Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Blaðsíða 21
Hjónaherbergið er í gráum og svörtum tónum.
Íbúðin hjá Unu og Ómari
er björt, stílhrein og falleg.
Morgunblaðið/Hanna
25.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Reykjavík, Akureyri og Ísafirði www.husgagnahollin.is
ÚTSALAN
Sumar
afsláttur60%Allt að
RIA
Nettir og einstaklega þægilegir
tveggja og þriggja sæta sófar.
Grænblátt, ljósgrátt eða dökk-
grátt slitsterkt áklæði.
2ja sæta: 152 × 83 × 79 cm
48.993 kr. 69.990 kr.
3ja sæta: 192 × 83 × 79 cm
55.993 kr. 79.990 kr.
Þú finnur nýja bæklinginn
okkar á www.husgagnahollin.is
RIA
Nettir og einstaklega þægilegir tveggja og þriggja
sæta sófar. Grænblátt, ljósgrátt eða dökk-
grátt slitsterkt áklæði.
2ja sæta: 152 × 83 × 79 cm
48.993 kr. 69.990 kr.
3ja sæta: 192 × 83 × 79 cm
55.993 kr. 79.990 kr.
AFSLÁTTUR
30%
Una er sjálf uppalinn Seltirningur svohún er alsæl með að vera komin afturá Nesið góða eftir að hafa búið um
tíma í Vesturbæ Reykjavíkur. ,,Við keyptum
hæð á Seltjarnarnesinu sem við vissum að við
þyrftum að hanna upp á nýtt. Við færðum eld-
húsið á annan stað, bjuggum til nýtt barna-
herbergi og brutum niður vegg svo eitthvað sé
nefnt. Við vissum að þetta yrði mikil vinna en
þetta gekk hratt fyrir sig og má þakka góðu
teymi af fólki sem eyddi hér heilu klukku-
stundunum með okkur,“ segir Una. ,,Við höfð-
um tvær til þrjár vikur til að gera upp hálf-
fokhelda íbúð og fluttum inn þremur vikum
eftir afhendingu á lyklum. Það má segja að
þetta hafi verið smá kraftaverk, fólk furðar sig
enn á þessu og hvernig okkur tókst þetta,“
segir hún og hlær.
Þau hjónin eru afar samheldin og segir Una
þetta orðið að sameiginlegu áhugamáli, að gera
upp íbúðir. ,,Við höfum gert upp tvær fast-
eignir áður en þó ekki eins krefjandi og þessa
sem við búum í núna. En við myndum klárlega
gera þetta aftur, en í næsta sinn verður það
framtíðarheimilið,“ segir hún og brosir.
Una lýsir stíl sínum sem stílhreinum, hlýjum
og barnvænum eða afslöppuðum, en þau hjón-
in eiga tvær dætur, Alexöndru Líf og Andreu
Líf og svo var að bætast við nýr, lítill fjöl-
skyldumeðlimur, hundurinn Moli. ,,Það skiptir
okkur miklu máli að hér geti allir gengið um þó
svo að maður hafi fína muni hér og þar,“ segir
Una. Hún segist fá innblástur fyrir heimilið í
blöðum, mestmegnis, en einnig notar hún
pinterest mikið. ,,Maður fær ófáar hugmynd-
irnar þaðan. Við hjónin höfum svo verið dugleg
að prófa okkur áfram með ýmsar hugmyndir
en Ómar á fyrirtækið Innréttingarklæðning,
sem sérhæfir sig í því að ,,filma“ innréttingar
og ýmsa hluti. Sniðug og ódýr lausn fyrir þá
sem vilja gera upp hluti sem eru heilir og þarf
ekki að henda.“
Orðið að sameig-
inlegu áhugamáli
Una Dögg Guðmundsdóttir og Ómar Örn Helenuson fjár-
festu í fallegri hæð á Seltjarnarnesi fyrir nokkru síðan. Þau
gerðu íbúðina upp á mettíma og tókst afar vel til enda er
heimili þeirra einstaklega fallegt og hlýlegt.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunntorunn@gmail.com
Una nýtur sín við að gera heimili að fallegum
griðastað og hefur nú gert upp þrjár íbúðir.
Klukkan er í uppáhaldi hjá Unu sem fann hana í
Boston og kom með heim úr vinnuferð.
Una er með litasamsetninguna á hreinu og
barnaherbergið er þar ekki undanskilið.