Morgunblaðið - 05.07.2017, Side 12

Morgunblaðið - 05.07.2017, Side 12
Unnendur raftónlistar gleðjast um þessar mundir en íslenska tónlist- arhátíðin Extreme Chill Festival verð- ur haldin helgina 6.-9. júlí næstkom- andi. Um er að ræða fjögurra daga hátíð þar sem þemað verður leynd- ardómsfullt ferðalag um hina raf- rænu Reykjavík. Hátíðin mun fara fram á sex mis- munandi stöðum í borginni og eru þeir Húrra, Fríkirkjan í Reykjavík, Bíó Paradís, Mengi, Lucky Records og Miðgarður Center-Hotels. Fjöldi þekktra listamanna mun koma fram, jafnt erlendir sem íslenskir, sem munu sameina krafta sína á hátíðinni og má þar nefna The Orb, Chri- stopher Chaplin, Gyða Valtýsdóttir, Sigrún Poco Apollo, Stereo Hypnosis og fleiri. Þá mun Bíó Paradís sýna heimildamyndina *Lunar Orbit* sem unnið hefur til fjölda verðlauna um heim allan. Dagskrána má finna á við- burðasíðu hátíðarinnar á Facebook og eru miðar seldir annars vegar á midi.is og við hurð á fyrrnefndum stöðum sem tónleikar fara fram. Tónlistarhátíð fyrir unnendur raftónlistar í Reykjavík Rafmögnuð Reykjavíkurborg Morgunblaðið/Freyja Gylfa Hátíð Tónlistarhátíðin Extreme Chill Festival fer fram um helgina. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017 Kynntu þér Opel fjölskylduna á benni.is | opel.is OPEL Á ÍSLANDI ReykjavíkTangarhöfða 8 590 2000 Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 420 3330 Opið virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 12 til 16 Verið velkomin í reynsluakstur opel.is | benni.is 1,6 dísel ECOFLEX notar aðeins 6,1l/100 kmmiðað við blandaðan akstur. Birt með fyrirvara um villur ogmyndabrengl. 9 MANNS Í SÆTI - GÓÐAN DAGINN! Opel Vivaro- verð m/vsk. KR. 5.190.000 VIVARO - TIL AFHENTINGAR STRAX ! EKKI ÞÖRF Á MEIRAPRÓFI! Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta var mikil tónlistar-veisla, enda erum við söng-elsk fjölskylda og lögðumokkar af mörkum í söngn- um í brúðkaupinu,“ segir Ingibjörg Erlingsdóttir en í brúðkaupi dóttur hennar, Erlu Vinsýjar, og Kristins Björns Sigfússonar fyrr í sumar steig hver fjölskyldumeðlimurinn á fætur öðrum fram og tók lagið. „Dætur mínar, sem eðli málsins samkvæmt eru líka systur brúðar- innar, sungu í þessu brúðkaupi. Birta Rós söng einsöng í kirkjunni við athöfnina, en brúðkaupið var í Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð. Freyja söng í kirkjunni dúett með Arnari Jónssyni en hann er giftur bróðurdóttur minni Hólmfríði (Hófí) Samúelsdóttur,“ segir Ingibjörg og bætir við að Arnar hafi sungið lag eftir Hófí í síðustu undankeppni fyr- ir Júróvisjón. „Systurnar Hófí og Gréta, dæt- ur Samúels bróður míns, sungu líka dúett við athöfnina í kirkjunni, en þær sömdu sjálfar það brúðkaups- lag, sem þær hafa sungið í mörgum brúðkaupum.“ Tríó Birtu Rósar söng einnig við athöfnina í kirkjunni, en það er skipað Birtu Rós, fyrr- nefndri dóttur Ingibjargar, einni frænku og annarri vinkonu. „Þær hafa sungið heilmikið saman og unnu söngkeppni Fjöl- brautaskóla Suðurlands síðastliðið haust og urðu í öðru sæti í sömu keppni haustið á undan. Tríóið tók einnig að sér að vera með prógramm þegar fólkið var að koma til brúð- kaupsveislunnar og fá sér fordrykk og forrétt, þá sungu þær þrjár eins og englar.“ Rottweilerhundur ærði gesti með óvæntri innkomu sinni Þetta var alvörusveitabrúð- kaup, ekki aðeins með miklum söng heldur var líka dansað fram á nótt. „Þegar leið á brúðkaupsveisl- una steig á svið hljómsveit sem lék fyrir dansi og hún var skipuð fjöl- skyldumeðlimum. Það vantaði bassaleikara í hljómsveitina svo ég skellti mér í það hlutverk. Systur- sonur minn, sem kom beint í brúð- kaupið frá Svíþjóð, steig óundir- búinn á svið og gekk til liðs við hljómsveitina, söng og spilaði með,“ segir Ingibjörg og bætir við að eðli málsins samkvæmt hafi brúðurin, Erla Vinsý, haldið sig til hlés á með- an sungið var fyrir hana og brúð- gumann. „En hún tók meðal annars að sér að syngja í brúðkaupi mínu fyrir fjórum árum, en þar sungu allar dætur mínar,“ segir Ingibjörg og bætir við að í brúðkaupinu núna hafi verið sýnt myndband frá gæsa- partíinu þar sem farið var með Erlu Vinsý í stúdíó og þar hafi hún rappað texta sem saminn var við lag Emmsjé Gauta. Brúðkaupsgestir fengu því að njóta söngs brúð- arinnar líka. Erpur Eyvindarson, hinn víð- frægi Rottweilerhundur og rappari, er náfrændi brúðarinnar og hann kom fram sem leynigestur þegar leið á kvöldið og þá trylltist allt. „Það var tekið verulega á því í dansi og söng á gólfinu þá, þetta var mikið fjör og djammað fram á nótt. Flestir gistu, Mamma á bassanum og systurnar sungu Söngur og tónlistarflutningur skiptir miklu máli í brúðkaupum og verður enn persónulegri þegar flytjendur eru tengdir þeim sem sungið er fyrir blóðböndum. Systur brúðarinnar, frænkur hennar, mamma, mágar, frændur og fleiri stigu á pall í sannkölluðu sveitabrúðkaupi Erlu Vinsýjar og Kristins Björns. Dansað var fram á rauðanótt og allt trylltist þegar Erpur frændi rappaði fyrir gestina. Eitursvöl Ingibjörg spilar á bassann í danshljómsveitinni í brúðkaupinu. Engar sannanir eru fyrir því að nokkuð geti komið í veg fyrir Alz- heimer. Þó er hægt að gera nokkrar einfaldar æfingar til þess að hægja á sjúkdómnum, segja sérfræðingar. Meðal annars að hafa stjórn á blóð- þrýstingnum, hreyfa sig reglulega og gera einfalda hugarleikfimi reglulega. Þessar æfingar geta annars vegar minnkað líkurnar á að einstaklingur fái Alzheimer, og hins vegar hægt á ferlinu. Þetta er niðurstaða banda- rískrar sérfræðinefndar sem hefur rannsakað sjúkdóminn og kemur fram á vef BBC. Dr. Ronald Petersen sagði lítið mark takandi á hinum og þessum auglýsingum sem dynja á fólki um undralyf við Alzheimer. Af þeim skýrslum og rannsóknum sem nefndin hefði rýnt í hefðu flestar þeirra leitt í ljós að þetta þrennt skilar bestum árangri í baráttunni við sjúkdóminn. Hægt að hægja á framgangi Alzheimer Reuters Alzheimier Sjúkdómurinn leggst alla jafna á eldra fólk. Ekki er til lækning. Æfingar gegn Alzheimer

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.