Fréttablaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 24
Að standa við skrifborðið Nýleg langtímarannsókn á bak- heilsu fjögur þúsund Bandaríkja- manna sýnir að lífslíkur aukast nákvæmlega ekki neitt við það að standa við skrifborðið frekar en að sitja. Staðan brennir að vísu fleiri hitaeiningum svo ef það er aðalmarkmiðið er endilega málið að standa sem lengst. Fitusnautt fæði Átta ára rannsókn þar sem næst- um fimmtíu þúsund konur tóku þátt sýnir fram á að fitusnautt fæði dregur hvorki úr líkunum á brjóstakrabbameini, ristilkrabba- meini né hjartasjúkdómum. Og þær léttust ekki svo nokkru næmi. Mælt er með að borða holla fitu úr hnetum, avókadó og fiski. BMI sem mælikvarði á heilsu BMI var fundið upp árið 1830 af tryggingasölumanni sem vildi geta rukkað meira fyrir líftrygg- ingar. Sérfræðingar í ofþyngd segja að BMI sé ekki gagnlegur mælikvarða á hlutfall vöðva og fitu í líkamanum og miklu betra sé að miða við mittismál sem mæli- kvarða á áhættu á sjúkdómum eins og hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki 2. Heilsubót eða hugarburður? Staðreyndir og mælieiningar varðandi heilbrigða lífshætti eru ekki óbreytanlegar heldur leiða nýjar rannsóknir stöðugt í ljós nýjar upplýsingar. Hér eru nokkur atriði til umhugsunar. Handspritt gerir ekki eins mikið gagn og sápa og vatn samkvæmt nýjustu rann- sóknum. Að standa við skrifborðið hefur ekki afgerandi áhrif á heilsuna. Glútensnautt fæði Minna en tvö prósent einstaklinga þjást af celiac sjúkdómnum sem á íslensku hefur verið kallaður glúten óþol. Við hin verðum ekki fyrir áhrifum af glúteni . Rann- sóknir sýna hins vegar að flestir finna fyrir uppþembu eftir að hafa borðað, hvort sem á matseðlinum er hveiti eða ekki. Möndlumjólk frekar en kúamjólk Valkostir við dýramjólk hafa rokið upp í vinsældum undanfarin ár, sérstaklega þó möndlumjólk þrátt fyrir að vera næstum því alveg laus við næringarefni. Möndlur eru troðfullar af próteini en í glasi af möndlumjólk er ekki nema 2% möndlur og eiginlega ekkert prótein og vítamínin eru viðbætt. Svo ef þú ert að leita að valkosti er sojamjólk betri. Safadrykkja Við safagerð úr ferskum ávöxtum og grænmeti hverfa allar góðu og hollu trefjarnar sem við þörfnumst og halda okkur söddum og sælum fram að næstu máltíð. Og eftir situr sykurinn sem hækkar blóðsykur sem eykur hungurtilfinningu. Borðaðu þessa ávexti og græn- metið og drekktu stórt vatnsglas með. Handspritt Reglulegur handþvottur gerir hand- spritt nánast alveg óþarft. Og ekkert handspritt er jafngóður gerlabani og gamaldags sápa og vatn. Nóróveiran alræmda er til dæmis orðin ónæm fyrir handspritti og fleiri veirur munu fylgja í kjölfarið innan tíðar. Að láta braka Til skamms tíma var almenn vitn- eskja að það að láta braka í liðum væri ekki bara pirrandi fyrir aðra heldur mjög hættulegt fyrir liði brakarans. Fjölmargar rannsóknir hafa hnekkt þeirri hugmynd og rannsakendur segja jafnvel að liða- brakið sé vísbending um að liðirnir séu vel smurðir og heilbrigðir. Og að þeir sem ekki geta látið braka ættu að vera viðbúnir því að eiga við liða- vandamál að stríða í framtíðinni. Hreinsikúrar Það þurfa engin okkar að hreinsa sig að innan nema þau sem hafa orðið fyrir eitrunaráhrifum. Lifrin og nýrun sjá um að sía frá flestöll óæskileg efni sem við látum ofan í okkur. Örbylgjueldamennska Öll höfum við heyrt um það hvernig örbylgjur geisli alla næringu úr matnum okkar. Sem betur fer fyrir okkur flest er þetta algerlega ósatt. Örbylgjuofnar elda mat með orku- bylgjum sem fá mólekúl í matnum til að hreyfast á ógnarhraða sem aftur býr til orkuna sem eldar matinn. Auðvitað dvínar næringargildi sumra matvæla þegar þau hitna, hvort sem það er í örbylgjuofni, á eldavél eða grilli. En þar sem örbylgjueldamennska tekur oft styttri tíma en önnur er jafnvel líklegra en ekki að hún varðveiti næringarefni betur en aðrar eldun- araðferðir. Nánari upplýsingar í síma 1817 eða á 365.is HEILL HEIMUR ÁN MYNDLYKILS Nánari upplýsingar í síma 1817 Þú þarft ekki myndlykil til þess að horfa á fjölbreytta dagskrá allra sjónvarpsstöðva 365, tímaflakkið, Frelsið og Stöð 2 Maraþon Now. Þú getur horft í snjallsíma, spjaldtölvu eða fartölvu hvenær sem þér hentar. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . jA N úA R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :5 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E A 0 -3 A B 0 1 E A 0 -3 9 7 4 1 E A 0 -3 8 3 8 1 E A 0 -3 6 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.