Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.06.2017, Page 22
4 skammtar
Grænmetis, vegan, glúten- og
mjólkurlaust
1 dl sólblómafræ
1 msk. kaldpressuð kókosolía
1 msk. wasabi-paste eða fínt rifin
piparrót
½ - 1 msk. akasíuhunang eða
kókospálmasíróp
2 stórar rauðrófur
2 stórar gulrætur
1 stk. sítrónugras
safi úr og raspaður börkur af 1 líf-
rænni sítrónu
1-2 tsk. flögusalt
nýmalaður pipar
½ dl lífræn repjuolía; þessi íslenska
frá Vallanesi er alveg kjörin
Þurrristaðu sólblómafræin á sjóð-
heitri pönnu og hrærðu stöðugt í
þeim á meðan. Þegar fræin taka
lit, bættu við kókosolíunni, wasabi
eða piparrót og hunangi. Hrærðu
vel saman og fjarlægðu svo strax af
pönnunni yfir á disk og kældu.
Rífðu rauðrófur og gulrætur í
fínar ræmur, ef þú átt þannig rif-
járn, annars á gamla mátann.
Berðu sítrónugrasið með ein-
hverju þungu, eða bara með ham-
ar, og taktu grófu ystu blöðin af og
með beittum hníf skerðu mjög
fínt mýksta partinn af grasinu.
Mundu að njóta ilmsins!
Í salatskál blandarðu sítrónu-
grasi, olíu, sítrónusafa og -berki
með rifnum rauðrófum og gulrót-
um, salti og pipar.
Toppaðu með ristuðu wasabi-
fræunum.
Gott með feitum grilluðum
fiski, köldu hvítu eða með steikt-
um portobello-sveppum.
Hrásalat með rauðrófum og
wasabi-ristuðum fræjum
2 skammtar
Fæst í Yogafood
6 stk. klakar
3 tsk. lífrænt instant kaffiduft
4 dl heslihnetumjólk
2 hnífsoddar vanilluduft
3-4 dropar vanillustevía
Settu allt í blandara og keyrðu hann í 1-2
mínútur.
Gott að njóta á hlýjum sumardegi.
ÁBENDING
Bættu við 2 tsk. af heslihnetusmjöri í
blandarann.
Toppaðu þetta með uppáhaldsísnum en þá
er óþarfi að vera líka með klakana í glasinu.
Ískaffi Go Nuts
Ég sæki sjálf í staði þar sem ég get fengið mérgott að borða án þess að fara í massa sykursjokk eða fara þaðan með uppblásinn
maga og þau óþægindi sem því fylgir, segir Þor-
björg Hafsteinsdóttir. Hana hafði dreymt um að
komast á huggulegan veitingastað hér á landi þar
sem fólk getur sest niður og gætt sér á bragðgóðum
mat og ljúffengum drykkjum eða tekið með sér á
hlaupum.
„Þess vegna bjó ég bara til svona stað sjálf, þar sem
maturinn, hvort sem það eru pottréttirnir, súpurnar,
kökurnar eða sjeikarnir, er algjörlega laus við glúten
og viðbættan sykur. Ég vil að mínir gestir standi upp
frá borðum nærðir með orkuna og jafnvægið úr matn-
um. Ekkert bull í gangi hér!“
Yogafood var opnaður í nóvember 2016 og er á hót-
elinu Oddsson í JL-húsinu vestur á Granda og er op-
inn alla virka daga frá kl. 7-17. Auk þess að vera
menntaður hjúkrunarfræðingur, næringarþerapisti,
markþjálfi og jógakennari hefur Þorbjörg ritað bæk-
ur um heilbrigðan lífsstíl og hollt mataræði. Að henn-
ar sögn er Yogafood meira en bara veitingastaður.
Hann byggist á brennandi ástríðu Þorbjargar fyrir
heilsusamlegum lífsstíl.
Matarpakkar fyrir fólk í heilsuátaki
„Yogafood mun bjóða upp á matarpakka í fyrirtæki
og einnig að hanna og þjónusta heilsuátak starfsfólks,
til dæmis með djúskúrum og námskeiðum,“ segir Þor-
björg um framtíðaráætlanir staðarins. „Við verðum
með úrval af vörum sem þjóna heilbrigðum og meðvit-
uðum lífsstíl og ásetningi og einnig verðum við með
fræðslu og námskeið fyrir áhugasama. Þetta mun allt
saman gerast á nýja staðnum okkar sem við opnum
snemma í haust.“
Nafn staðarins dregur nafn sitt af því að jógafræðin
eru fléttuð inn í matseðilinn en boðið er upp á ýmsa
drykki og heilsuskot sem eiga að næra orkustöðvar
líkamans. Staðurinn gefur sig ekki út fyrir að vera
vegan en lítið er þó notað af dýraafurðum. Að sögn
Þorbjargar er áhersla lögð á næringarríkan mat úr
fersku hráefni sem er bæði bragðgóður og fjöl-
breyttur. Hráefnið er að mestu lífrænt og um 85-90%
réttanna henta þeim sem eru vegan.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
vill að fólk standi upp frá
borðum endurnært en
ekki uppblásið.
Ljósmynd/Ólafur Eggertsson
Heilsusamlegur matur
Yogafood er nýlegur veitingastaður sem býður upp á mat sem er án við-
bætts sykurs, litarefna, glútens og mjólkur. Að sögn Þorbjargar Hafsteins-
dóttur er Yogafood eini staðurinn á Íslandi sem er alveg glútenlaus.
Nína Ingólfsdóttir nina@mbl.is
MATUR Á sumrin er sérstaklega mikilvægt að muna eftir vatninu.Þegar ferðast er til heitari landa þarf líka að huga að því að fá
nóg af salti og steinefnum svo við verðum ekki þreytt.
Vökvum okkur á sumrin
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.6. 2017
Ca. 10 stykki
200 g ristaðar saltaðar jarðhnetur (pea-
nuts)
500 g mjúkar döðlur
½ tsk. vanilluduft
4 msk. kakóduft (hrátt)
1 msk. kókosolía
Settu allt í matvinnsluvél með hníf eða í
góðan blandara. Það getur verið að þú
verðir að slökkva og opna lokið og losa
deigið og kveikja á aftur nokkrum sinn-
um. Þetta á að verða mjúkur massi.
Annaðhvort mótarðu kúlur úr deiginu
eða fletur massann út á fat (best að
hafa bökunarpappír bæði undir og yfir
deiginu og þrýsta massanum niður með
flötum lófa) ca. 10x20 cm. Kæla vel og
skera í hæfilega stór stykki. Það er líka
leyfilegt að bræða 85% dökkt súkkulaði
og hella yfir og kæla aftur. Njóta með
góðum bolla af tei, t.d. vanillutei.
„Snickers-
nammilaði“
Ljósmyndir/Martin Dyrløv