Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Side 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Side 34
Málverkið Kvöld í Kópavogi eftir Jón Engilberts. ’Þetta tímabil einkennist afþessari innri baráttu lista-mannanna sem þurftu aðvera trúir sjálfum sér og upp- runa sínum sem íslenskir listamenn á sama tíma og þeir tókust á við erlend áhrif. Sýningin fjallar um það hvernig íslenskirmyndlistarmenn urðu fyrir áhrifum fránýjum straumum sem komu fram í evr- ópskri myndlist í byrjun 20. aldar,“ segir Mar- grét Elísabet Ólafsdóttir, sýningarstjóri sýn- ingarinnar Sköpun sjálfsins - expressjónismi í íslenskri myndlist 1915-1945 í Listasafni Árnesinga sem opnuð var í gær, föstudag. Margrét Elísabet segir sýninguna spanna tímabil í íslenskri myndlist sem hófst með Jóni Stefánssyni sem hafði bæði áhrif á samtíma- menn sína og kynslóðina sem á eftir kom. Það gerði hann bæði með verkum sínum og með því að beina yngri myndlistarmönnum eins og Jóni Engilberts og Snorra Arinbjarnar út í nám til Axels Revold, skólafélaga síns frá París, þegar hann var orðinn kennari í Ríkislista- akademíunni í Ósló. „Ég velti líka fyrir mér hvernig myndlistarmenn á þessum tíma höfðu áhrif hver á annan,“ segir Margrét Elísabet. Hún segist jafnframt loka tímabilinu með Svavari Guðnasyni sem var af næstu kynslóð á eftir Jóni og bjó í Kaupmannahöfn í síðari heimsstyrjöldinni. Þar komst hann í snertingu við nýjar hræringar í listum sem enduðu í ab- strakt expressjónisma sem markaði nýtt tíma- bil í sögu íslenskrar myndlistar. Nýjum straumum veitt brautargengi Margrét Elísabet segir tilurð sýningarinnar hafa átt sér langan aðdraganda. Áhugi hennar beindist upphaflega að Finni Jónssyni og við- tökunum sem hann fékk þegar hann var fyrst- ur til að sýna abstraktverk á Íslandi eftir nám í Danmörku og Þýskalandi. „Ég hafði almennt verið að velta fyrir mér hvernig tekið væri á móti listrænum nýjungum á Íslandi þegar mér bauðst að taka þátt í alþjóðlegu rannsókn- arverkefni um expressjónisma. Þá áttaði ég mig á að ég þyrfti að skoða Finn og áhrif expressjónismans á íslenska list í víðara sam- hengi,“ segir Margrét Elísabet. Hún hafi byrj- að á að beina sjónum sínum að Jóni Stefáns- syni sem lærði í Danmörku og Frakklandi á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina. Þar hafi hann, rétt eins og Finnur, stundað nám í einka- skólum sem stofnaðir voru til að veita nýjum straumum brautargengi þar sem þeir komust í snertingu við það nýjasta sem var að gerast í myndlist. „Þegar Finnur kom heim úr námi árið 1925 hafði hann sýnt í þýska galleríinu Der Sturm í Berlín sem skipulagði myndlistarsýningar á verkum expressjónista í Kaupmannahöfn á ár- unum 1912 til 1917. Á þessum tíma voru marg- ir íslenskir listamenn við nám í Kaupmanna- höfn sem sáu þessar sýningar. Eftir stríð komu út bækur þar sem því var haldið fram að verk expressjónistanna bæru merki um að þeir væru sýktir af geðrænum sjúkdómi sem höf- undurinn sagði að hefði borist um alla Evrópu eins og farsótt,“ útskýrir Margrét Elísabet og segist þá hafa farið að velta fyrir sér áhrif- unum sem þessi umræða hafði á Íslandi. Alex- ander Jóhannesson, málvísindamaður og seinna rektor Háskóla Íslands, hélt tvo fyrir- lestra árin 1920 og 1922 þar sem hann fjallaði um gagnrýni á þessa nýju listastefnu. „Orð- ræðan og gagnrýnin á expressjónismann var því komin fram áður en íslensku listamennirnir komu til Íslands með verk sem sýndu að þeir höfðu orðið fyrir áhrifum af nýjungunum. Jóhannes S. Kjarval hafði reyndar sýnt verk sem gætu talist undir áhrifum nútímalistar í Reykjavík árið 1919 en Jón Stefánsson sýndi verk sín ekki opinberlega á Íslandi fyrr en árið 1920, eftir að Alexander hafði haldið fyrsta fyr- irlesturinn um gagnrýnina. Mér fannst áhuga- vert að skoða hvernig áhrif þessar hræringar sem áttu sér stað í Evrópu á árunum fyrir og í fyrri heimsstyrjöldinni og gagnrýnin á þessa nýju strauma höfðu á íslensku listamennina og viðfangsefni þeirra,“ segir Margrét Elísabet. Sjálfum sér trúir Hún segir titilinn á sýningunni, Sköpun sjálfs- ins, vísa til þess að expressjónisminn krafðist þess að listamenn væru sjálfum sér trúir í tján- ingu sinni. Þeir áttu að vera trúir uppruna sín- um sem einstaklingar og listamenn en líka þjóðaruppruna sínum. Sú krafa fór vaxandi á árum síðari heimsstyrjaldarinnar þegar farið var að greina á milli þýsks og fransks express- jónisma. „Þetta tímabil einkennist af þessari innri baráttu listamannanna sem þurftu að vera trúir sjálfum sér og uppruna sínum sem íslenskir listamenn á sama tíma og þeir tókust á við erlend áhrif,“ segir Margrét Elísabet. Auk þeirra sem áður hafa verið nefndir verða verk á sýningunni eftir Gunnlaug Schev- ing, Jóhann Briem og Mugg. Margrét Elísabet segir að fólk taki örugglega strax eftir því að ekki er verk eftir neina konu á sýningunni. „Mér fannst tvær konur mögulega hafa átt heima á sýningunni, þær Júlíana Sveinsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Ég ákvað að sleppa Kristínu vegna þess að hún hafnaði express- jónismanum mjög skýrt bæði með því sem hún sagði og í verkum sínum þó hún hafi síðar orðið fyrir áhrifum frá Jóni Stefánssyni. Það mætti kannski frekar gagnrýna mig fyrir að hafa Júl- íönu ekki með því það má greina áhrif express- jónismans í sumum af hennar eldri verkum en hún settist að í Kaupmannahöfn og kom mjög lítið til Íslands á þessum árum,“ útskýrir Mar- grét Elísabet. Hún segir verkunum vera raðað upp eftir viðfangsefnum og myndrænum skyldleika á sýningunni. Þar séu t.d. tvö verk sem sýna stríðið sem sé áhugavert vegna heimsstyrjald- arinnar, en einnig sem skírskotun í sjálfstæð- isbaráttuna og baráttu listamannanna við list- rænt sjálfstæði. Hún segir alla listamennina hafa fengist við íslenskt landslag sem sé við- fangsefni nátengt sjálfstæðisbaráttunni og því séu nokkrar landslagsmyndir á sýningunni. „En listamennirnir tókust líka á við önnur við- fangsefni sem einkenna expressjónismann, eins og mannlífið og atvinnulífið sem á Íslandi byggðist aðallega á sjósókn og sveitastörfum. Þeir máluðu líka borgar- og bæjarlífið, bæði erlendis og á Íslandi. Síðan eru nokkur verk af fyrirsætum því kvenmódelið var áberandi við- fangsefni í expressjónískum málverkum,“ seg- ir Margrét Elísabet. Hún segist halda sig við verk frá 1915 til 1945 og ekki vera að sýna hvað gerðist eftir það. „Ég er að leika mér með að skoða hvað var að gerast og hvað listamenn- irnir voru að fást við á tímabili sem í pólitísku samhengi spannar árin frá heimastjórn og full- veldi til stofnunar íslenska lýðveldisins,“ segir hún að lokum. Margrét Elísabet stillir upp verkinu Við ströndina eftir Jón Engilberts. Ljósmynd/Guðrún Tryggvadóttir Expressjónisminn eins og farsótt Sýningin Sköpun sjálfsins fjallar um hræringar í myndlistarheiminum á árunum 1915 til 1945. Margrét Elísabet Ólafsdóttir sýningarstjóri segir áhugavert að skoða hvernig nýja listastefnan og hörð gagnrýnin hafði áhrif á íslenska myndlistarmenn. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is Jónsmessunótt eftir Jóhannes S. Kjarval. LESBÓK Hjálmar Sveinsson heimspekingur ræðir á morgun, sunnudag kl. 14,um list myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar og samband hans við borgarlandið í tengslum við List fyrir fólkið í Ásmundarsafni. List Ásmundar og borgin 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.6. 2017

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.