Morgunblaðið - 15.07.2017, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.07.2017, Qupperneq 1
Spilar alltaf meðhjartanu Óvinsællien pabbi Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta segir meiðsli sem hún varð fyrir snemma á ferlinum hafa mótað sig og gert sig að sterkari leikmanni. Hún segir fyrsta markmið landsliðsins á EM alveg skýrt: íslenska landsliðið ætli sér að komast upp úr riðlinum. Eftir það geti allt gerst. 14 16. JÚLÍ 2017SUNNUDAGUR Belfast heillarferðamenn Donald Trumpyngri er líklegaumtalaðastiBandaríkja-maðurinnþessa daganaog það kemur ekki til af góðu 8 Áður ríkti ófriður en nú erandrúmsloftið afslappað 28 Frægirí framboð?Katy Perry og Kanye West eru meðalstjarna sem hafa lýst áhuga á því aðverða næsti forseti Bandaríkjanna 36 L A U G A R D A G U R 1 5. J Ú L Í 2 0 1 7 Stofnað 1913  169. tölublað  105. árgangur  FLUTTI TIL ESSEX TIL AÐ LÆRA DANS TÍMI, FORM OG RADDIR Á SUMAR- TÓNLEIKUM TÓNSKÁLD Í SKÁLHOLTI 44FÓTAFIMUR 12 Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu hélt í gær til Hollands þar sem liðið mun leika í úr- slitakeppni Evrópumótsins. Fjöl- mennt var í brottfararsal Leifs- stöðvar og fögnuðu viðstaddir liðinu er það gekk í gegnum sal- inn. Fjölmiðlafár var einnig í kringum liðið. Skynja mátti eft- irvæntingu og gleði hjá leik- mönnum og aðstandendum þeirra, en liðið horfði á hvatning- armyndband áður en það hélt út í flugvél. Stelpurnar okkar stilltu sér upp í myndatöku með bros á vör, þrátt fyrir hávaðarok og rigningu. Ísland mætir Frakklandi í fyrsta leik úrslitakeppninnar á þriðjudaginn, en leikið verður í Tilburg. » 17, Íþróttir Stelpurnar okkar stefna á átta liða úrslit á EM í Hollandi Morgunblaðið/Hanna Halda á vit ævintýranna Baldur Arnarson baldura@mbl.is Innflutningur á eldsneyti jókst um 77% árin 2012 til 2016. Vegna lækkandi olíuverðs minnkaði verð- mæti innflutningsins um 18%. Með sama áframhaldi verður innflutn- ingurinn tvöfalt meiri í ár en árið 2012. Þetta má ráða af samantekt Hagstofunnar fyrir Morgunblaðið. Aukin eldsneytisnotkun vitnar um mikinn hagvöxt og stóraukin umsvif í ferðaþjónustu. Hluti af aukningunni er tilkominn vegna eldsneytis sem íslenskir lögaðilar keyptu erlendis. Hlutur íslenskra flugfélaga var þar stór, var t.d. 80% í fyrra. Sé erlendi hlutinn undanskilinn jókst notkunin um 24% árin 2013 til 2016. Samtímis því sem Íslendingar keyptu meira af olíu á lægra verði hafa skatttekjur ríkisins af öku- tækjum aukist verulega síðustu ár. Þær munu að óbreyttu nálgast 50 milljarða í ár en voru 36 millj- arðar 2013. Ekki aðeins flytur þjóðarbúið inn meiri olíu, Landsbankinn spáir neikvæðari vöruskiptajöfnuði næstu ár. Samt muni gengið styrkjast. Júní var fyrsti mánuðurinn síð- an í september 2013 sem Seðla- bankinn seldi meira af evrum en hann keypti. Á millibankamarkaði er eingöngu höndlað með evrur. Magnús Stefánsson, hagfræð- ingur hjá Landsbankanum, segir sölu Seðlabankans á evrum fyrir alls um 4,65 milljarða á síðustu vikum hafa verið viðbrögð við veikingu krónunnar. „Þetta er mótvægisaðgerð. Seðlabankinn er að draga úr flökti í genginu,“ seg- ir Magnús. Notum meiri olíu  SÍ seldi fleiri evrur en hann keypti í júní MAukinn innflutningur … »10 Innígrip Seðlabankans maí júní júlí Seðlabankinn selur evrur Seðlabankinn kaupir evrur EUR/ISK 27. júní: 1.071 m.kr. 11. júlí: 1.113 m.kr. 21. júní: 2.462 milljónir kr.  Mikil uppbygging er í Vest- mannaeyjum. Elliði Vignisson, bæj- arstjóri þar, segir atvinnulífið þar í bæ hafa fjárfest fyrir 15 til 20 millj- arða og að 60 íbúðir og einbýlishús séu í byggingu eða í undirbúningi. Vestmannaeyjabær og samstarfs- aðilar standa að fasteignaþróunar- verkefni í yfirgefnum fiskvinnslu- húsum Fiskiðjunnar og Ísfélagsins í miðbænum. Starfsemi í húsunum verður fjölbreytt, átta lúxusíbúðir verða á þaki Fiskiðjunnar og hvala- sundlaug verður á jarðhæð ásamt þekkingarsetri, sjávarklasa og hugsanlega þjónustustofnunum bæjarins. Í Ísfélagshúsinu verða þjónustu- íbúðir og sambýli fyrir fatlað fólk, gallerí og almennar íbúðir. »14 Fasteignauppbygging Lúxusíbúðir á þaki Fiskiðjunnar með stórkostlegu útsýni. Mikil uppbygging í Eyjum og hvala- sundlaug fyrirhuguð  Margir smá- bátasjómenn hafa misst að- stöðu sína í ver- búðunum við Grandagarð og neyðst til að fara annað, m.a. í Mosfellsbæ. Mikil uppbygging hef- ur verið á svæðinu og ásýnd þess breyst mjög í kjölfar örs vaxtar ferðaþjónustu í miðborginni. Ver- búðir hýsa nú ísbúðir og veit- ingastaði í stað aðstöðu fyrir smá- bátasjómenn. Formaður Smábátafélags Reykjavíkur segir að huga verði að framtíðinni og ekki megi þrengja um of að hafsækinni starfsemi við Reykjavíkurhöfn. Aðstoðarhafn- arstjóri Faxaflóahafna segir það ei- lífan dans að samþætta sjávar- útvegsstarfsemi og annan rekstur á Granda. »6 Verbúðir hýsa ísbúð- ir, ekki trillukarla  Örvandi lyf á borð við rítalín, sem notuð eru við ADHD, voru sá lyfjaflokkur sem kostaði Sjúkratrygg- ingar Íslands, SÍ, mest á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýjum staðtölum SÍ fyr- ir árið 2016 og þar segir að kostn- aðurinn við þessa tegund lyfja hafi verið 799 milljónir í fyrra. Í tölunum kemur einnig fram að ávísunum á sterk verkjalyf hafi fjölgað frá árinu á undan. »4 Mest útgjöld voru vegna ADHD-lyfja Rítalín Lyfið er notað við ADHD.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.