Morgunblaðið - 01.07.2017, Side 44
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 182. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Kom heim úr vinnu með tvíbura
2. Vel í holdum og komst inn ...
3. Alexandra Sif tekjuhæsti Snapparinn
4. Hallgrímur með 140 þúsund ...
Karlakvartettinn Kóngar mun hjóla
í allar kirkjur á Suðurnesjum í dag
og syngja í þeim nokkur lög og
sálma og safna áheitum í orgelsjóð
Keflavíkurkirkju. Kvartettinn skipa
Arnór B. Vilbergsson, Elmar Þór
Hauksson, Sveinn Sveinsson, Sól-
mundur Friðriksson og Kristján Jó-
hannsson.
Kóngar hjóla í allar
kirkjur Suðurnesja
Bíó Paradís
sýnir gaman-
og söngva-
myndina Með
allt á hreinu í
kvöld kl. 20 á
sérstakri söngsýningu. Gestum er
frjálst að syngja með á sýningunni og
verða valdir Stuðmenn viðstaddir og
taka lagið með áhorfendum, eins og
segir í tilkynningu frá kvikmyndahús-
inu. Söngtextar verða birtir með öll-
um lögum myndarinnar.
Sungið með Stuð-
mönnum í bíósal
Tónlist sænsku söngstjörnunnar
Monicu Zetterlund verður í öndvegi
á sumartónleikum veitingahússins
Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag
kl. 15 en einnig blandast í efnis-
skrána áhrif frá sænska saxófón-
leikaranum Lars Gullin og banda-
ríska píanóleikaranum Bill Evans
sem báðir tengdust Monicu. Hljóm-
sveitina skipa þau Gro Bjørnes
söngkona, Andreas Dreier
kontrabassaleikari, Andr-
és Þór Gunnlaugsson
gítarleikari, Sigurður
Flosason saxófón-
leikari og Einar
Scheving
trommuleikari.
Tónlist Zetterlund
á sumartónleikum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað að mestu og
víða skúrir. Heldur svalara verður víðast hvar en var í gær.
Á sunnudag Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað og þurrt
að mestu norðan til á landinu, en skýjað með köflum og skúrir um
landið sunnanvert. Hiti 8 til 16 stig, mildast á Suðurlandi.
Liðin í Pepsi-deild kvenna í knatt-
spyrnu leika flest um helgina en svo
tekur við frí í deildinni fram til 9.
ágúst, vegna Evrópumótsins í Hol-
landi. Þeir leikmenn sem ekki eru í 23
manna landsliðshópi Íslands, eða til-
heyra öðru landsliði á EM, þurfa því að
bíða í að minnsta kosti 68 daga eftir
næsta alvöruleik. Morgunblaðið kann-
aði hvernig hléið verður nýtt. »4
Hvað gera liðin í 68
daga löngu hléi?
„Mér leið eins og ég væri orð-
in 100 ára,“ segir Sandra Sig-
urðardóttir um þá staðreynd
að vera orðin leikja-
hæsti leikmaður
efstu deildar kvenna
í knattspyrnu frá
upphafi. Sandra spilaði sinn
fyrsta leik 14 ára gömul, bú-
sett á Siglufirði, og fer meðal
annars yfir ferilinn, landsliðið
og heimahagana í ítarlegu við-
tali í Morgunblaðinu. »2-3
Fótboltabrautin
var lögð fyrir mig
„Það fyrsta sem ég hugs-
aði var að færa mig yfir í
sterkari deild og betra
lið,“ segir landsliðs-
miðvörðurinn Sverrir
Ingi Ingason, sem í
gær gekk í raðir FC
Rostov frá Rúss-
landi. Hann verður
þar með fimmti ís-
lenski knattspyrnu-
maðurinn sem
spilar þar í landi
eftir að Hannes
Þ. Sigurðsson
gerði það fyrst-
ur snemma á
áratugnum. »1
Sverrir verður sá fjórði
í fótsporum Hannesar
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Einhverjir gárungar kalla Þorláks-
höfn „Litlu-Lundúni“. Má þakka
Grími Víkingi Þórarinssyni nafngift-
ina, en hann á tvo enska leigubíla og
forláta breskan símaklefa að auki.
„Það eru margar skrýtnar tilviljanir í
heiminum og þetta fellur undir þær,“
segir hann.
Bílarnir komu óvænt upp í hend-
urnar á Grími með um árs millibili.
Hann segir að vinur sinn hafi tekið þá
upp í skuld en ekkert haft við þá að
gera. „Ég hef gaman af bílum og los-
aði hann við þá,“ segir Grímur.
Þorlákshöfn er lítill bær og ekki
mikið þar að gera fyrir leigubílstjóra,
en Grímur stundar leigubílaakstur á
bílunum einkum einu sinni á ári, á
þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. „Þar
hafa þeir vakið mikla athygli og verið
sérlega vinsælir,“ segir hann.
Vinsæll á þjóðhátíð
Á árum áður vandi Grímur komur
sínar á þjóðhátíð í Eyjum og eftir að
hann eignaðist fyrri leigubílinn birtist
honum sýn. „Þetta var eins og í
teiknimyndablöðunum um Andrés
önd, þegar kviknar á ljósaperu fyrir
ofan höfuðið á sögupersónunum. Mér
varð allt í einu ljóst að ég gat farið
með bílinn til Eyja og verið gestum til
taks.“ Hann segist hafa notið þess til
fulls og nú hafi hann mætt á allar
þjóðhátíðir frá 2006. „Það er eft-
irtektarvert hvað allir eru glaðir og
ánægðir á þjóðhátíð og unga fólkið er
algerlega til fyrirmyndar,“ segir
hann. „Þetta hefur verið skemmti-
legur tími og ég get talið atvik, sem
ekki hafa verið sérstaklega skemmti-
leg án þess að vera leiðinleg, á fingr-
um annarrar handar.“
Grímur segist snemma hafa fallið
fyrir bresku rauðu símaklefunum.
„Mér fannst alltaf hönnunin svo flott
og langaði að eiga einn, en tækifærið
lét á sér standa,“ segir hann. Rifjar
upp að Vodafone hafi flutt inn klefa
en ekkert haft við hann að gera.
Hann hafi reynt að fá hann án árang-
urs en síðan frétt að Vodafone hafi
gefið Þjóðleikhúsinu klefann. Síma-
klefinn er úr pottjárni og um 750 kg
að þyngd. Leikhúsið hafi því ekki get-
að notað hann nema endurbyggja og
treysta gólfið á sviðinu og í stað þess
að henda símaklefanum hafi það selt
honum gripinn. „Þannig að það var
tilviljun að ég eignaðist þennan síma-
klefa.“
Grímur stundaði erfiðisvinnu um
árabil en nú hefur hann ekki fullan
vinnukraft og getur ekki keyrt nema í
skamma stund í einu. „Ég er nánast
úr leik, en ég hef látið flestalla
drauma mína rætast og hef gaman af
því, ekki síst bresku leigubílunum og
enska símaklefanum,“ segir hann.
Bresk sýn í Þorlákshöfn
Enskir leigubíl-
ar og símaklefi
vekja athygli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þorlákshöfn Grímur Víkingur Þórarinsson við annan leigubílinn og breska símaklefann.
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Vestmannaeyjar 2006 Grímur er vinsæll leigubílstjóri á þjóðhátíð.