Fréttablaðið - 02.01.2018, Síða 12

Fréttablaðið - 02.01.2018, Síða 12
Þriðjudagur 2. janúar Miðvikudagur 3. janúar 365.is 1817 Tottenham 19:35 Swansea #SWATOT Chelsea 19:30 Arsenal #ARSCHE 21:45 Uppgjör helgarinnar með Gumma Ben og Rikka G. #MESSAN Enska úrvalsdeildin Brighton - B’mouth 2-2 1-0 Anthony Knockaert (5.), 1-1 Steve Cook (33.), 2-1 Glenn Murray (48.) Burnley - Liverpool 1-2 0-1 Sadio Mané (61.), 1-1 Jóhann Berg Guð- mundsson (87.), 1-2 Ragnar Klavan (90+4.). Leicester - Huddersfield 3-0 1-0 Riyad Mahrez (53.), 2-0 Islam Slimani (60.), 3-0 Marc Albrighton (90+2.). Stoke - Newcastle 0-1 0-1 Ayoze Pérez (73.). Everton - Man. Utd. 0-2 0-1 Anthony Martial (57.), 0-2 Jesse Lingard (81.). Efst Man. City 59 Man. Utd 47 Chelsea 45 Liverpool 44 Arsenal 38 Neðst Stoke 20 C. Palace 19 West Ham 18 West Brom 16 Swansea 16 Nýjast Í dag 19.35 Swansea - Tottenham Sport Frumsýningar 22.15 Man. City - Watford Sport 23.25 S’oton - C. Palace Sport 23.25 West Ham - WBA Sport 2 Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Crystal Palace stöðvaði 18 leikja sigurgöngu Manchester City er liðin gerðu markalaust jafntefli á gamlárs- dag. Palace fékk gullið tækifæri til að vinna leikinn í uppbótartíma en Ederson varði vítaspyrnu Luka Milivojevic. Pal- ace hefur aðeins tapað einum af síðustu 10 deildarleikjum sínum. Hvað kom á óvart? Swansea vann afar mikilvægan sigur á Watford, 1-2, í fyrsta leiknum undir stjórn Carlos Carvalhal. Útlitið var ekki gott fyrir Svanina sem voru marki undir þegar fjórar mínútur voru til leiksloka. En mörk frá Jor- dan Ayew og Luciano Narsingh tryggðu Swansea stigin þrjú. Mestu vonbrigðin Mark Hughes hvíldi marga lykilmenn gegn Chelsea og Stoke fékk á baukinn, 5-0. Hann sagði að þessi ákvörðun myndi borga sig ef liðið myndi vinna Newcastle. Það fór ekki svo. Newcastle vann 0-1 sigur. Stoke hefur gengið illa á tímabilinu og Hughes situr í sjóðheitu sæti. Fótbolti Jóhann Berg Guðmunds- son var grátlega nærri því að tryggja Burnley stig gegn Liverpool á Turf Moor með sínu fyrsta marki fyrir félagið í rúmt ár. Jóhann Berg jafnaði metin í 1-1 á 87. mínútu þegar hann kastaði sér fram og skallaði boltann fram hjá Simon Mignolet í marki Liver- pool. Jóhann Berg hefur ekki verið þekktur fyrir skallamörk í gegnum tíðina en afgreiddi færið sitt gegn Liverpool vel. Mark íslenska landsliðsmanns- ins virtist ætla að tryggja Burnley stig en miðverðir Liverpool voru á öðru máli. Þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma fengu gestirnir aukaspyrnu á vallarhelmingi heimamanna. Alex Oxlade-Chamberlain lyfti bolt- anum inn á teiginn, Dejan Lovren skallaði hann á fjærstöngina þar sem hinn miðvörðurinn, Ragnar Klavan, skoraði af stuttu færi. Fyrsta mark hans fyrir Liverpool og fyrsta markið sem Eistlendingur skorar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool-menn geta verið sáttir með uppskeru jólatarnarinnar. Rauði herinn hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og skorað 16 mörk í þeim. Mohamed Salah og Philippe Coutinho fóru mikinn í jólamánuðinum en þeir voru ekki með gegn Burnley í gær. Leikurinn á Turf Moor var sá sísti hjá Liverpool í jólatörninni en sigur- inn var þeim mun mikilvægari. „Ég er mjög ánægður. Þetta var ekki frábær fótbolti en viðhorfið var frábært. Ég vildi sjá það frá mínum mönnum,“ sagði kátur Jürgen Klopp eftir leikinn í gær. Eftir 4-1 skellinn gegn Tottenham 22. október hefur Liverpool leikið 16 leiki í röð án þess að tapa. Ellefu þessara leikja hafa unnist og fimm endað með jafntefli. Sóknarleikur- inn er lítið vandamál hjá Liverpool. Liðið skoraði sjö mörk gegn Spartak Moskvu í Meistaradeildinni, fimm gegn Swansea City og Brighton, fjögur gegn Bournemouth og West Ham. Salah hefur farið hamförum og Brassarnir Coutinho og Roberto Firmino verið duglegir að skora og leggja upp. Varnarleikurinn hefur líka lagast, ef frá er talinn leikurinn gegn Arse- nal þar sem Liverpool fékk á sig þrjú mörk á fimm mínútum. Í síðustu 13 deildarleikjum hefur Liverpool aðeins fengið á sig níu mörk og haldið sex sinnum hreinu. Stuðningsmenn Liverpool von- ast líka til þess að vörnin verði enn sterkari þegar Virgil van Dijk, dýr- asti varnarmaður allra tíma, kemur inn í liðið. Hollendingurinn er orð- inn löglegur með Rauða hernum. Liverpool er í 4. sæti ensku úrvals- deildarinnar með 44 stig, sex stigum á undan Arsenal sem er í 5. sætinu. Strákarnir hans Klopps voru einnig í 4. sætinu eftir 22 umferðir á síðasta tímabili en með stigi meira. Janúar var hræðilegur hjá Liver- pool í fyrra; liðið fékk aðeins þrjú stig í fjórum deildarleikjum, var sleg- ið út úr ensku bikarkeppninni af B- deildarliði Wolves og tapaði báðum leikjunum gegn Southampton í und- anúrslitum deildabikarsins. Fjarvera Sadios Mané setti stórt strik í reikning Liverpool í janúar í fyrra. Nú er hins vegar engin Afr- íkukeppni að trufla Liverpool og þá virðist leikmannahópurinn vera breiðari og sterkari en í fyrra. Liverpool mætir Everton í 3. umferð ensku bikarkeppninnar um næstu helgi. Helgina þar á eftir tekur Rauði herinn svo á móti toppliði Manchester City. Tveir risaleikir fyrir Liverpool en miðað við frammistöðuna að undanförnu hefur liðið lítið að óttast. ingvithor@365.is Rauð jól í Liverpool Liverpool uppskar vel í jólatörninni og hefur fengið 13 stig af 15 mögulegum í síðustu fimm leikjum sínum. Hetjan í leiknum gegn Burnley kom úr óvæntri átt. Ragnar Klavan er fyrsti Eistlendingurinn sem skorar í ensku úrvalsdeildinni. Eistlendingurinn Ragnar Klavan skorar sigurmark Liverpool gegn Burnley þegar fjórar mínútur eru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. NoRdiCPHoToS/gETTy 2 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r i Ð j U D a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð spoRt 0 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :5 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 0 -1 3 3 0 1 E A 0 -1 1 F 4 1 E A 0 -1 0 B 8 1 E A 0 -0 F 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.