Fréttablaðið - 02.01.2018, Side 30
Merkisatburðir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Kaj Anton Larsen
múrari,
Stekkjarseli 3, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
18. desember síðastliðinn. Útförin fer fram
frá Fella- og Hólakirkju, föstudaginn 5. janúar kl. 13.
Lilja Caroline Larsen Sigurður Ingi Einarsson
Finnur Heimir Larsen Anna María Björnsdóttir
Anna Kristine Larsen Valgeir Sveinsson
Tanja Aðalheiður Larsen Leifur Guðjón Sigmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til þeirra er sýndu
okkur samúð og vinarþel við andlát
og útför okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Svans Sigurðssonar
prentsmiðjueiganda.
Sérstakar þakkir til starfsfólks B7 og 11E
á Landspítala og líknardeild í Kópavogi fyrir einstaka
umönnun og hlýju í veikindum hans.
Ég bið þess að nýja árið færi okkur öllum gleði og frið
og þakka liðna tíð.
Þuríður Ólafsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jórunn Gíslína
Gottskálksdóttir
Lóa frá Hvoli í Ölfusi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í
Hveragerði, sunnudaginn 24. desember.
Hún verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju, laugardaginn
6. janúar kl. 14.00.
Kristján J. Friðgeirsson
Gottskálk Friðgeirsson Edda Sverrisdóttir
Gróa Friðgeirsdóttir Ásgeir Guðmundsson
Rúnar J. Friðgeirsson Yuridise Kendi Nyaga
Össur E. Friðgeirsson Guðrún Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Örn Erlendsson
hagfræðingur,
andaðist mánudaginn 18. desember.
Útför hans fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 4. janúar kl. 15.00.
Finnbogi Rútur Arnarson Þórunn Hreggviðsdóttir
Sigríður Arnardóttir Kristján Franklín Magnús
Ormur Jarl Arnarson Amanda Garner
Rolf Hákon Arnarson Eva Sif Jóhannsdóttir
og barnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Verðlaunin úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright eru veitt íslenskum vís-indamanni sem náð hefur framúrskarandi árangri á sínu sérsviði í
vísindum eða fræðum og miðlað þekk-
ingu sinni til framfara í íslensku þjóð-
félagi.
„Ég er fyrst og fremst þakklát,“ segir
verðlaunahafinn Ingileif Jónsdóttir, en
forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson
afhenti henni nýlega verðlaunin við
hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafninu.
„Þetta er bæði mikil viðurkenning og
jafnframt hvatning fyrir mig og teymið
mitt, og ekki síst nemendur mína.“
Ingileif Jónsdóttir hefur stýrt bólu-
efnarannsóknum við Ónæmisfræði-
deild Landspítala frá árinu 1997 og rann-
sóknum smit- og bólgusjúkdóma hjá
Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 2005.
Hún starfaði sem dósent við HÍ frá 1996
og varð prófessor við Háskóla Íslands á
árinu 2006.
Rannsóknir hennar snúa að grund-
vallarþáttum í ónæmisvörum við bólu-
setningu og samspili hýsils og sýkils.
Hún hefur með rannsóknum sínum
sýnt fram á virk áhrif bólusetningar á
fjölbreytta sjúkdóma, einkum á þá sem
hafa tengsl við bólgumyndandi þætti.
Rannsóknir Ingileifar hafa leitt til
margra mikilvægra niðurstaðna sem
hafa leitt til heilsufarslegra útbóta en
við verðlaunaafhendinguna kom fram
að með rannsóknum Ingileifar hafi lífs-
gæði manna batnað og lífslíkur aukist.
„Árlega deyja fimm milljónir barna
úr sjúkdómum sem auðveldlega mætti
koma í veg fyrir með bólusetningum.
Það skiptir máli fyrir alþjóðasamfélagið
að slá aldrei slöku við í bólusetningum,
því það er besta forvörnin við lífshættu-
legum sjúkdómum. Sú nýbylgja, að bólu-
setja ekki börnin sín, sem hefur verið við
lýði í ýmsum vestrænum ríkjum hefur
miklu alvarlegri afleiðingar en fólk
gerir sér grein fyrir. Íslendingar eru enn
fremstir á þessu sviði en mega aldrei slá
slöku við.“
Ingileif er fædd þann 27. nóvember
1952 í Reykjavík og er gift Birgi Birni
Sigurjónssyni hagfræðingi og eiga þau
tvo uppkomna syni. Eftir útskrift frá MR
lauk hún BS-prófi í líffræði frá Háskóla
Íslands árið 1975. Hún hóf doktorsnám
við ónæmisfræðideild St. Mary’s sjúkra-
hússins í London sama ár, hélt rann-
sóknum sínum áfram við Wenner Gren
stofnun Háskólans í Stokkhólmi fram
til ársins 1984 og lauk doktorsprófi frá
Háskólanum í Stokkhólmi árið 1991.
astahrafnhildur@frettabladid.is
Hlaut heiðursverðlaun
fyrir bóluefnarannsóknir
Verðlaunahafinn Ingileif Jónsdóttir leggur ríka áherslu á forvarnargildi bólusetninga og
foreldrar megi ekki slá slöku við. Bólusetningar eru besta forvörnin sem völ er á.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir Ingileifu Jónsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands, heiðursverðlaunin.
Þetta er bæði mikil
viðurkenning og
jafnframt hvatning fyrir mig og
teymið mitt, og ekki síst nem-
endur mína.
Ingileif Jónsdóttir, prófessor við Háskóla
Íslands
533 Jóhannes annar verður páfi.
1492 Boabdil, síðasti márakonungurinn í Granada, gefst upp
fyrir her Ferdínands og Ísabellu.
1653 Mikið tjón verður á Eyrarbakka og víðar í Háeyrarflóði.
1833 Bretar hertaka Falklandseyjar.
1870 Bygging Brooklyn-brúarinnar hefst.
1871 Stöðulögin, um að Ísland væri óaðskiljanlegur hluti
hins danska ríkis með sérstök landsréttindi, ganga í gildi.
1871 Íslensk króna verður til.
1887 Prentarafélagið, fyrsta verkalýðsfélagið á Íslandi, er
stofnað.
1899 Séra Friðrik Friðriksson stofnar KFUM.
1900 Chicago-skurðurinn opnaður.
1908 Lögbirtingablaðið kemur fyrst út.
1942 Japanar hetaka Maníla á Filippseyjum.
1971 66 farast þegar stigi gefur sig á Ibrox Park-leikvanginum
í Glasgow.
1994 Meginþorri íslenskra sjómanna hefur tveggja vikna
langt verkfall.
2 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D a G U r14 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
0
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
0
-0
E
4
0
1
E
A
0
-0
D
0
4
1
E
A
0
-0
B
C
8
1
E
A
0
-0
A
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K