Morgunblaðið - 05.07.2017, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2017
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
ÖFLUGUR VINNUFÉLAGI
Auðveldaðu þér vinnuna með góðum græjum
Hleðsluborvél
EY 74A2 PN2G32
Patróna: 13 mm
Rafhlaða: 18V, 2 x 3,0 Ah
Li-Ion KOLALAUS
1,8 kg
ToughTool IP
Verð:
39.200 kr.
Hann kveðst ekki hafa ferðast
mikið um landið áður en hann fór
að vinna sem tónlistarmaður.
„Tónlistin hefur hjálpað mér við
að átta mig á fegurð landsins, ég
gerði mér ekki grein fyrir henni
fyrr en ég fór að ferðast um land-
ið til þess að spila.“ Hann segir
jafnframt að Íslendingar séu svo-
lítið góðu vanir og átti sig ekki á
hve magnað það sé að geta farið
rétt út fyrir borgarmörkin til að
dást að náttúrunni.
„Það er svo gaman að taka rúnt
um landið yfir sumartímann og
vonandi verðum við heppnir með
veður. Við erum hressir og vonum
að fólk verði hresst með okkur í
sumar,“ segir Valdimar að lokum.
Nánari upplýsingar um dagsetn-
ingar og miðasölu er að finna á
tix.is.
Ljósmynd/Hekla Dögg Ólafsdóttir
Félagar Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn í sumarblíðunni.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rokksveitin Atómstöðin snýr aftur
eftir langt hlé á tónlistarhátíðinni
Eistnaflugi sem hefst í dag í Neskaup-
stað. Atómstöðin leikur á föstudaginn,
7. júlí og það snemma, kl. 14 og degi
síðar í Beitiskúrnum kl. 22. Reyndar
heitir hljómsveitin núna Atomstation
til einföldunar, að sögn forsprakka
hennar, söngvarans og leikarans Guð-
mundar Inga Þorvaldssonar. „Við
ákváðum að vera bara með eitt nafn,
þetta var orðið svo flókið. Við hétum
„Atómstöðin/Atomstation“ á Spotify
og Facebook og þetta var bara orðið
eitthvað misheppnað. Við ætlum að
heita opinberlega Atomstation en við
verðum örugglega alltaf kallaðir At-
ómstöðin á Íslandi sem er allt í lagi.“
Risin úr löngum dvala
Atómstöðin var stofnuð árið 2003 og
hefur sent frá sér tvær breiðskífur
auk nokkurra smáskífna en síðasta
plata, Exile Republic, kom út árið
2008. Sveitina skipa auk Guðmundar
þeir Örn Ingi Ásgeirsson, Óttar Brans
Eyþórsson, Hróbjartur Róbertsson
og Prins Grímsson.
Hljómsveitin sendi fyrir fáeinum
dögum frá sér nýtt lag, „Ravens of
Speed“, af væntanlegri breiðskífu,
BASH, og rauf þar með níu ára út-
gáfuhlé. Guðmundur er spurður að því
hvers vegna hljómsveitin hafi legið
svo lengi í dvala. „Það er vegna þess
að Örn Ingi trommari fékk MS-
sjúkdóminn og lá lengi milli heims og
helju. Við áttum að spila á Iceland
Airwaves árið 2008 og þangað voru
mættir margir blaðamenn til að sjá
okkur spila. Þá var ég fluttur til Eng-
lands en kom heim og við æfðum.
Daginn fyrir tónleika sagði Örn að sér
liði svo illa, hann var alltaf að missa
kjuðana og leið undarlega. Hann fór
upp á spítala og læknarnir vildu ekki
senda hann aftur heim. Þannig að ég
þurfti bara að fara á giggið og segja að
því miður gætum við ekki spilað,“ seg-
ir hann. Guðmundur segist þá hafa
verið fluttur til London og málin
þróast þannig að lífið tók yfir, hljóm-
sveitarmeðlimir eignast börn og fluttu
út á land eða til útlanda. Örn hafi ekki
haft heilsu til að leika áfram með
sveitinni og því hafi hljómsveitin lagst
í dvala.
Orkan enn til staðar
„Svo ákváðum við í fyrrasumar að
prófa að hittast og telja í og þá kom í
ljós að nóg var eftir af töfrunum. Við
vorum bara komnir með fullt af lögum
eftir nokkrar æfingar,“ heldur Guð-
mundur áfram. Var þá ákveðið að ráð-
ast í gerð nýrrar breiðskífu en þegar
komið var að því að hefja upptökur
komst hljómsveitin óvænt í samband
við Scott Hackwith, bandarískan upp-
tökustjóra í Los Angeles sem rekur
hljóðverið Cassette Recordings og
hefur starfað með stjörnum á borð við
Iggy Pop og Ramones. Hackwith fékk
sendar prufuupptökur með hljóm-
sveitinni og leist vel á. „Hann sagði að
þetta væri æðislegt stöff og akkúrat
tónlist sem ætti að taka upp í LA, LA-
rokk,“ segir Guðmundur og að hljóm-
sveitin hefði flogið til LA í mars sl.
Guðmundur segir flugferðirnar hafa
kostað það lítið að ferðin hafi í raun
borgað sig. „Svo er kannski enn mik-
ilvægara að þegar menn eru komnir á
þennan aldur, allir með fjölskyldu og
vinnu og allt þetta, þá er tíminn það
verðmætasta sem þú átt. Að vera
saman í tíu daga í LA, enginn að fara
að gæta barnanna sinna eða í vinnuna,
var bara ómetanlegt,“ bætir hann við.
Rokk í anda vesturstrandar
„Við höfum alltaf verið mjög hrifnir
af Guns N’ Roses, Stone Temple Pil-
ots og þessari vesturstrandarsenu. Í
gamla daga hlustaði maður á Poison
og Mötley Crüe, öll þessi gömlu vest-
urstrandarbönd, glysrokkið og allt
þetta. Einhvern veginn virðist sá
bræðingur sem verður til þegar þessir
fimm menn í hljómsveitinni koma
saman verða svolítið þannig, rokk og
ról í þessum stíl,“ segir Guðmundur
um tónlist Atomstation. BASH verði
mun meira í þeim anda en platan sem
Atómstöðin sendi síðast frá sér. „Við
tókum þessa plötu upp á tíu dögum,
vorum að laga eitt og annað en ég held
að hún verði heilsteyptari og hrárra
rokk og ról,“ segir hann. Upptöku-
stjórinn Joshua Hawksley hafi tekið
hljómsveitinni opnum örmum en hann
er samstarfsmaður Scotts Hackwith.
„Hawksley var nú maðurinn sem tók
okkur meira upp, Scott var meira í því
að hlusta og gefa álit. Joshua var á
tökkunum og er algjörlega frábær
gæi,“ segir Guðmundur. „Upphaflega
ætluðum við bara að ná trommum,
bassa og söng en hann vann bara svo
hrikalega hratt og vel að við náðum
gíturum og öðru með þessu.“
Guðmundur segir þá Hackwith og
Hawksley afar öflugt teymi og að í
hljóðverinu hafi mátt sjá merkileg tól
og tæki, m.a. hljóðnema sem hann hafi
fengið að syngja í og metinn er á
18.000 dollara. Græjurnar og hljóð-
færin hafi skipt Hawksley miklu máli
og hann m.a. útvegað sérstakt
trommusett, Ugly, til að ná rétta
hljóminum. „Eins og þú sérð á mynd-
bandinu sem við tókum upp þá var
helvíti gaman hjá okkur,“ segir Guð-
mundur og vísar í myndband við lagið
„Ravens of Speed“ sem finna má á
YouTube. Sjón er sögu ríkari.
Hrárra rokk og ról
Atomstation tók upp plötu með fyrrverandi upptökustjóra Ramones í Los
Angeles Ómetanlegt að fá tíu daga án truflana í LA Spila á Eistnaflugi
Í LA Félagarnir í Atómstöðinni, sem nú heitir Atomstation, í sólinni í Los Angeles í mars síðastliðnum.
Tónlistarhátíðin Eistnaflug
hefst í dag í Neskaupstað og
stendur yfir í fjóra daga. Að
vanda verður þungarokk þar í
öndvegi,
þótt finna
megi léttara
efni inn á
milli. Stefán
Magnússon,
stofnandi
og fram-
kvæmda-
stjóri hátíð-
arinnar,
segir að
dagskráin í ár sé líklega betri en
í fyrra. „Við erum að fá Sepult-
ura-mennina á svæðið til að
taka Roots-plötuna sem er goð-
sagnakennd í heimi þunga-
rokksins,“ segir hann um það
sem hæst ber á dagskrá hátíð-
arinnar í ár og á þar við bræð-
urna Max og Igor Cavalera sem
stofnuðu málmbandið Sepult-
ura fyrir rúmum þremur áratug-
um í Brasilíu.
Cavalera-bræður eru þó langt
frá því að flytja þyngsta rokkið
á hátíðinni og nefnir Stefán
ítölsku hljómsveitina Naga sem
eina þá allra þyngstu. „Hún er
bara beint frá helvíti!“ segir
Stefán um Ítalina sem leika
svartmálm. Stefán segir að
Bandaríkjamennirnir í Neurosis
séu þó öllu þyngri. „Þeir eru
náttúrlega bara tonn af öskri,“
segir Stefán um þá. Og hvaða
áhrif skyldi svona tónlist hafa á
líkamsstarfsemi tónleikagesta?
„Blóðrásin er stöðug á alla
bestu staði líkamans, þetta er
ótrúleg hljómsveit,“ svarar
Stefán. Af öðrum merkum rokk-
sveitum hátíðarinnar nefnir
Stefán The Dillinger Escape
Plan frá Bandaríkjunum og ís-
lenskar sveitir sem margar
hverjar eru með nýjar breið-
skífur í farteskinu, m.a. Ham,
Brain Police og Sólstafi.
Frekari upplýsingar um hátíð-
ina, dagskrá hennar og hljóm-
sveitir má finna á vefsíðu henn-
ar, eistnaflug.is.
Málmur beint
frá helvíti
EISTNAFLUG HEFST Í DAG
Stefán Magnússon.