Morgunblaðið - 01.07.2017, Page 8

Morgunblaðið - 01.07.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017 Hindberjajógúrt Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is NÝ AFURÐ FRÁ BIOBÚ! Sveitarfélögin í landinu eru meiraog minna stórkostlega skuld- sett. Samkvæmt nýjustu samantekt- inni á vef Sambands íslenskra sveit- arfélaga, sem er fyrir árið 2015, eru skuldir og skuldbindingar þeirra 579 milljarðar. Rekstrarniðurstaðan var neikvæð um 2 milljarða sama ár. Reksturinn hefur farið heldur batn- andi með bættu ár- ferði en skuldahald- inn er mikið vandamál, meðal annars í Reykjavík.    Þessar stað-reyndir virðast þó ekki hafa nokkur áhrif á kjörna fulltrúa í Reykjavík eða annars staðar á höfuðborg- arsvæðinu.    Borgarlínan, sem líklega yrðiframkvæmd upp á 100-200 milljarða króna, er eitt helsta áhugamál sveitarstjórnarmanna á svæðinu og undirbúningur hennar er langt kominn.    Á sama tíma samþykkja sveit-arfélögin að fara út í undirbún- ing vegna fluglestar sem skuli aka í göngum djúpt undir höfuðborg- arsvæðinu. Kostnaðaráætlun flug- lestar er 88 milljarðar, fyrir fram- úrkeyrslu auðvitað.    Undirbúningurinn á að kosta 1,5milljarða króna og rann nán- ast möglunarlaust í gegnum borg- arráð í vikunni. Einn borgarfulltrúi, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, reyndi þó að hreyfa andmælum og sat hjá. Það gerði hún á þeirri for- sendu að ekki liggi fyrir hver kostn- aður Reykjavíkurborgar verði af þessum undirbúningi.    Hvernig má það vera að stór-skuldugt sveitarfélag ani út í slíka vitleysu án þess að vita hvað hún muni kosta? Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir Fluglestin og fjármálaóreiðan STAKSTEINAR Veður víða um heim 30.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 12 léttskýjað Akureyri 13 skýjað Nuuk 8 léttskýjað Þórshöfn 12 heiðskírt Ósló 21 heiðskírt Kaupmannahöfn 15 skúrir Stokkhólmur 18 heiðskírt Helsinki 19 skýjað Lúxemborg 17 skúrir Brussel 20 léttskýjað Dublin 14 skýjað Glasgow 15 skýjað London 20 skýjað París 17 þrumuveður Amsterdam 18 súld Hamborg 15 rigning Berlín 17 skúrir Vín 26 þrumuveður Moskva 18 skýjað Algarve 27 heiðskírt Madríd 21 skýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 40 heiðskírt Winnipeg 17 skýjað Montreal 17 þoka New York 27 léttskýjað Chicago 25 skýjað Orlando 31 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 1. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:07 23:58 ÍSAFJÖRÐUR 1:42 25:32 SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20 DJÚPIVOGUR 2:23 23:40 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Margt bendir til þess að berja- spretta verði góð í ár. Hlýtt veð- urfar í apríl og maí gefa von um gott berjaár. Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berjaáhugamaður, segir það helst til snemmt að spá um framtíð- ina. „Talið er að maímánuður sé áhrifavaldur í berjasprettu að- albláberja. Kuldar og jafnvel næt- urfrost fyrir norðan í júní gætu sett strik í reikninginn þar.“ Bjartsýnt berjafólk Sveinn Rúnar segir almenna bjartsýni ríkja hjá berjafólki. Sjálf- ur fylgist hann með berjalynginu í Borgarfirði og Elliðaárdalnum í Reykjavík. Hann segir sætukopp- ana á lynginu sem síðar verða að berjum hafa byrjað að blómstra í byrjun júní. „En þrátt fyrir að allt líti vel út núna þarf lítið til að hlut- irnir breytist. Ég hef oft velt því fyrir mér þegar sætukopparnir hverfa af lynginu hvort sterkir vindar hafi feykt þeim í burt eða mýs og fuglar étið þá.“ Ef ekkert óvænt kemur upp má byrja að stinga upp í sig berjum í byrjun ágúst sem er tveimur til þremur vikum fyrr en í meðalári segir Sveinn Rúnar. Hann bendir á að berjatímabilið hafi lengst og nú sé jafnvel hægt að tína ber frá miðjum ágúst fram í miðjan sept- ember. Mörg góð berjalönd eru um allt land. Böggvisstaðafjall er eitt af þeim. Fjallið er friðlýstur fólk- vangur með gjöfulu berjalandi. Sveinn Rúnar segir þar ríkja heið- ursmannasamkomulag um að að- albláberin séu handtínd og berja- tínur sjáist ekki á svæðinu. „Það er hægt að fara á fjallið í berja- tínslu og koma svo aftur viku seinna og þá líta berjalöndin út eins og aldrei hafi verið tínt á þeim.“ Sætukoppar á berjalyngi byrjaðir að blómstra í júní  Gott útlit  Hlýindi í apríl og maí góð fyrir berjasprettu Berjamór Sveinn Rúnar Hauksson. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt erlendan karlmann í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn þremur konum sömu nóttina, á hóteli á Suðurlandi þar sem þau höfðu öll verið á árshá- tíð fyrirtækja sem þau unnu hjá. Maðurinn er fundinn sekur um að hafa nauðgað tveimur kvennanna og áreitt þá þriðju kyn- ferðislega. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 13. febrúar. Konurnar lágu allar sofandi í rúmum sínum á hótelinu þegar maðurinn hóf að brjóta gegn þeim. Tvær þeirra vöknuðu við að mað- urinn var að hafa samræði við þær en sú þriðja þegar hann strauk læri hennar innan klæða. Í dómnum er tekið fram að ásetningur mannsins til brotanna hafi verið einbeittur og að framburður hans hafi ekki verið að öllu leyti skýr. Öðru máli gegni um framburð brotaþolanna sem hafi verið skýr og stöðugur frá upp- hafi. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu að maðurinn skyldi sæta fangelsi í fjögur ár. Þá er honum gert að greiða tveimur kvennanna sem hann nauðgaði, 1,5 milljónir króna í miskabætur og þeirri þriðju, sem hann áreitti, 800.000 krónur. Þá er honum gert að greiða allan sakarkostnað, sem samtals nam um 4,3 milljónum króna. Dæmdur fyrir tvær nauðganir og áreitni  Fékk fjögurra ára fangelsisdóm Ætla má að kostn- aður Viðlaga- tryggingar Ís- lands vegna vatnsflóðs og skriðufalla á Eski- firði og Seyðisfirði um síðustu helgi verði á bilinu 80- 100 milljónir króna. Matsmenn hafa nú lokið við skoðun á vettvangi, en upplýsingar liggja fyrir um að 20 hús hafi skemmst og innbú og lausafé á átta stöðum. Viðlagatrygging Íslands (VTÍ) bætir tjón sem verður af völdum skriðufalla og vatnsflóða skv. lögum. Kostnaður vegna ráðstafana sem gerðar voru til að hindra frekara tjón fellur einnig undir bótaskyldu. Strax sl. laugardag hófu óháðir matsmenn mat á tjónum sem urðu í atburðinum. Gera má ráð fyrir að endanleg nið- urstaða mats þeirra liggi fyrir eftir miðjan júlímánuð og verður hún þá kynnt eigendum þeirra fasteigna sem um ræðir. sbs@mbl.is 100 milljóna króna tjón Flóð Aðgerðir á Eskifirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.