Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2018, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 02.01.2018, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Dúndrandi diskó­taktur og hlátra­sköll berast frá hús­næði Háteigskirkju þegar að blaðmann bar að garði. Fyrsta ályktun var sú að sóknarprestarnir hefðu hent í gott partí en við nán­ ari athugun var ekki búið að breyta kirkjunni í diskótek heldur barst gleðiómurinn frá dansskóla sem er staðsettur í bakhúsi kirkjunnar. Það fór ekkert á milli mála að það var mikið fjör í gangi, hér var ekki hávær hópur unglinga í gleðikasti heldur hressar konur á ýmsum aldri í dúndrandi danssveiflu. „Þetta er dansdívugleði,hér hitt­ umst við og leyfum okkar innri dívu að brjótast fram og það gerum við með dansinum,“ segir Nanna Ósk danskennari en hún hefur verið viðloðandi dans allt sítt líf og rekur dansskólann Dance Center þar sem að hún kennir konum á öllum aldri dans. „Dans er alhliða hreyfing og er ótrúlega góð að því leytinu að þú gleymir þér á meðan þú ert að hreyfa þig og þú ert sam­ tímis að rækta líkama og sál. Maður finnur hvernig gleðihormónarnir hristast um allan líkamann, það er ekki hægt að fara dapur heim eftir svona tíma.“ Konurnar svífa faglega um gólfið í alls konar snúningum, mjaðma­ sveiflum og hoppum líkt og þær hafi ekki gert neitt annað, því er eðlilegt að spyrja hvort allir geti lært að dansa. „Þetta eru einföld spor, allir ættu að ráða við þetta, líka þeir sem hafa ekki dansgrunn. Rútínurnar eru stuttar og margar og við förum rólega í hlutina. Ég hvet þær konur sem eru hikandi að ofhugsa ekki sporin heldur bara herma eftir hreyfingunni og þá gengur þetta áreynslulaust. Það geta allir lært að dansa, þetta er þjálfunaratriði. Hér er mikið hlegið og við erum eiginlega í gleðikasti allan tímann og tökum okkur ekki hátíðlega. Fjölmargar konur taka með sér vinkonur og jafnvel heilu vinkonuhópana hingað í dans­ tíma. Ég er bara með dívutónlist, Beyoncé, Rihönnu og fleiri drottn­ ingar, hér leyfum við okkar innri dívu að brjótast út og skína.“ Dans er fyrirbyggjandi Dans er allra meina bót, eða að minnsta kosti margra, og sagt er að dansiðkun dragi úr einkennum heilahrörnunar. „Ég á nokkrar vin­ konur sem eru læknar og á kafi í lýðheilsufræði, þær hafa sent mér lesefni með niðurstöðum rann­ sókna þar sem þetta er staðfest. Dansinn virkjar öll skynfærin, þetta er svo mikil samhæfing á útlimum, sjónrænt og við virkjum margar heilastöðvar, þarna ertu að spila á allan líkamann og svo er dans gott yngingarmeðal.“ En hvað karlmennina? „Þessi hópur er bara fyrir konur, þannig að „sorrí“ strákar þið megið ekki vera með en megið kíkja á glugg­ ann, eru jólasveinarnir ekki að fara á kreik?“ Dillandi dansdívur sleppa fram af sér beislinu Það er aldrei of seint að læra að dans, segir Nanna Ósk Jónsdóttir danskennari sem heldur dívudansnámskeið fyrir konur á öllum aldri. Á námskeiðinu er mikið hlegið og konurnar í gleðikasti. Nanna segir dansinn vera fyrirbyggjandi gegn heilahrörnun og hefur fyrir því heimildir frá læknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN Það er ávallt glatt á hjalla þegar dansdívurnar mæta. Hér er mikið Hlegið og við erum eigin- lega í gleðikasti allan tímann og tökum okkur ekki Hátíðlega. Ármúla 4-6, Reykjavík 511 2777 | sala@betribilakaup.is Gerðu betri kaup hjá okkur! Hringdu í 511 2777 2017 Kia Optima Phev 2017 Mitsubishi Outlander Arctic Phev 2017 Nissan Leaf Tekna+ Fullkominn fyrir íslenskar aðstæður - 4X4 Apple Carplay/Android Auto Eini tengitvinn bíllinn sem er með hraðhleðslu 360° myndavélakerfi Verð 4.430.000 kr. Er á staðnum Vertu velkominn í reynsluakstur! 30 Kwh rafhlaða 250 km á hleðslunni Verð 3.565.000 kr. Glæsilegur og mjög vel útbúinn Harman/Kardon hljóðkerfi Plug-In Hybrid Hraðastillir með aðlögun Verð 3.790.000 kr. facebook.com/betribilakaup 2 . j a n ú a r 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D a G U r22 l í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð 0 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :5 0 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E A 0 -1 8 2 0 1 E A 0 -1 6 E 4 1 E A 0 -1 5 A 8 1 E A 0 -1 4 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.