Fréttablaðið - 02.01.2018, Side 18

Fréttablaðið - 02.01.2018, Side 18
Rannsóknin sýnir að með því að einbeita sér að því að draga úr matarsóun er hægt að hafa áhrif á loftslagsbreytingar og fjárhagslegt tap verslana. Talið er að í Noregi sé fleygt yfir 350 þúsund tonnum af mat á hverju ári sem hægt væri að nýta. Mikið af því kemur frá neytendum. Frá verslunum kemur mest af brauði og ferskum ávöxtum og grænmeti. Þetta kemur fram á norska vefmiðl- inum forskning.no. Fólk er alltaf að verða meðvitaðra um matarsóun. Of mikill matur lendir í ruslinu. Það eru margar ástæður til þess að vinna gegn matarsóun. Að henda mat er ekki arðbært fyrir samfélagið, það er ekki umhverfisvænt auk þess sem metta mætti sveltandi þjóðir, segir Anne Marie Schrøder sem starfar við að minnka matarsóun í Noregi. Við sænsku rannsóknina héldu vísindamennirnir skrá yfir allt sem kastað var frá þremur stórum matvöruverslunum. Þeir fylgdust sömuleiðis með starfsmönnum í grænmetisdeildum. Það sem helst lenti í ruslinu voru bananar, epli, tómatar, salat, paprikur, perur og vínber. Bananar komu verst út. Það er vel þekkt að bananar verða fljótt brúnir og þá eru þeir ekki keyptir. Bananar hafa mest nei- kvæð umhverfisáhrif samkvæmt mælingum en þær eru gerðar með sérstökum hætti allt frá framleiðslu vörunnar og þar til hún kemur í matvörubúðina. Bent er á að paprika og tómatar séu grænmeti sem hægt sé að nota á margan hátt. Ferskar kryddjurtir lenda því miður líka mikið í ruslinu. Vísindamenn við háskólann í Karlstad telja að ef kaupmenn væru betur meðvitaður um hversu mikið af vörunum lendir á haugunum væri hægt að bjarga miklu. Norsk yfirvöld leitast við að draga úr matarsóun um 50% fram til ársins 2030. Þegar hefur verið gripið til aðgerða og frá árinu 2010 hefur matarsóun minnkað um 12%. Meðal annars hafa orðið breyt- ingar á dagstimplun, í staðinn fyrir síðasta neysludag stendur núna „best fyrir“. Þá er hvatt til afsláttar- verðs á ávöxtum og grænmeti áður en geymsluþolið rennur út. Fólk getur notað vel þroskaða ávexti í þeytinga og gert pastasósur eða salsa úr þroskuðum tómötum. Allir þurfa að taka samfélagslega ábyrgð í þessu máli. Matarsóun á Íslandi er sam- bærileg við önnur lönd í Evrópu, að því er kemur fram á vef Umhverfis- stofnunar. Gerð var rannsókn á umfangi matarsóunar á Íslandi. Niðurstöðurnar sýna að ekki er marktækur munur á sóun á heim- ilum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna metur það sem svo að 1,3 milljónir tonna af matvælum fari í ruslið á hverju ári. Áætlað er að í iðnvæddum löndum, líkt og Íslandi, fari þriðjungur þess matar sem keyptur er beint í ruslið. Ávextir og grænmeti í ruslið Það er hægt að nýta margt af því sem hent er í ruslið. GAMLIR VINIR SNÚA AFTUR Á STÖÐ 3 Ekki missa af vinsælustu þáttum allra tíma. Sjö grænmetis- tegundir eru um helmingur þess sem kastað er í ruslið hjá þremur stærstu mat- vöruverslunum í Svíþjóð. Þrír vís- indamenn við há- skólann í Karl stad í Svíþjóð hafa kortlagt úrgang frá þessum versl- unum. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . jA N úA R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :5 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 0 -3 5 C 0 1 E A 0 -3 4 8 4 1 E A 0 -3 3 4 8 1 E A 0 -3 2 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.