Morgunblaðið - 01.07.2017, Side 18

Morgunblaðið - 01.07.2017, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017 Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 180.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 90m2.. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma 1. júlí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 102.39 102.87 102.63 Sterlingspund 132.71 133.35 133.03 Kanadadalur 78.65 79.11 78.88 Dönsk króna 15.696 15.788 15.742 Norsk króna 12.19 12.262 12.226 Sænsk króna 12.017 12.087 12.052 Svissn. franki 106.76 107.36 107.06 Japanskt jen 0.9094 0.9148 0.9121 SDR 142.32 143.16 142.74 Evra 116.74 117.4 117.07 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 142.6323 Hrávöruverð Gull 1243.25 ($/únsa) Ál 1897.0 ($/tonn) LME Hráolía 47.39 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Gistinætur á hótelum í maímánuði voru 303.000 sem er 7% aukning mið- að við sama mánuð á síðasta ári, sam- kvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að gistinætur erlendra gesta hafi verið 87% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum. Þeim fjölgaði um 6% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 15%. Flestar gistinætur á hótelum í maí voru á höfuðborgarsvæðinu, eða 176.400, sem er 1% aukning miðað við maí 2016. Um 58% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu. Gistinætur á Suðurnesjum voru 20.400, sem er 65% aukning frá fyrra ári, og þá var 26% aukning á Norður- landi þar sem gistinætur voru 28.800. Gistinætur á Vesturlandi og Vest- fjörðum voru 15.600, sem er 1% sam- dráttur frá fyrra ári. Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 7% í maí STUTT Gísli Rúnar Gíslason gislirunar@mbl.is Fjöldi lögmanna keppist nú við að fá prófmál fyrir Hæstarétti áður en Landsréttur tekur til starfa 1. janúar næstkomandi, en þá mun leiðin að málflutningsréttindum lengjast tölu- vert við komu millidómstigs. Til þess að öðlast málflutningsrétt- indi fyrir Hæstarétti þurfa lögmenn að hafa verið héraðsdómslögmenn í fimm ár og flutt 30 mál fyrir héraðs- dómi eða sérdómstóli. Auk þess þurfa lögmenn að sýna fram á hæfi sitt til að öðlast réttindin með því að þreyta prófraun, sem felst í munnlegum flutningi fjögurra mála sem flutt eru í Hæstarétti fyrir fjölskipuðum dómi, það er fimm eða sjö dómurum. Takmörkuð gæði Yfirleitt eru dómendur þrír og fjöl- skipaður dómur því tiltölulega óal- gengur. Þannig var dómur aðeins fjölskipaður í 71 af 356 munnlega fluttum málum fyrir Hæstarétti árið 2016, samkvæmt ársskýrslu réttar- ins. Það fer eftir ákvörðun forseta Hæstaréttar hversu margir dómarar taka þátt í meðferð máls fyrir dómi. Að sögn lögmanna sem Morgun- blaðið ræddi við sitja þeir héraðs- dómslögmenn sem uppfylla skilyrði til að flytja prófmál fyrir Hæstarétti um dagskrá réttarins og hafa sam- band við þá hæstaréttarlögmenn sem eiga mál fyrir fjölskipuðum dómi í von um að fá það að láni. Þá lýstu hér- aðsdómslögmenn sem nú bíða eftir prófmálum því að allur gangur væri á því hvort að hæstaréttarlögmenn séu reiðbúnir til að lána mál sín, en auk þess er það undir skjólstæðingum þeirra komið hvort þeir megi yfir höf- uð lána málið. „Maður heyrir það frá ungum lög- mönnum að þeim finnst erfitt að fá mál lánuð og maður heyrir það frá þessum eldri að þeim finnst mjög hvimleitt að þurfa reglulega að eiga löng samtöl um það hvort einhver mál séu til láns eða ekki,“ segir Reimar Pétursson, formaður Lögmanna- félags Íslands. Nýtt fyrirkomlag Nýjar reglur um öflun málflutn- ingsréttinda á æðri dómstigum taka gildi um áramótin við stofnun Lands- réttar. Til að öðlast málflutningsrétt- indi fyrir Landsrétti þurfa lögmenn að hafa haft réttindi til að flytja mál fyrir hérðasdómi í fimm ár og hafa flutt 25 mál. Þá þarf að flytja fjögur prófmál fyrir hinum nýja rétti, en öll mál sem þar verða flutt geta verið prófmál. Þar með verður sá flösku- háls sem nú er til staðar úr sögunni og héraðsdómslögmenn þurfa ekki að sitja um dagskrá Hæstaréttar í von um fjölskipaðan dóm, og hæstarétt- arlögmenn og skjólstæðinga sem vilja lána mál. Til að öðlast málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti undir hinu nýja fyrirkomulagi þurfa lögmenn að hafa haft málflutningsréttindi fyrir Landsrétti í þrjú ár auk þess sem þeir þurfa að hafa flutt ekki færri en 15 mál munnlega. Alls 56 eru á skrá yfir lögmenn sem hafa þegar flutt eitt eða fleiri prófmál fyrir Hæstarétti, en fyrirséð er að ekki munu allir geta klárað fjögur mál fyrir komu Landsréttar. Prófmál þeirra fara þó ekki í vaskinn þar sem að sérstakar reglur gilda um þá sem hafa þegar hafið flutning prófmála, en þeir fá eins konar afslátt í sam- ræmi við fjölda fluttra prófmála. Þannig fá þeir sem lokið hafa þremur prófmálum strax málflutningsrétt- indi fyrir Landsrétti og þurfa að flytja fjögur prófmál þar til að öðlast málflutningsréttindi fyrir Hæsta- rétti. Fjölgun vottorða frá sýslumanni Sá tími sem það tekur lögmenn að verða sér úti um og flytja prófmál getur verið mjög misjafn. Í því sam- hengi má nefna á að sá elsti sem öðl- ast hefur málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti var sjötugur en sá yngsti, sem nýverið öðlaðist réttindin, var 29 ára. Samkvæmt tölum frá sýslumanni hefur útgefnum vottorðum þess efnis að hérðasdómslögmenn uppfylli skil- yrði til að flytja prófmál þó fjölgað umtalsvert undanfarið. Árin 2013 og 2014 voru útgefin vottorð alls 15 en árin 2015 og 2016 voru útgefin vott- orð 44. Undanfarin fimm og hálft ár hafa 77 vottorð verið gefin út en þar af voru 26 gefin út í fyrra. Keppast um prófmál fyrir Hæstarétti Réttur 56 hafa hafið ferli til að öðlast málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti. Bitist um prófmál » Undanfarin fimm ár hafa 77 fengið vottorð frá sýslumann þess efnis að þeir uppfylli skil- yrði til að þreyta prófraun. » Á sama tíma luku 55 lög- menn prófraun fyrir Hæsta- rétti. » Alls 56 lögmenn hafa hafið ferli til að öðlast málflutnings- réttindi fyrir Hæstarétti.  Vilja öðlast réttindi áður en Landsréttur tekur til starfa Morgunblaðið/Þórður Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Reginn innleysti að líkindum tæp- lega 800 milljónir króna í söluhagnað við sölu á 50% hlut í 201 Miðbæ til GAMMA, en söluverðið nam 1,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tölvupósti sem greiningardeild Arion banka sendi viðskiptavinum markaðsviðskipta í kjölfar kaupanna, sem tilkynnt voru á fimmtudaginn. 201 Miðbær á byggingarrétt á tveimur lóðum sunnan Smáralindar, í hverfinu sem hefur gengið undir nafninu Smárabyggð. Bygging- armagnið á lóðunum er alls 30.622 brúttó íbúðarfermetrar. Eftir söluna á Reginn rúmlega 14 þúsund fermetra af byggingarrétti á Smárabyggðar svæðinu, sem er að hluta íbúðarhúsnæði en að mestu atvinnuhúsnæði. Arion banki segir að meðal annars af þeim sökum sé enn óvíst hvert virði byggingarrétt- arins sé sem félagið heldur eftir. „En ef við gefum okkur að hann sé helm- ingi minna virði en rétturinn sem félagið var að selja frá sér er hann um 560 milljóna króna virði,“ segir í nótu bankans. Byggingarréttur Regins á svæð- inu var bókfærður á 870 milljónir við lok fyrsta ársfjórðungs, þ.e. áður en salan fór fram. Greiningardeild Arion banka áætlar að miðað við téð viðskipti mætti meta bókfærða bygg- ingarréttinn á um 1,8 milljarða króna. Fram kom í tilkynningu Regins til Kauphallar að ekki hafi verið ákveðið hvenær uppbygging á lóðum í eigu þess á svæðinu hefjist. Lóðirnar séu næstar Smáralind og munu aðgerðir á þeim lóðum hafa mestu tíma- bundnu áhrifin á flæði og umferðar- mál næst Smáralind. Morgunblaðið/Ernir Fasteignir Reginn á Smáralind. Reginn innleysti ágætan hagnað ● Arion banki greiddi í gær upp eftir- stöðvar skuldabréfs sem gefið var út til Kaupþings sem hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda til losunar fjármagnshafta. Höfuðstóll skuldabréfsins við útgáfu var 747,5 milljónir bandaríkjadala, eða um 97 milljarðar króna á gengi þess tíma. Eftirstöðvarnar sem Arion banki greiddi í gær voru að nafnvirði 100 milljónir dala, jafnviðri um 10 milljarða íslenskra króna. Morgunblaðið/Eggert Arion banki greiðir upp skuld við Kaupþing

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.