1 meðstjórnanda og
9 fulltrúa í trúnaðarráð.
Hverjum framboðslista skulu fylgja
skrifleg meðmæli minnst 18 fullgildra félagsmanna
Reykjavík 2. janúar 2018.
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja
ÍRAN Minnst tólf, þar af tíu sem
féllu í gær, liggja í valnum eftir öldu
mótmæla í Íran undanfarna daga.
Hundruð eru sár eftir átök við lög-
reglumenn. Óeirðirnar eru þær
fjölmennustu í átta ár, eða frá því
að úrslit forsetakosninganna 2009
voru ljós.
Upphaf óeirðanna má rekja til
óánægju almennings með stöðu
mála á vinnumarkaði og efna-
hagsástand almennt. Atvinnuleysi í
landinu er mikið, matarverð hefur
hækkað að undanförnu og þá hefur
kjarnorkusamkomulag landsins, frá
því í júlí 2015, ekki skilað jafn miklu
og margir höfðu vonast til. Spilling
í öllum þrepum stjórnkerfisins auk
gífurlegrar íhaldssemi í trúmálum
hafa einnig verið olía á eld óánægj-
unnar.
Óánægjan hefur stigmagnast
undanfarnar vikur og á endanum
flykktist fólk út á götur landsins.
Mótmælin hófust síðastliðinn
fimmtudag, 28. desember, í borgum
víðsvegar um landið. Fjölmenni var
meðal annars í Mashhad, næstfjöl-
mennustu borg landsins, og Kerm-
anshah. Þaðan breiddust mótmælin
út um landið.
Mótmælafundir voru skipu-
lagðir á samskiptamiðlum og
spjallborðum á veraldarvefnum.
Mótmælendur hrópuðu slagorð til
stuðnings keisurunum Reza Shah
og Mohammad Reza Pahlavi en
þeir ríktu í landinu á árunum 1925-
1979. Keisaraveldið leið undir lok
í kjölfar byltingar árið 1979 sem
leiddi til klerkastjórnar og stofn-
unar íslamska lýðveldisins Írans.
Fram að því hafði landið verið mun
frjálslyndara og móttækilegra fyrir
vestrænum áhrifum.
Stjórnvöld vöruðu mótmælendur
við því að fara út á stræti landsins
en þeir létu það sem vind um eyru
þjóta. Meðal slagorða sem ómuðu
víðsvegar um landið má nefna „Við
viljum ekki íslamskt lýðveldi“ og
„Niður með einræðisherrana“. Mót-
mælin náðu til höfuðborgarinnar
Teheran þann 30. desember þar
sem stúdentar brenndu meðal ann-
ars myndir af Ali Khameini, æðsta
klerki landsins.
Yfirvöld hafa brugðist við mót-
mælunum af hörku. Lokað var fyrir
aðgang að ýmsum samskiptafor-
ritum, þar á meðal Instagram, til að
gera óeirðaseggjum erfiðara um vik
að leggja á ráðin um frekari aðgerðir.
Þá reyndu lögreglumenn að koma
á röð og reglu á nýjan leik. Þá hafa
öryggissveitir æðsta klerksins, sem
hafa það hlutverk að tryggja ísl-
amskt kerfi landsins, gengið harka-
lega fram.
„Þjóðin mun taka á þessum
háværa minnihluta sem hrópar slag-
orð gegn lögum og óskum fólksins
og sýnir heilagleika og gildi bylting-
arinnar vanvirðingu,“ sagði Hassan
Rouhani, forseti Írans, í ávarpi í gær.
Hann bætti því við að lands-
mönnum væri frjálst að mótmæla
með friðsamlegum hætti og að
mótmælin væru tækifæri en ekki
vandamál. Landsmenn ættu að
vinna að því í sameiningu að lag-
færa efnahagsvanda ríkisins.
„Hin mikilfenglega íranska þjóð
hefur verið kúguð um árabil. Hana
hungrar í mat og frelsi,“ skrifaði
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, á Twitter í gær. Andað hefur
köldu milli ríkjanna að undan-
förnu. johannoli@frettabladid.is
Dauðsföll í Íran eftir mótmæli
gegn stefnu klerkastjórnarinnar
Mótmæli Írana gegn bágum efnahag og atvinnuleysi breyttust skyndilega í mótmæli gegn stjórnvöldum og
spillingu í ríkinu. Alda mótmæla hefur breiðst út um landið gjörvallt. Tólf hafa fallið síðustu daga í óeirð-
unum. Þar af einn lögreglumaður. Forseti landsins segir háværan minnihluta vanvirða gildi byltingarinnar.
Stúdentar í átökum við lögreglumenn fyrir utan háskóla í Teheran en þar kom til átaka um áramótin. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
AkuReyRi Norðlenska á Akureyri
hefur sagt upp leigusamningi sínum
og hyggst flytja höfuðstöðvar sínar
úr núverandi húsnæði á Akureyri
en sláturhús og kjötvinnslustöð
hefur verið starfrækt á sama stað við
Grímseyjargötu allar götur frá 1928.
Auk höfuðstöðvanna á Akureyri
er fyrirtækið einnig með sláturhús
á Höfn og á Húsavík. Viðræður hafa
verið í gangi milli fyrirtækisins og
Hörgársveitar annars vegar og Akur-
eyrar hins vegar, um nýja lóð fyrir
fyrirtækið.
Ágúst Torfi Hauksson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska, segir
líklegast að fyrirtækið byggi sér nýtt
húsnæði undir starfsemi sína. „Við
höfum sagt upp leigusamningnum
og munum að óbreyttu flytja út að
tveimur árum liðnum, eða í upp-
hafi árs 2019,“ segir hann. „Þú ferð
ekki út á fasteignasölu og nærð þar í
5.000 fermetra iðnaðarhúsnæði. Við
þurfum að lágmarki 15.000 fermetra
lóð fyrir starfsemi okkar og höfum
verið í viðræðum við tvö sveitar-
félög og fengið vilyrði hjá þeim
báðum um lóð fyrir starfsemina.“
Núverandi húsnæði Norðlenska
er í eigu fyrirtækisins Miðpunkts
ehf. Miðpunktur er í eigu sömu
aðila og eiga og reka Kjarnafæði,
einn af keppinautum Norðlenska
á markaði. Að sögn Ágústs Torfa
rennur samningurinn út nú um
áramótin en ágreiningur var um
hvenær Norðlenska þyrfti að fara
úr húsnæðinu.
„Í lok árs 2007 var gerður leigu-
samningur til tíu ára og að þeim
tíma liðnum var hann uppsegjan-
legur með tveggja ára fyrirvara.
Það voru uppi deildar meiningar
milli aðila um hvenær nákvæmlega
samningurinn rennur út. Niður-
staðan er hins vegar sú að við förum
út eftir tvö ár.“
Gunnlaugur Eiðsson, forstjóri
Kjarnafæðis sem á fasteignir Norð-
lenska, segir nokkrar hugmyndir
nú þegar uppi um framtíðarnotkun
húsanna. „Það er hins vegar mín
skoðun að þessi tvö fyrirtæki sem
starfa á nákvæmlega sama markaði,
Kjarnafæði og Norðlenska, ættu að
renna saman í eina sæng,“ segir
Gunnlaugur.
sveinn@frettabladid.is
Norðlenska flytur innan tveggja ára
Við höfum sagt upp
leigusamningnum
og munum að óbreyttu flytja
út að tveimur árum liðnum.
Ágúst Torfi Hauksson,
framkvæmdastjóri
Norðlenska
Fyrirtækið Norðlenska og fyrirrennarar þess hafa stundað slátrun og vinnslu
við Grímseyjargötu á Akureyri allar götur frá 1928. FRÉTTABLAÐIÐ/PjETuR
BReTLAND Finnist ekki kaupendur
að 500 þúsund tonnum af bresku
plasti er hætta á að það endi í land-
fyllingum í stað endurvinnslu-
stöðva. Ástæðan er innflutnings-
bann Kína á plasti.
Plast, sem endar á endurvinnslu-
stöðvum Breta, hefur hingað til
verið flutt til Kína þar sem það er
endurunnið. Frá og með marsmán-
uði mun Kína ekki taka við plasti
frá öðrum löndum en markmiðið
með löggjöfinni er að tryggja að þar-
lenskt plast verði endurunnið í stað
innflutts varnings.
Bretar hafa talsverðar áhyggjur af
stöðu mála en um tveir þriðju plasts
þar í landi eru fluttir til Kína. Stjórn-
völd í Bretlandi hafa verið gagnrýnd
fyrir aðgerðaleysi en fyrstu fréttir
af fyrirhuguðu innflutningsbanni
Kínverja bárust á sumarmánuðum
nýliðins árs.
Finnist ekki nýir markaðir fyrir
plastið liggur beinast við að það
verði urðað eða endi í landfyll-
ingum. – jóe
Kínverjar hætta
að endurvinna
plast frá öðrum
ÞýskALAND Tveir létust í Þýskalandi
þegar þeir reyndu að sprengja heima-
tilbúna flugelda. Lögreglan í Berlín
staðfesti að tveir karlmenn, 35 og 19
ára, hefðu látist eftir slíkan gjörning.
Breska blaðið The Inde pendent
greinir frá.
Fjölmörg önnur flugeldaslys voru
tilkynnt í landinu en mörg þeirra
eru sögð hafa orðið þegar unglingar
beindu flugeldunum í átt að öðrum
börnum. Þannig brenndist ellefu ára
drengur alvarlega í andliti eftir að
unglingahópur í Berlín virðist hafa
miðað flugeldi að honum. Stúlka á 14.
ári blindaðist eftir svipaðan gjörning
í Thüringen-héraðinu. Alls leitaði
21 á sjúkrahús í Berlín vegna áverka
á höndum og þurfti að aflima fimm.
Sex lögreglumenn í Berlín þurftu að
leita sér aðstoðar eftir að flugeldi var
kastað inn í lögreglubíl. – bb
Létust eftir fikt
með flugelda
2 . j A N ú A R 2 0 1 8 Þ R i Ð j u D A G u R8 f R é T T i R ∙ f R é T T A B L A Ð i Ð
0
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
0
-2
B
E
0
1
E
A
0
-2
A
A
4
1
E
A
0
-2
9
6
8
1
E
A
0
-2
8
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K