Morgunblaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Þörungaverksmiðjunnar hf. verður haldinn
miðvikudaginn 12. júlí 2017 kl. 14.00 á skrif-
stofu félagsins, Karlsey, 380 Reykhólum.
Dagskrá: Aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins.
Til sölu
Söluturn
Til sölu góður söluturn og spilasalur í
verslunarkjarna á stór Reykjavíkursvæðinu.
Velta um 100,000,000 krónur á ári.
Skoðum ýmis skipti.
Áhugasamir sendi á box@mbl.is merkt:
,,S -26246”, fyrir 10 júlí.
Öllum fyrirspurnum svarað
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
Aðstoð á
tannlæknastofu
Aðstoð óskast á sérhæfða tannlæknastofu á
höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða 60%
starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
1. ágúst.
Umsóknir skulu sendast á box@mbl.is,
merktar: ,,T - 26248”.
Vík í
Mýrdal
Fjölskylduvænt
samfélag í fallegu
umhverfi
Mýrdalshreppur er um 570
manna sveitarfélag. Í Vík er
öll almenn þjónusta svo sem
leik-, grunn-, og tónskóli,
heilsugæsla, dvalar- og
hjúkrunarheimili og
frábær aðstaða til allrar
almennrar íþróttaiðkunar.
Náttúrufegurð er rómuð í Vík
og nágrenni og samgöngur
greiðar allt árið. Ferðaþjón-
usta er öflug og vaxandi í
sveitarfélaginu og fjölbreyttir
möguleikar á því sviði fyrir
fólk með ferskar hugmyndir.
Laus staða við
grunnskólann í Vík í Mýrdal:
• Kennari á yngstastigi
Staða kennara á yngstastigi við Grunnskóla Mýrdalshrepps er laus til
umsóknar frá og með næsta skólaári.
Leitað er að hæfileikaríkum og metnaðarfullum kennara í þessa stöðu.
Æskilegt er að kennarinn hafi gott vald á lestrar- og skriftarkennslu.
Laun skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Kennarasambands Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Þorkell Ingimarsson skólastjóri í síma 865 2258.
Umsóknir skal senda til skólastjóra á netfangið skolastjori@vik.is eða
Sunnubraut 5, 870 Vík. Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk.
Mýrdalshreppur - Austurvegi 17 - 870 Vík
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfanandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir.
Ánanaust 15, Reykjavík, fnr. 229-4783, þingl. eig. Ásta Karen Ágústs-
dóttir, gerðarbeiðendur Húsfélagið Ánanaustum 15, Íbúðalánasjóður
og Háskólinn á Bifröst ses., miðvikudaginn 5. júlí nk. kl. 14:00.
Bjarkarholt 3, Mosfellsbær, fnr. 2083039, þingl. eig. Margrét
Hálfdánardóttir og Benedikt Jónsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn
hf. Austurstræti, miðvikudaginn 5. júlí nk. kl. 10:30.
Svöluás 12, 50% ehl.gþ. Hafnarfjörður, fnr. 225-4912, þingl. eig.
Kristín Aldan Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf.,
miðvikudaginn 5. júlí nk. kl. 11:30.
Víkurströnd 5A, Seltjarnarnesbær, fnr. 206-8784, þingl. eig. Sigríður
Ólafsdóttir og Árni Rafnsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf.,
miðvikudaginn 5. júlí nk. kl. 14:30.
Þorláksgeisli 1, Reykjavík, fnr. 227-8035, þingl. eig. Ólafur Snævar
Aðalsteinsson og Anna Rakel Aðalsteinsdóttir, gerðarbeiðendur Orku-
veita Reykjavíkur-vatns sf. og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 5. júlí
nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
30. júní 2017
Nauðungarsala
Blaðberar
Upplýsingar veitir Rúnar
í síma 661 9092
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera á
Akureyri
Tilboð óskast í Suðurgötu 14
í Hafnarfirði
20590 –Til sölu er Suðurgata 14 í Hafnarfirði, áður
húsnæði Ríkisskattstjóra.
Fasteignin skiptist í þrjár hæðir auk geymsluriss
undir súð þar sem lofthæð er allt að 2 metrar. Inn-
gangar að húsinu eru bæði að ofanverðu frá
Suðurgötunni og að neðanverðu frá Víkingastræti.
Fjöldi skrifstofuherbergja er í húsinu, auk opinna
vinnurýma, móttökurýmis og stórt eldhúsrými
fyrir mötuneyti er á 3. hæð hússins. Lyfta er í
húsinu sem gengur milli hæðanna þriggja.
Gólfefni eru flísar við inngang en annars lino-
leumdúkur. Húsið lítur vel út að utan þó svo að
þak þarfnist málunar og skemmdir eru á gólfefni
við svalahurð á annarri hæð. Seljanda er ekki
kunnugt um ástand hússins að öðru leyti og eru
bjóðendur hvattir til að kynna sér ástand þess vel.
Áætluð stærð hússins skv. Þjóðskrá Íslands – fast-
eignaskrá er 1279,6 m², byggt árið 1985, en
óstaðfestar mælingar gefa til kynna að húsnæðið
sé u.þ.b. 100 m² stærra.
Eignin verður til sýnis þriðjudaginn 4. júlí kl. 10:00
– 11:00, fimmtudaginn 6. júlí kl. 13:00 – 14:00 og
miðvikudaginn 12. júlí kl. 10 – 12:00.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.Tekin verður af-
staða til móttekinna tilboða þann18. júlí 2017.
Innsend tilboð skulu gilda í 4 vikur frá þeim degi.
Varðandi hugsanlega starfsemi í húsinu og á lóð
er bjóðendum bent á að kynna sér nánar skipu-
lagsmál eignarinnar og svæðisins hjá bæjar-
yfirvöldum. Húsið og skipulag þess býður upp á
margvíslega nýtingamöguleika.
Eigendur fasteignarinnar er Ríkissjóður Íslands.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu
Ríkiskaupa www.rikiskaup.is.
Tilboð skulu berast til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c,
105 Reykjavík, sími 530 1400. Skrifstofa Ríkiskaupa
er opin virka daga milli kl. 9:00 og 15:00.
Ath. ekki verður haldinn opnunarfundur vegna
skila á tilboðum.
Hjúkrunarheimili
Hjúkrunarfræðingar
Skjól hjúkrunarheimili óskar eftir að ráða
hjúkrunarfræðinga til starfa
Starfshlutfall og vinnutilhögun samkomulag.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Hæfniskröfur:
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Góð samskiptahæfni, jákvæðni og
sveigjanleiki
Upplýsingar veitir Guðný H. Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri hjúkrunar í síma 522 5600
Umsóknir má senda rafrænt í gegnum
heimasíðu Skjóls www.skjol.is auðkenndar
með Hjúkrun17
Skjól hjúkrunarheimili,
Kleppsvegi 64, 104 Reykjavík.
Sími 522 5600.