Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.07.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017 Lækjargötu 2, 2. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is Við bendum á heimasíðu okkar www.investis.is þar sem fjárfestar geta skráð sig og fengið upplýsingar um viðskiptatækifæri í forgangi. Við erum með kaupendur og fjárfesta að ýmsum gerðum fyrirtækja, við hvetjum fyrirtækjaeigendur sem eru í söluhugleiðingum til að hafa samband. Tækifæri í veitingarekstri Við vinnum að sölu á veitingastað og kaffihúsi á Stjörnutorgi Kringlunnar Frábær staður til að setjast niður í rólegt og þægilegt andrúmsloft og gæða sér á góðu kaffi og gómsætum réttum. Einnig tilvalinn staður fyrir leikhús- og bíógesti þar sem innangengt er í bæði Borgarleikhúsið og Kringlubíó. Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir veitingamenn til að eignast veitingastað með góða veltu á frábærum stað. og hvalaskoðun og rútuferðir, eru bara að hrynja.“ Þá hafi maímán- uður verið slæmur í bókunum hjá Eldingu en júnímánuður þokka- legur. Ísland fyrir þá efnameiri „Venjulegt fólk hefur ekki efni á þessum ferðum lengur,“ segir Ásta Briem, einn eigenda Ice bike adventures, sem sérhæfir sig í fjalla- hjólaferðum fyrir ferðamenn. „Það er augljós samdráttur í venjulegum dagsferðum en á móti aðeins meira sótt í dýrari ferðirnar. Þetta er erf- iðara út af genginu og fólk kvartar alveg heilmikið yfir því hvað Ísland er orðið dýrt,“ segir Ásta. Horfa meira á verð en gæði Rannveig Grétarsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjá Eldingu, sem býð- ur meðal annars upp á hvalaskoðun og hestaferðir, segir að bókanir í ódýrari ferðir séu færri í ár. Hún segir jafnframt að ferðamenn skoði verð á ferðum meira en áður. „Það er miklu meiri þrýstingur eftir afslætti og endalaust verið að leita að besta verðinu. Það er meiri sam- keppni í verði en gæðum,“ segir Rannveig og bætir við að dagsferð- irnar fái mesta höggið. „Fólk er minna í því að koma með skömmum fyrirvara eins og áður. Allar dags- ferðirnar, þessar ódýrari ferðir eins Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is „Almennt séð er krónan að lemja okkur í hausinn, það er alveg ljóst,“ segir Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, að- spurður hvort bókanir í þyrluferðir hafi minnkað í sumar. Birgir segir að fyrirtækið finni fyrir styrkingu krónunnar en lengri og dýrari þyrluferðirnar hafa þó haldið sér ágætlega. „Lengri ferð- irnar hafa haldið sér furðulega vel miðað við svona sterka krónu en ferðamaðurinn er frekar mikið að loka buddunni sinni þessa daga,“ segir Birgir. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ferðamenn í heimsókn Börn í siglingaklúbbnum Nökkva sigla að skemmtiferðaskipi í Akureyrarhöfn í gær. Sterk króna lemur á ferðaþjónustunni  Erlendir ferðamenn sækja þó mikið í dýrari ferðir Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Móðir sem tvívegis hefur verið tekin til könnunar hjá barnaverndarnefnd eftir að nafnlausar tilkynningar bár- ust um að hún væri viðriðin neyslu og sölu fíkniefna fær ekki að vita hverjir það voru sem tilkynntu hana til nefndarinnar, samkvæmt úr- skurði úrskurðarnefndar velferðar- mála. Konan sem um ræðir telur að barnsfaðir hennar standi að baki til- kynningunum, sem bárust í mars og október á seinasta ári, en samskipti þeirra á milli hafa verið slæm. Til- kynningar til barnaverndaryfirvalda bárust þó frá tveimur mismunandi aðilum. Kröfu konunnar hafnað Eftir að konan var boðuð í viðtal hjá barnaverndaryfirvöldum og stóðst fíkniefnapróf í annað skipti krafðist hún þess að nafnleynd til- kynnenda yrði aflétt. Þeirri kröfu var hafnað. Í úrskurðinum kemur fram að ekki sé talið að fyrir hendi séu aðstæður til þess að aflétta megi nafnleynd, með tilliti til hagsmuna barnaverndar. Í þessu tilviki hafi jafnframt ekki verið grunur um að tilkynnendur hafi vísvitandi komið á framfæri röngum eða villandi tilkynningum. Barnaverndarsjónarmið ráða „Rétturinn til nafnleyndar er rík- ur og það er til að tryggja að virknin og árangurinn í barnaverndarstarf- inu sé sá sem samfélagið fer fram á,“ segir Sigríður María Jónsdóttir, lög- fræðingur hjá Barnavernd Reykja- víkur. Hún segir sjónarmið um rétt- láta málsmeðferð, sjónarmið er varða vernd tilkynnanda og sjónar- mið um virkni og vernd í barna- verndarstarfi vegast á í málum sem þessu. „Þar vega þyngst sjónarmið um virkni í barnaverndarstarfi. Við þurfum náttúrlega nauðsynlega að fá upplýsingar um hagi barna sem geta ekki björg sér veitt og eru jafn- vel ómálga. Ef sá sem vill tilkynna nýtur ekki nafnleyndar er hætta á að það fæli hann frá því að tilkynna og þá verður virknin í barnaverndar- starfinu ekki sú sem hún ætti að vera,“ segir Sigríður. Hún hefur starfað hjá Barnavernd Reykjavíkur í fjórtán ár og segist einungis vita um eitt tilvik þar sem nafnleynd til- kynnanda var aflétt. Það hafi komið upp áður en hún byrjaði. Í úrskurðinum kemur fram að konan telji að tilkynnt hafi verið um hluti sem hún taki mjög persónulega og eigi ekki við hana. Henni finnist að um meiðyrði sé að ræða og hrika- legar ásakanir, bæði í garð hennar og sonar hennar. Að sögn Sigríðar er ekki mikið um ástæðulausar tilkynningar og oftast séu það fleiri en einn aðili í nær- umhverfi barns sem tilkynni, séu að- stæður barnsins óviðunandi. „Ef það er alltaf sá sami sem er að tilkynna og það er augljós heift sem liggur að baki eða annað slíkt, þá tökum við þau mál til skoðunar.“ Nafnleynd nauðsynleg að mati Barnaverndar Hún segir að oft þurfi starfsfólk Barnaverndar að draga töluvert úr upplýsingum sem berast til að þær séu ekki persónugreinanlegar. „Þegar við erum að taka inn til- kynningar undir nafnleynd þarf oft að hafa þær þannig skriflega að það lesist ekki úr textanum hver það er sem tilkynnir. Þarna eru ömmur og afar, eldri systkini, vinir, fólk í stigaganginum og fólkið í næsta húsi og eðlilega myndi það fæla þá aðila frá því að tilkynna ef nafnleynd þeirra væri ekki tryggð.“ Móðir fær ekki að vita hverjir bentu á hana  Tvívegis boðuð í fíkniefnapróf eftir nafnlausar ábendingar Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ný einkarekin heilsugæslustöð verð- ur opnuð 1. ágúst í Urðarhvarfi 14 í Kópavogi. Stöðin er að meirihluta í eigu lækna sem þar munu starfa. Teitur Guðmundsson læknir, tals- maður eigenda, segir stöðina rekna á grundvelli útboðs Sjúkratrygginga Íslands. „Þetta er önnur tveggja heilsugæslustöðva sem samið var við í téðu útboði. Skráning skjólstæðinga er hafin. Hún er ekki lengur bundin við póstnúmer heldur geta allir á höfuðborgarsvæðinu sem það vilja skráð sig.“ Við stöðina munu starfa átta læknar sem hafa langa reynslu af heilsugæslu og heimilislækningum. Teitur segir að megintilgangur út- boðs Sjúkratrygginga hafi verið að auka fjölbreytileika og bæta mönn- un, sem muni koma fram í bættu að- gengi sjúklinga. „Áherslur okkar verða alhliða á sviði heilsugæslu eins og ungbarna- og mæðravernd, en sérstaklega á sviði forvarna og heilsueflingar. Við munum bjóða viðtalstíma samdæg- urs, nýta okkur tækniþróun í sam- skiptum við sjúklinga og síðast en ekki síst leggja mjög mikla áherslu á heilsugæslu aldraðra, sem má bæta verulega. Þá er skemmtileg nálgun sem tengist gæðaviðmiðum, birtingu starfsemisupplýsinga og hópameð- ferð til viðbótar við skilgreinda þjón- ustuþætti í heilsugæslu. Við hlökkum til að opna og taka á móti nýjum skjólstæðingum innan tíðar,“ segir Teitur. Morgunblaðið/Eggert Heilsugæsla Nýjungar verða í starfi Heilsugæslu Reykjavíkur í Urðarhvarfi. Ný heilsugæsla  Einkarekin heilsugæsla í Urðar- hvarfi  Áhersla á að þjónusta aldraða Fyrsta prentun bókarinnar Skák á Íslandi og í íslenskum bók- menntum, á ensku Chess in Iceland and in Icelandic Literature, eftir Willard Fiske, gefin út í Flórens á Ítalíu árið 1905, er til sölu á upp- boðsvef Invaluable. Bókin er óskorin og í afar góðu ásigkomulagi sam- kvæmt lýsingu á síðunni. Uppboðið byrjar 10. júlí nk. og er upphafsboð 160 bresk pund. Daniel Willard Fiske 1831-1904, fæddur í Ellisburg, New York-ríki í Bandaríkunum, var bókavörður, fræðimaður og ritstjóri með mikinn áhuga á Íslandi og skák. Hann var sérlegur velgjörðamaður Grímsey- inga sökum skákiðkunar þeirra og gaf þeim bókasafn, töfl og 12.000 doll- ara styrk til menntunar og framfara. Fiske gaf Cornell-háskóla í Íþöku í New York-ríki í Bandaríkjunum stórt safn íslenskra bóka. ernayr@mbl.is Bók Fiske um skák á Íslandi á uppboði  Upprunalegt eintak frá 1905 Willard Fiske

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.