Morgunblaðið - 05.07.2017, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Stjórnvöld í Norður-Kóreu tilkynntu
í gær að ríkið væri orðið kjarnorku-
veldi, en norðurkóreski herinn skaut
upp eldflaug skammt frá Panghyon-
flugvellinum í fyrrinótt.
Ferli langdrægu eldflaugarinnar
(e. ICBM) var fylgt eftir með viðhöfn
í norðurkóreska ríkissjónvarpinu.
Greindi fréttaþulurinn þar meðal
annars frá því að eldflaugin hefði náð
rúmlega 2.800 kílómetra hæð yfir
sjávarmáli og hefði flogið 933 kíló-
metra á 39 mínútum áður en henni
var beint í Japanshaf, innan 200 sjó-
mílna efnahagslögsögu Japans.
Eldflaugin var sögð hafa drægi til
þess að bera kjarnaodda á milli
heimsálfa og gat hún því samkvæmt
upplýsingum norðurkóreska ríkis-
sjónvarpsins hitt skotmörk hvar sem
er í heiminum. Kim Jong-un, leiðtogi
Norður-Kóreu, var þá sagður hafa
haft yfirumsjón með tilrauninni.
Stafar ekki ógn af flauginni
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og
Rússlandi fullyrtu hins vegar að
flaugin væri einungis meðaldræg og
að íbúum þeirra ríkja stafaði ekki
ógn af flauginni.
Norður-Kóreumenn hafa áratug-
um saman ekki farið dult með þá fyr-
fundur leiðtoga G-20 ríkjanna í Ham-
borg í Þýskalandi síðar í vikunni þar
sem meðal umfjöllunarefna verða
mögulegar aðgerðir gegn vopnavæð-
ingu norðurkóreskra yfirvalda.
telja sér stafa af Bandaríkjunum.
Ólíklegt er talið að tilviljun hafi
ráðið því að eldflauginni var skotið
upp að morgni 4. júlí, á þjóðhátíð-
ardegi Bandaríkjanna. Þá hefst
irætlun sína að koma sér upp lang-
drægum eldflaugum, sem borið geta
kjarnaodda. Segja stjórnvöld í
Pyongyang að það sé nauðsynlegt til
að mæta þeirri innrásarógn sem þau
N-Kórea kjarnorkuveldi
Skutu langdrægri eldflaug í efnahagslögsögu Japana á þjóðhátíðardegi Banda-
ríkjanna Fullyrða að flaugin geti hitt skotmörk hvar sem er í heiminum
AFP
Eldflaug Stjórnvöld í Norður-Kóreu skutu á loft eldflaug sem náði rúmlega 2.800 kílómetra hæð yfir sjávarmáli og
flaug 933 kílómetra á 39 mínútum áður en henni var beint í Japanshaf, innan 200 sjómílna efnahagslögsögu Japans.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ítalska lögreglan hóf í gær umfangs-
miklar aðgerðir gegn skipulagðri
glæpastarfsemi á sunnanverðum
Ítalíuskaga. Tóku meira en þúsund
lögreglumenn þátt í aðgerðunum,
sem beindust einkum að ’Ndrang-
heta-mafíunni svonefndu.
Þyrlur, leitarhundar og lögreglu-
lið, sem sérþjálfað er í að finna neð-
anjarðarbyrgi og aðra felustaði, tók
þátt í aðgerðunum. Í tilkynningu lög-
reglunnar kom fram að 116 manns
úr 24 mismunandi glæpafjölskyldum
hefðu verið teknir fastir, en þeirra
bíður ákæra fyrir þátttöku í glæpa-
starfsemi, fjárkúgunum, svikum,
brotum á vopnalögum og fleiri af-
brotum.
Hafa fært út kvíarnar
Helsta vígi ’Ndrangheta-mafíunn-
ar er í Kalabríu-héraði sem kallast
mætti „táin“ á Ítalíuskaga. Hún hef-
ur hins vegar á síðustu árum seilst
norður á bóginn, og meðal annars
hafið glæpastarfsemi sína í öðrum
Evrópuríkjum.
Þá hefur ’Ndrangheta-mafían orð-
ið ofan á í samkeppni við aðrar mafí-
ur, eins og hina vel þekktu Sikileyj-
armafíu, og er ástæða þess rakin til
þess að ’Ndrangheta-menn hafi náð
yfirhöndinni á fíkniefnasmygli, eink-
um á kókaíni, frá ríkjum rómönsku
Ameríku.
Skipulögð glæpastarfsemi hefur
löngum verið vandamál á Ítalíu, en í
maí síðastliðnum var glæpaforinginn
Giuseppe Dainotti myrtur á götu úti
í Palermo, höfuðborg Sikileyjar.
Hófu aðgerðir
gegn mafíunni
116 manns úr 24
fjölskyldum hand-
teknir í gær
AFP
Mafíumorð Skipulögð glæpastarf-
semi hefur verið vandamál á Ítalíu.
Yfirvöld í Hanoi, höfuðborg Víet-
nams heita því að mótorhjól verði
bönnuð í borginni fyrir árið 2030.
Þetta verður gert til þess að létta á
umferðartöfum og halda aftur af
mengun.
Borgaryfirvöld segja að mótor-
hjólum fjölgi óæskilega hratt og því
muni umferð og mengun einungis
versna. Áætlanirnar voru sam-
þykktar af 95 borgarfulltrúum af
96 og verður bannið sett í fram-
kvæmd í stærstu hverfum borgar-
innar. Einnig verða almennings-
samgöngur efldar til muna.
Íbúar Hanoi eru um sjö milljónir.
Þar eru yfir fimm milljónir mótor-
hjóla en einungis hálf milljón bíla.
VÍETNAM
Banna mótorhjólin
fyrir árið 2030
Umferð Mótorhjól eru í meirihluta.
Jean-Claude
Juncker, forseti
framkvæmda-
stjórnar Evrópu-
sambandsins,
brást reiður við í
gær þegar hann
hugðist kynna
skýrslu sam-
bandsins um for-
sætisár Möltu, þar sem af 751
þingmanni voru einungis um 30
mættir til vinnu. „Evrópuþingið er
fáránlegt, algjörlega fáránlegt“
sagði Juncker úr ræðustól þings-
ins. Eftir snörp orðaskipti þeirra á
milli Junckers og Antonio Tajani,
forseta þingsins, sem sagði að
þingið væri „ekki fáránlegt“,
strunsaði Juncker út og sagði að
hann myndi aldrei aftur taka þátt
í svona fundi.
EVRÓPUSAMBANDIÐ
Strunsaði út úr
hálftómum þingsal
Vígasveitir sem njóta stuðnings
Bandaríkjamanna hafa brotið sér
leið í gegnum borgarmúra gömlu
miðborgarinnar í Raqqa í Sýrlandi,
einu höfuðvígi Ríkis íslams.
AFP-fréttastofan hefur eftir tals-
mönnum Bandaríkjahers að með
þessu hafi orðið þáttaskil í barátt-
unni gegn Ríki íslams.
Aukin kraftur í sókn Írakshers,
Bandaríkjahers og bandamanna
þeirra gegn samtökunum í írösku
borginni Mósúl þykir veikja stöðu
hryðjuverkasamtakanna enn frekar.
Ríki íslams náði Raqqa á sitt vald
árið 2014 og lýsti þá borgina höfuð-
borg kalífadæmis síns. Talið er að
um 2.500 vígamenn samtakanna
reyni nú að verja borgina, en margar
af blóðugustu opinberu aftökum Rík-
is íslams hafa verið framkvæmdar í
Raqqa.
Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað
lýst þungum áhyggjum af hlutskipti
allt að 100.000 óbreyttra borgara,
sem talið er að enn séu innikróaðir í
borginni. urdur@mbl.is
Þáttaskil í baráttunni
gegn Ríki íslam í Sýrlandi
AFP
Raqqa Borgin hefur verið undir
valdi Ríkis íslams síðan árið 2014.