Morgunblaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Fyrrnefnd tröll hafa tröllrið-ið (brandari sannarlegaætlaður) íslenska skál-
anum og áberandi alls kyns hlutir
þeim tengdir. Viss leikur með
hvernig fyrirbæri eins og hljóm-
sveitir, kvikmyndir nú og skáld-
sagnapersónur geta af sér alls
kyns varning í dag; veri það lykla-
kippur eða sérstaklega bruggaður
bjór. Þeir Ûgh og Bõögâr eiga
þannig hlutdeild í t.d. bókum, föt-
um, pokum,
kaffikrúsum,
ilmvatni og vín-
ylplötu (sem má
og streyma á
bandcamp). Í
viðtali/grein
Einars Fals Ing-
ólfssonar vegna sýningarinnar,
sem birt var í blaði þessu, kemur
fram að Egill sæki hugmyndir og
áhrif jafnt í myndlistarheiminn,
dægurmenningu og barnamenn-
ingu og Egill segir þar sjálfur að
fyrirmyndir séu t.d. Múmínálf-
arnir, Lína Langsokkur og Noel
Tröllabundinn
Tröllslegur Egill Sæbjörnsson ásamt vinum sínum, þeim Ûgh og Bõögâr.
Fielding úr The Mighty Boosh:
„Ég tengi mig sterkt við barna-
menningu því mér finnst hún vera
svo tær,“ segir hann m.a. „Oft er
ég að fást við eitthvað sem tengist
uppvextinum […] og þar er hægt
að setja hlutina fram á einfaldan
og aðgengilegan hátt.“
Þá sinnir Egill tónlistarmann-
inum í sér af mikilli festu í gegn-
um þetta verk og verður þessi
pistlingur eftirleiðis helgaður
þeim þætti verksins eingöngu.
Persónulega, og nú er ég ein-
göngu leikmaður í myndlistar-
fræðum, hefur mér ávallt fundist
mikill leikur í verkum Egils. Hisp-
urslaus leikur, sannur og gleðirík-
ur og alltaf stutt í hjartahreint
grallaragrín einhvern veginn. Það
sést strax á framhlið plötunnar,
sem heitir eftir sýningunni, Out of
Controll in Venice. Annað tröll-
anna, Bõögâr, prýðir það en Ûgh
þarf að láta sér bakhlið plötunnar
nægja. Skreytingin minnir ekki
lítið á Karíus og Baktus-plötuna
reyndar. Egill, sem er af þeirri
kynslóð sem man eftir ríkulega
frágengnum vínylpökkum, nýtir
sér vínylformið til hins ýtrasta og
er umslagið í opnanlegu hulstri
eða „gatefold“. Þegar opnað er
blasir við glæsileg, litrík mynd af
Bõögâr sem liggur í sömu stell-
ingu og Michael Jackson gerði á
Thriller. Snilld!
Tröllin góðu eiga regluleg
innslög í sjálfri tónlistinni ásamt
Agli og þríeykið sér um allan
hljóðfæraslátt. Platan inniheldur
nítján lög eða verk sem eru mis-
munandi að gerð. Hún hefst t.d.
með þremur tröllaþemum, stutt-
um og groddalegum stefjum, allt í
takt við efnið. Á „As You Walk
into The Night“ má svo heyra
blíða söngrödd Egils undir
draugastefjum – hljómar eins og
ef 1. Outside eftir David Bowie
hefði verið hljóðblönduð af Resi-
dents.
Lög og stef skiptast á, þetta
er nokkurs konar „kvikmynda-
tónlist“ eða hljóðsetning á heimi
og verund tröllanna. Sum stefin
eru óttaleg, sum skemmtileg
(„Marionetta“ hefði sómt sér vel í
Klaufabárðunum). „The Melan-
choly of The Trolls“ er æði, aftur
fæ ég Bowie/Scott Walker tilfinn-
ingu, hugsa um 1. Outside og jafn-
vel síðustu plötu Bowie, Black-
star, sem hafði myrka melankólíu
yfir sér. Undir rest fara ærslin
svo upp úr öllu valdi, tröllin byrja
með læti og hljóðmyndin dansar í
takt.
Egill er myndlistarmaður,
fyrst og síðast, en hann er og tón-
listarmaður. Og frábær sem slík-
ur. Plötur hans, Tonk of the Lawn
(2000) og Egill S (2010), eru mikl-
ir kostagripir, báðar tvær. Þær
fylgja meira og minna regluverki
popps/rokks en þessi hér er aftur
á móti meira hnýtt við Tröllasýn-
inguna sem skóp hana: Trölla-
bundin bæði og tryllingsleg!
» Á „As You Walkinto The Night“
má svo heyra blíða
söngrödd Egils undir
draugastefjum – hljóm-
ar eins og ef 1. Outside
eftir David Bowie hefði
verið hljóðblönduð
af Residents.
Egill Sæbjörnsson er fulltrúi Íslendinga á
Feneyjatvíæringnum í ár. Verk hans var unnið í
samvinnu við tröllin Ûgh og Bõögâr sem m.a. gat
af sér forláta hljómplötu.
Tekist hefur að safna rúmlega 150
þúsundum sterlingspunda (sem
samsvarar ríflega 20 milljónum ís-
lenskra króna) til handa eftirlif-
endum brunans í Grenfell-turninum
í London. Þessu greinir The Guard-
ian frá.
Meðal þeirra sem standa að söfn-
uninni eru rithöfundarnir Philip
Pullman og Margaret Atwood. Fyrr
í vikunni var greint frá því að Pull-
man hefði boðið upp nafn á skáld-
sagnapersónu í væntanlegri bók
sinni. Kennarinn James Clements
stakk upp á persónan yrði nefnd í
höfuðið á Nur Huda El-Wahabi,
sem var fyrrverandi nemandi hans
og talið er að hafi brunnið inni í
turninum ásamt fjölskyldu sinni.
Fleiri hétu á Pullman og hafa nú
þegar safnast 32.400 pund fyrir
nafni El-Wahabi.
„Ég hef sjálfur
kennt og veit
hvernig mér
myndi líða ef
einn nemenda
minna lenti í
stórslysi. Sökum
þessa gleðst ég
yfir því hversu
vel hefur verið
tekið í uppá-
stungu Clements.
Ég vildi óska að ég hefði hitt Nur
Huda og það hryggir mig afskap-
lega að hún sé látin. Ég vona að
persónan sem fær nafn hennar
verði manneskja sem hún hefði haft
gaman af að kynnast,“ segir Pull-
man.
Formlega lauk fjársöfnuninni um
miðja vikuna en áheit eru enn að
berast. silja@mbl.is
Ríflega 20 milljónum króna safnað
Philip PullmanSmáskífan Gone sem íslensk-sænski dúettinn My Bubba,
skipaður My Larsdotter og Guðbjörgu „Bubbu“ Tóm-
asdóttur, vann í samstarfi við bandaríska gítarleikarann,
söngvarann og plötuframleiðandann Jack White, var
gefin út í gær í stafrænu formi á Spotify og iTunes af út-
gáfufyrirtæki White, Third Man Records. White er virt-
ur plötuútgefandi og vinsæll rokktónlistarmaður og hef-
ur oftar en einu sinni ratað á lista yfir bestu gítarleikara
rokksögunnar. Smáskífan
var tekin upp í hljóðveri hans
í Nashville og er gefin út sem
hluti af syrpunni Blue Series
sem útgáfufyrirtæki White
gefur út.
The Blue Series varð til
árið 2009 þegar Jack White
stofnaði Third Man Records
og er hugmyndafræðin að
baki henni að tónlistarmenn
sem eiga leið um Nashville
komi við í hljóðveri hans og
taki upp 7 tomma plötu. 40
smáskífur hafa verið gefnar
út í syrpunni bláu með tón-
listarmönnum á borð við
Tom Jones, Beck og Wöndu Jackson. Smáskífa My
Bubba verður fyrsta Blue Series-skífan sem kemur út í
Nashville á þessu ári og í gær kom út bók um sögu syrp-
unnar, The Story Behind the Color, Volume One.
Opnar margar dyr
„Það var mjög áhugavert og skemmtilegt að hitta Jack
og vinna saman í stúdíói hans í Nashville,“ segir Bubba
en þær My tóku lagið upp með nokkrum hljóðfæraleik-
urum, m.a. bassaleikaranum Jack Lawrence og hljóm-
borðsleikaranum Dean Fertita úr hljómsveitinni Dead
Weather.
„Við My höfum lengi fylgst með því sem Jack White
hefur verið að gera og grínast með að einn góðan veð-
urdag muni hann hringja og bjóða okkur í heimsókn til
Nashville. Sameiginlegur vinur okkar sendi lag á hann
og stuttu síðar vorum við staddar í hljóðverinu hans,“
segir Bubba kímin en lagið sem White fékk sent er eftir
Bob Dylan og nefnist „You’re Gonna Make Me Lone-
some When You Go“. Var það eitt af fyrstu lögunum sem
My og Bubba sungu saman eftir að þær urðu herberg-
isfélagar fyrir tilviljun í Kaupmannahöfn.
Bubba segir það mikinn heiður fyrir þær að fá að taka
þátt í Blue Series og eiga eftir að opna margar dyr fyrir
þeim og þá sérstaklega vestanhafs. Hún segir White
mjög hugmyndaríkan tónlistarmann og að samstarf
þeirra My við hann hafi verið afar gott.
„Okkur langaði til að gera „Gone“ stærra. Við höfðum
tekið það upp áður og Jack kom með trommunálgun á
það, bauð strákunum úr Dead Weather að spila með og
setti lagið í sinn búning. Það var okkar hugmynd að
stækka lagið á þennan hátt en þetta var engu að síður
samstarf,“ útskýrir Bubba og bætir við að trommuleik-
urinn í laginu sé mjög skemmtilegur og áhugavert að
kynnast miklum sköpunargáfum White og félaga.
Sænsk þjóðlög á næstu plötu
My Bubba gaf út sína þriðju breiðskífu, Big Bad Good,
fyrir tveimur árum og hefur hljómsveitin leikið víða um
Evrópu, Bandaríkin og Ástralíu og komið fram á vinsæl-
um tónlistarhátíðum. Tvíeykið mun gefa út plötu með
sænskum þjóðlögum 25. ágúst nk. og var sú tekin upp í
Dölunum í Svíþjóð. Platan nefnist My Bubba & Elsa
Sing Swedish Songs en Elsa sem nefnd er í titlinum er
Elsa Håkansson, vinkona Bubbu, söngkona og gítarleik-
ari. Þess má að lokum geta að tónlist My Bubba má finna
á Spotify og á heimasíðu dúettsins, ohmybubba.com.
helgisnaer@mbl.is
Jack White gefur út
lag með My Bubba
„Áhugavert og skemmtilegt að hitta Jack,“ segir Bubba
Ljósmynd/Jamie GoodsellÍ ham Jack White.
Samstilltar
My og Bubba
eru My Bubba.
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
FORSÝND SUNNUDAG KL. 2
SÝND KL. 8, 10.20
ÍSL.
TAL
ÍSL.
TAL
ÍSL.
TAL
SÝND KL. 5, 8, 10.25
SÝND KL. 8, 10.20
SÝND KL. 2, 4(SUN), 6 SÝND KL. 2, 5SÝND LAUGARDAG KL. 2