Morgunblaðið - 01.07.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 01.07.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017 Sprell Ronald og Einsi brugðu á leik í eldhúsinu, enda góð leið til að halda sönsum þegar eldað er margrétta fyrir 75 manns. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ etta var mikil veisla fyrir bragðlaukana og lukk- aðist vel. Það komust færri að en vildu og það var setið í hverju sæti, alveg smekkfullur staður, 75 manns. Þetta er þriðja árið í röð sem við höldum Michelin-matarveislu, en þetta er í raun „pop-up“-viðburður, sem leggst mjög vel í fólk,“ segir Sigurjón Aðalsteinsson viðburða- stjóri um Michelin-kvöldverð sem boðið var upp á í Vestmannaeyjum um liðna helgi á veitingastaðnum Einsa kalda. „Við fengum til okkar tvo kokka frá Amsterdam, þá Arjan Speelman og Ronald Oud, og þeir matreiddu ofan í mannskapinn ásamt Einsa kalda, Einari Birni Árnasyni og hans fólki. Arjan starfar sem yfirkokkur á veitingastaðnum Ciel blue sem er tveggja Michelin-stjörnustaður og talinn einn af betri veitingastöðum Hollands, en Ronald er fyrrum yf- irkokkur þar.“ Einsi kaldi kynntist kokk- unum úti í Amsterdam Sigurjón segir að allt eigi þetta upphaf sitt í því að fyrir tveimur ár- um fór Einsi kaldi, kokkur og eig- andi fyrrnefnds veitingastaðar í Vestmannaeyjum, til Amsterdam að dæma þar í kokkakeppni hjá Jan Van As, innflutningsfyrirtæki á lúx- us afurðum. Þá keppni vann Arjan Speelman yfirkokkur Ciel Bleu, en veitingastaðurinn er á fimm stjörnu hótelinu Okura. „Þar eru fjórir veitingastaðir sem allir eru með Michelin-stjörnur, sem er einstakt í heiminum. Einsi kaldi kynntist þessum kokkum, Ar- jan og Ronald, í þessari ferð, en þeir eru ótrúlegar kanónur, hafa unnið nánast allt sem hægt er að vinna í matreiðslukeppnum. Veitingastaðir um allan heim keppast um að fá slíka kokka til sín, svo við erum heldur Michelin-stjörnukokkar töfruðu fram góðgæti fyrir Eyjafólk Undurfagur og gómsætur matur var reiddur fram fyrir 75 gesti á Einsa kalda um liðna helgi. Meistarakokkar sáu um að matreiða en þeir leit- uðu meðal annars fanga úti í guðsgrænni náttúr- unni í Eyjum. Ljósmyndir/Ivo Geskus Úti Einsi fór með Arjanog Ronald út í náttúruna til að tína jurtir fyrir kvöldverðinn. Með þeim er þjónninn Tinna. betur ánægð að hafa notið meistara- takta þeirra í matargerðinni fyrir þennan viðburð í Eyjum um síðustu helgi.“ Michelin-kokkarnir kaupa all- an humar frá Vestmannaeyjum Sigurjón segir að þeir Arjan og Ronald kaupi frá Vestmannaeyjum allan þann humar sem þeir noti í matargerðinni á veitingastaðnum Ciel Bleu í Amsterdam. „Þeir vildu kynnast umhverfinu sem þeir kaupa allt sitt lúxus hráefni frá, meðal annars frá Ítalíu, Íran, Frakklandi og víðar, og til Eyja komu þeir í fyrra vegna humarsins sem þeir kaupa frá Vinnslustöðinni, eitthvað sem er stór rós í hnappagat- ið. Þeir komu til að afla efnis í mat- reiðslubók sem þeir gáfu út um síð- ustu jól, tóku myndir fyrir bókina en bæði þá og núna var með í för mikils metinn ljósmyndari í Hollandi, Ivo Geskus. Þeir urðu svo hrifnir af Eyjum að þeir vildi ólmir koma aftur, sem er okkar gæfa og ástæða fyrir því að við gátum boðið upp á Michelin- kvöldverðinn um liðna helgi. Þar var boðið upp á sex rétti, útlendu kokk- arnir sáu um fimm þeirra en Einsi kaldi sá um einn.“ Vildu íslenskar villtar jurtir „Þeir komu með alls konar hrá- efni frá Hollandi, meðal annars hol- lenskar rækjur, en þeir blönduðu þessu saman við íslenskt hráefni, þorsk og humar meðal annars. Þeir sóttu sjávarfang í fjöruna til matar- gerðarinnar og tíndu líka alls konar villtar jurtir í Eyjum til að nota í matinn. Meðal annars var boðið upp á humar-risotto og humar-tartar, en þetta bráðnaði allt í munni, alveg eð- algott.“ Sigurjón segir að meirihluti gesta á kvöldverðinum hafi verið Eyjafólk, en nokkrir kokkar úr Reykjavík hafi gert sér ferð út í Eyj- ar sem og aðrir sælkerar. „Gaman er að segja frá því að elsti gestur kvöldsins, Gyða Arnórs- dóttir, hélt upp á 95 ára afmælið sitt. Páll Magnússon, sá um veislustjórn og fórst honum það afar vel eins og hans er von og vísa. Vert er að taka fram að án þrautreyndra þjóna, sér- staklega Lofts Loftssonar, Tinnu og Þóru Sigurjónsdóttur, hefði fram- kvæmd á jafn flóknum kvöldverði, þar sem sérvalin vín voru með hverj- um rétti, verið illframkvæmanleg.“ Að lokum má geta þess að Einsi kaldi er kokkur íslenka karlalands- liðsins í fótbolta og vill hann meina að án hans aðkomu hefði landsliðið komið mun fyrr heim frá Frakklandi í fyrra. Góðgæti Það vantaði ekkert upp á fegurð réttanna, hér er kaldur leturhumar með kaffír límónu, súkkati og engifer. Glatt á hjalla Stemningin var góð í salnum og fólk skemmti sér vel. Michelin-meistarar Arjan Speelman, t.v., yfirkokkur á Ciel Bleu og Ronald Oud, fyrrverandi yfirkokkur á sama stað. Namm Girnilegar rækjur með lit- ríkum íslenskum villtum jurtum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.