Morgunblaðið - 01.07.2017, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 01.07.2017, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íslenskumstjórnvöldumvar mikill vandi á höndum í peningamálum í upphafi þessa ára- tugar. Gríðarlegar upphæðir voru læstar inni í landinu og spurningin var hvernig losað yrði um þrýstinginn þannig að það hefði sem minnst áhrif á gengi krónunnar og gjaldeyr- isforða Seðlabankans. Ákveðið var að tappa þrýstingnum af með því að bjóða fjárfestum, sem vildu bjóða fram gjaldeyri, krónur á afslætti. Var þetta kallað fjárfestingaleið Seðla- banka Íslands. Jafnmikið átti að koma inn og færi út. Í vikunni birtist svar Seðla- bankans við fyrirspurn Björns Levís Gunnarssonar, þing- manns Pírata, til fjármála- og efnahagsráðherra um fjárfest- ingaleiðina. Í svarinu kemur fram að í 21 útboði fjárfestingaleiðar frá febrúar 2012 til 2015 gerðu fjár- festar 1.282 tilboð. 1.074 til- boðum var tekið og var upp- hæðin 550 milljónir evra. Jafnframt þurftu fjárfestarnir að selja jafnháa upphæð erlends gjaldeyris og tekin var í útboð- inu. Í þessum útboðum komu því 1.100 milljónir evra til landsins í útboðunum eða 206 milljarðar króna. Þátttökunni fylgdu skuld- bindingar af ýmsum toga. 47% af peningunum, sem komu inn í landið með þessum hætti, fóru að því er fram kemur í svarinu í kaup á skuldabréfum, 40% til kaupa á hlutabréfum, 12% til kaupa á fasteignum og 1% í kaup á hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða. 794 innlendir fjárfestar stóðu að baki 35% fjárfestingarinnar, segir í svarinu, og 280 erlendir að baki 65% fjárfestingarinnar. Þar eru erlend félög í eigu innlendra að- ila talin innlendir fjárfestar. Í svarinu segir að þátttakan í útboðinu hafi að mestu verið frá aðildarríkjum OECD. Síðan kemur fram að frá svæðum, sem skilgreind séu sem lágskatta- svæði samkvæmt lista fjármála- og efnahagsráðuneytisins, hafi sjö lögaðilar í meirihlutaeigu ís- lenskra aðila tekið þátt í ein- hverju af 21 útboði fjárfesting- arleiðarinnar frá 2012 til 2015 með 13 milljónir evra alls. Þá upphæð má tvöfalda vegna skuldbindingarinnar, sem nefnd er hér að ofan, um að skipta jafnhárri upphæð og tekið var í útboðinu. Þar var sem sagt um að ræða 26 milljónir evra eða tæplega fimm milljarða króna. Við það má bæta 12 lögaðilum í meirihlutaeigu íslenskra aðila frá Lúxemborg, Kýpur og Möltu sem tóku þátt í fjárfestingar- leiðinni með 82 milljónir evra eða 15,4 milljarða króna. Í svarinu kemur ekki fram um hvaða lágskattasvæði á lista fjármála- og efn- hagsráðuneytis er að ræða. Löndin og svæðin á listanum eru 29, allt frá An- dorra til Vanúatú. Þar á milli eru kunnugleg nöfn úr umræðunni um skattaskjól á borð við Bresku-Jómfrúaeyjar og Panama. Skattaskjól eru þekkt fyrir að fela slóð peninga og gera erfitt fyrir að greina uppruna þeirra. Lúxemborg, Kýpur og Malta eru ekki á þess- um lista, en eru þekkt fyrir ívilnanir í skattamálum, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ströng skilyrði fylgdu fjárfest- ingaleiðinni, þar á meðal um peningaþvætti og í svari Seðla- bankans kemur fram að mat hans sé að almennt hafi verið farið eftir skilmálunum, þótt ekki sé hægt að útiloka að „í einhverjum tilvikum hafi ekki verið farið í einu og öllu sam- kvæmt ákvæðum“ þeirra. Það hefur kostað mikla fyrirhöfn að rekja slóð allra þeirra peninga, sem flæddu inn í landið eftir fjárfestingaleiðinni á þessum tíma. Í einni spurningunni er spurt hver hafi verið upprunalönd þessa gjaldeyris, hver fjöldi fjárfestinga hefði verið frá hverju þeirra og hver heildar- fjárhæðin hefði verið. Seðla- bankinn kýs að svara ekki þeirri spurningu, en sundurliðar þess í stað fjárfestana eftir búsetu, sem auðvitað er allt annar hlut- ur. Sundurliðunin er ef til vill fróðleg, en fróðlegra hefði verið að fá svar við spurningunni og fá að vita hvar peningarnir voru geymdir. Ekki hefði síður verið fróð- legt að fá að vita hverjir komu með peninga inn í landið með af- sláttarleiðinni, en um það kveðst Seðlabankinn múlbund- inn að lögum. Í svari Seðlabankans kemur fram að almennt ættu útboðin „að hafa haft jákvæð áhrif á gengi krónunnar á tímabili þeg- ar það stóð mjög veikt“. Ekki er farið út í hvaða áhrif þessi útboð höfðu á íslenskt efnahagslíf. Í svari Seðlabankans kemur fram að samtals hafi afslátturinn, sem fjárfestar fengu í útboð- unum, numið 31 milljarði króna. Hlutur íslensku fjárfestanna í því nemur þá tæpum 11 millj- örðum króna. Fjárfestingaleiðin skekkti því samkeppni í landinu. Fyrir atbeina Seðlabankans fengu þeir fjárfestar, sem fóru fjár- festingaleiðina, meira bolmagn í formi aukakróna en keppinaut- ar þeirra sem áttu sína peninga á Íslandi. Í svarinu kemur fram að 12% heildarupphæðarinnar hafi farið í fasteignir og má ugg- laust færa rök að því að þar hafi loft bæst í fasteignabóluna. Svar Seðlabankans er um ýmislegt upplýsandi, en mörgu er þó enn ósvarað. Spurningar og svör um aflandskrónur og aukakrónur} Uppruni peninganna M eðal þess sem sprottið hefur upp í kringum ferðamanna- sprenginguna hér á landi eru fræðslusýningar ýmiss konar. Væri ekki fyrir alla ferðamennina væru engar líkur til að upp- bygging slíkrar starfsemi hefði orðið að veruleika. Má segja að hún sé ein af bestu birtingarmyndum hinnar ört vaxandi at- vinnugreinar og hvernig hún hefur jákvæð áhrif á samfélagið í heild. Því miður hef ég ekki haft tök á að skoða nýja eldfjalla-, jarðskjálfta- og jarðfræði- sýningu sem nú hefur verið sett upp á Hvolsvelli. Sagt er að hún sé afar vel heppnuð. Þá er skömm frá því að segja að ég hef heldur ekki sótt Eldheima í Vest- mannaeyjum heim, en þangað hyggst ég arka um leið og ég fæ tækifæri til að stíga næst fæti á Heimaey. Hins vegar hef ég á síðustu vikum haft tækifæri til að kynna mér tvær fræðslusýningar í Reykjavík. Aðra spánnýja en hin var tekin í gagnið árið 2014. Þarna er um að ræða nýja jöklasýningu í Perlunni og Hvalasafnið á Granda. Fyrrnefnda sýningin hefur verið sett upp í einum af tönkum Perlunnar og kem- ur hún verulega á óvart þegar inn er komið. Þannig eru gestir leiddir inn í jökulkaldan manngerðan ís- helli, sem gefur fólki tilfinningu fyrir því hvernig hinn þjappaði og ævagamli ís, sem jöklar Íslands geyma, lítur út. Í 15 stiga frosti og nokkr- um þrengslum verður upplifunin mikil og raunar áþreifanleg, enda geta gestir strok- ið veggi hellisins og áttað sig betur á kraftinum sem í ísnum býr. Þegar út úr hellinum er komið tekur við gagnvirk og mjög fræðandi sýning sem kenndi mér ótalmargt um jökla Íslands sem ég ekki vissi áður, m.a. fjölda þeirra og ólíkar gerðir eftir því hvar þeir hafa lagst yfir landið. Síðarnefnda sýningin, Hvalir Íslands, er safn sem ég hafði lengi ætlað að skoða en ekki látið verða af fyrr en nú. Þar er að finna tugi líkana sem gefa gestum færi á að átta sig á sköpulagi og stærð þeirra hvalategunda sem lifa við strendur Ís- lands. Gestir eru leiddir í gegnum sýn- inguna með leiðsögn sem hlaðið er niður í síma og þar eru þeir fræddir um hinar ólíku tegundir. Á sýn- ingunni er auðvelt að finna til smæðar sinnar og ekki laust við að maður fyllist lotningu gagnvart þessum furðuskepnum. Sýningarnar tvær eru að mínum dómi á heims- mælikvarða. Kosturinn við þær er ekki síst sá að það tekur ekki margar klukkustundir að kynna sér þær. Það er óhætt að hvetja fólk til að kynna sér efni þeirra. Það eru forréttindi að hafa aðgang að vand- aðri afþreyingu sem einnig gefur manni færi á að fræðast um náttúru Íslands. ses@mbl.is Stefán Einar Stefánsson Pistill Forvitnilegar fræðslusýningar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Ídag, 1. júlí, hækkar mót-framlag atvinnurekenda í líf-eyrissjóði á almennum vinnu-markaði um 1,5 prósentur og verður því 10%. „Ásamt iðgjaldi launþega, sem er 4%, nemur skylduiðgjald til líf- eyrissjóða nú 14%,“ segir Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ. „Þetta er liður í því að jafna stöðu lífeyrisrétt- inda á almenna og opinbera markaðnum líkt og samið var um í kjarasamningum aðildarfélaga ASÍ og SA í janúar á síðasta ári. Fyrsti áfanginn var tek- inn í fyrra með 0,5% hækkun og síðasti áfanginn kemur svo til fram- kvæmda hinn 1. júlí 2018 en þá hækkar framlagið um 1,5 prósentur til viðbótar og verður því 15,5%.“ Launþegar greiða sem fyrr 4% og það breytist ekki að sögn Hennýj- ar. „Hækkunin liggur í mótfram- lagi atvinnurekenda. Þannig helst ið- gjald launþega það sama eftir breyt- inguna nú og breytinguna að ári.“ Sérstök séreign Sjóðsfélagar geta nú ráðið því sjálfir hvort hluti skylduiðgjalda renni í sérstaka séreign eða til sam- tryggingarhlutans. „Breytingin sem núna verður er fólgin í því að nú getur hver og einn samið við sinn lífeyrissjóð um hluta skylduiðgjaldsins, þ.e. allt umfram 12%. Atvinnurekendum verður skylt að standa skil á öllu iðgjaldinu en sjóðfélagar geta ráðstafað viðbót- ariðgjaldinu í tilgreindan séreign- arsparnað með samningi við sinn líf- eyrissjóð eða nýtt það til að auka tryggingavernd sína til örorkulíf- eyris og ævilangs ellilífeyris í sam- tryggingu,“ segir Henný. Bendir hún jafnframt á að ef fólk semur ekki sérstaklega við sinn lífeyrisssjóð rennur viðbótar mót- framlagið í samtrygginguna. Í samantekt ASÍ um málið er tekið dæmi af einstaklingi með 500 þúsund krónur í mánaðarlaun alla starfsævina. Hefji hann inngreiðslur í lífeyrissjóð 25 ára gamall og greiðir til 67 ára aldurs gæti viðkomandi fengið tæplega 297.000 krónur á mánuði í ævilangan ellilífeyri ef greitt væri 12% iðgjald í samtrygg- ingu og hámarks iðgjald 3,5% í til- greinda séreign. Viðkomandi ætti þá um 19,4 milljónir í tilgreindan sér- eignarsparnað við 67 ára aldur en það jafngildir fullum launum ríflega 3 ára. Velji viðkomandi hins vegar að greiða allt iðgjaldið 15,5% í sam- tryggingu fengi viðkomandi ríflega 383 þúsund krónur á mánuði í ævi- langan ellilífeyri. Hægt er að sjá mismunandi niðurstöðu í töflu með frétt. Mikilvægt fyrir örorkulífeyri Ráðstöfun hins sérstaka hluta frá 12% til 15,5%, sé miðað við breyt- inguna eftir 1. júlí 2018, skiptir einn- ig máli fyrir örorkulífeyri. Lífeyr- isréttindi til 65 ára aldurs eru reiknuð út frá því hve mikið viðkom- andi hefði að óbreyttu greitt í lífeyr- issjóð starfsævina á enda. Þá munar miklu hvort viðmiðun við útreikning réttinda er 12% eða 15,5%. Sá sem velur að verja öllum sér- staka hlutanum eða 3,5% í séreign nýtur aðeins örorkuverndar sem miðast við 12%. Sá sem greiðir hærra hlutfall til samtrygging- arinnar nýtur réttinda í samræmi við það. Fari allur sérstaki hlutinn til samtryggingar miðast örorkuvernd einstaklings við 15,5%. Ráðstöfum sjálf hluta lífeyrisiðgjaldsins Einstaklingur með 500 þ.kr. í mánaðarlaun við lok starfsferils Greitt í lífeyrissjóð frá 25 til 67 ára aldurs Hlutfall launa greitt í samtryggingardeild 12% (lágmark) 13% 14% 15,5% (hámark) Mánaðarlegur ævilangur lífeyrir frá 67 ára aldri 296.628 321.347 346.066 383.145 Ævilangur lífeyrir sem hlutfall af launum 59% 64% 69% 77% Hlutfall launa greitt í tilgreinda séreign 3,50% 2,50% 1,50% 0,00% Mánaðarleg innborgun í tilgreinda séreign 17.500 12.500 7.500 0 Inneign í tilgreinda séreign við 67 ára aldur m.v. 3,5% ávöxtun 19.447.548 13.891.106 8.334.663 0 Tilgreind séreign sem fjöldi mánaðarlauna 38,9 (3,2 ár) 27,8 (2,3 ár) 16,7 (1,4 ár) 0 Henný Hinz „Þeir sjóðir sem ekki falla undir samnings- svið ASÍ og SA eru ekki bundnir af þessum breytingum meðan aðrir eru það ekki,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, for- maður Landssamtaka lífeyr- issjóða, en hann býst fastlega við því að þeir sjóðir sem ekki eru bundnir muni skapa for- sendur til að bjóða hliðstæð kjör. Þorbjörn segir að gengið sé út frá því að þær breytingar sem nú er ráðist í á grundvelli samnings ASÍ og SA fái laga- stoð í haust. „Ég get að sjálfsögðu ekki sagt fyrir um það hvað verður tekið fyrir á Alþingi í haust en við göngum út frá því að þessari breytingu verði veitt sérstök lagastoð.“ Búist við lagasetningu GILDIR EKKI UM ALLA Þorbjörn Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.