Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2017
Nýtt íslenskt app fyrir þá
sem sitja mikið langtímum
saman við vinnu er komið
á App Store. „Hugmyndin
að þessu kviknaði þegar
ég var í prófum á fyrsta
ári í tölvunarfræðinni,“
segir Bragi Bergþórs-
son, höfundur appsins Brken,
en hann útskrifaðist með B.Sc.-próf í tölv-
unarfræði frá HR í vor. „Þá sátum við lengi við að læra. Ég rakst
á þetta hugtak, „micro break“. Ég píndi strákana, en við vorum
átta saman í herbergi, til að standa upp á korters fresti, teygja úr
sér og skipta um fókus, og fara síðan í fimm mínútna göngutúr á
klukkutíma fresti. Þetta gafst ótrúlega vel. Við fundum greinilegan
mun,“ segir Bragi, sem fann bæði líkamlegan og andlegan mun á
sjálfum sér með því að taka þessi stuttu hlé. „Manni líður ekki
eins og maður hafi setið allan daginn þótt maður hafi gert mikið af
því.“
Það var líka ákveðin áskorun fyrir hann að hanna app. „Mig
langaði að prófa þetta ferli frá a til ö. Áður hafði ég gert hluta hér
og þar sem hluti af teymi. Mig langaði að prófa að gera þetta einn,
hönnun, skoða alla virkni, útgáfuferla og sjá til þess að þetta kæm-
ist alla leiðina inn á App Store,“ segir hann. Það tókst, en appið
verður innan tíðar fáanlegt fyrir Android-síma.
Hægt er að stilla appið þannig að það minni mann á að taka
örhlé á til dæmis fimmtán mínútna fresti og/eða lengri hlé á
klukkustundarfresti. En hvað felst í örhléi? „Það snýst bara um að
standa upp í fimmtán sekúndur og teygja úr sér. Það skiptir líka
miklu máli að breyta um fókus. Maður er alltaf að rýna á tölvuskjá
eða skrifblokk, eitthvað sem er nálægt. Það er því gott að líta að-
eins frá sér og æfa augun í leiðinni.“
Taktu þér hlé
Hægt er að taka örhlé á til dæmis fimmtán mín-
útna fresti og/eða lengri hlé á klukkustundarfresti.
Nýtt íslenskt app hjálpar kyrrsetufólki að
muna eftir því að standa upp og hreyfa sig.
Bragi
Bergþórsson.
Skemmtileg frétt um hljóm-
sveitina Trúbrot var á baksíðu
Morgunblaðsins 7. desember
1969. Sagt er frá ævintýrum
sveitarinnar og svokallaðs Trú-
brotsmóra. Greint er frá því að
draugurinn hafi gert mörg
prakkarastrik sem hafi komið
hljómsveitinni misjafnlega vel.
Eitt atvikið átti sér stað á
tónleikum í Laugardalshöll þeg-
ar móri sló út söngkerfið og
orgelið þannig að „auðvitað fór
allt í kös“.
Í blaðinu stendur að móri
hafi einnig sýnt á sér betri hlið-
ar eins og þegar sveitin fór til
London í upptökur. „Hljóm-
sveitin þurfti að fara í hasti um
borð í flugvélina og gleymdi þá
í flughöfninni lítilli öskju sem í
voru sérstakar bjöllur sem átti
að nota í upptöku á einu lag-
inu. Tóku þau ekki eftir þessu
fyrr en komið var að upptöku í
stúdíói í London og slepptu því
bjöllunum í upptökunni. En
þegar þau hlustuðu síðan á
upptökuna af segulbandi heyrð-
ist í bjöllunum á réttum stað.
Trúbrotsmóri hafði séð um
bjöllurnar.“
GAMLA FRÉTTIN
Trúbrots-
móri á ferð
Hljómsveitin Trúbrot árið 1968. Karl Sighvatsson, Rúnar Júlíusson, Shady
Owens, Gunnar Jökull Hákonarson og Gunnar Þórðarson.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Billy Idol
tónlistarmaður
James Marsters
leikari
Hörður Björgvin Magnússon
knattspyrnumaðurSkeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Golf Model 2945
Lengd 216 cm. Leður ct.10. Verð 299.000,-
▲
▲ Relevé Model 2572
Lengd 281x223cm. Leður ct.15
Verð 629.000,-
▲ Savoy Model V458
Lengd 223 cm. Leður ct.15. Verð 399.000,-
▲ Dado Model 2822
Lengd 214 cm. Leður ct.10. Verð 299.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Italia
Skoðið nýju vefverslun okkar
casa.is