Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 2

Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Það vakti aðdáun þegar félagar í karlakórnum Hreimi úr Þingeyjarsýslum komu saman í Ás- byrgi í gærkvöldi og sungu nokkur lög. Tilefnið var heimsókn sjónvarpsmanna frá BBC sem eru að fjalla um líf eldra fólks í ýmsum löndum og þótti þeim tilvalið að heimsækja hina þingeysku söngvara sem Steinþór Þráinsson stjórnar. Um- hverfið á tónleikastað er einstakt og ekki spillir fyrir hve hljómburðurinn er góður enda komu margir til að heyra bergmálið í klettunum háu í Ásbyrgi, þar sem var frábært veður í gærkvöldi. sbs@mbl.is Hreimsfélagar sungu svo undir tók í klettunum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bergmálssöngur fyrir BBC í Ásbyrgi Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar um áhættumat vegna mögulegrar erfðablöndunar frá laxeldi segir að nokkur áhrif verði á Laugardalsá, Langadalsá í Ísafjarðardjúpi og Breiðdalsá í Breiðdalsvík. Þessar ár þurfi að vakta sérstaklega og því er lagt til að ekki verði leyft eldi í Ísa- fjarðardjúpi vegna mögulegra mik- illa neikvæðra áhrifa á laxastofna í Djúpinu. Af sömu ástæðum er lagt til að eldi verði ekki aukið í Berufirði og lagst gegn eldi í Stöðvarfirði vegna nálægðar við Breiðdalsá. Pétur G. Markan, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir þessa niður- stöðu ekki bara vera áfall heldur hamfarir miðað við þá atvinnu- uppbyggingu sem unnið hefur verið að á svæðinu. „Það eru sorgarviðbrögð í fjórð- ungnum en við verðum samt að halda yfirvegun okkar og vinna áfram í málinu,“ segir hann og bend- ir á að laxeldi sé ung atvinnugrein og líkur á að þessu verði breytt. „Fiskeldi er ung atvinnugrein, bæði fyrir þá sem standa að henni og líka þá sem sinna eftirliti, í raun allt fagkerfið. Ég á því von á að þetta mat eigi eftir að taka breytingum eftir því sem menn vinna svona bet- ur.“ Umhverfisvænt og hagkvæmt Pétur segir Vestfirði sem fjórð- ung hafa átt afskaplega erfitt upp- dráttar og fiskeldi sé sú atvinnu- grein sem veðjað hafi verið á til að koma atvinnumálum þar í betra horf. „Þessi atvinnugrein sem slík hent- ar öllum þeim skilmálum sem Vest- firðingar hafa sett sér. Hún er um- hverfisvæn og nútímaleg og öflug á hagrænu stigi,“ segir Pétur og bend- ir á að Vestfirðir séu eini staður landsins sem hafi ekki leitað í stór- iðju. „Fjöldi ólíkra og góðra starfa fylgir fiskeldi, sem er auk þess um- hverfisvæn atvinnugrein. Miðað við fyrstu yfirferð sýnist mér ekki tekið tillit til mótvægisaðgerða,“ segir Pétur og nefnir sem dæmi að í skýrslunni séu taldar líkur á að lax sleppi úr kví en gegn því séu marg- víslegar mótvægisaðgerðir sem ekk- ert tillit sé tekið til. Ekki náðist í Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, við vinnslu fréttarinnar. Samkvæmt samtali við Páls Rafnars Þorsteinssonar aðstoð- armann hennar byrjaði hún í sum- arfríi í gær og var því ekki til viðtals. Sorgarviðbrögð í fjórðungnum  Hafrannsóknastofnun leggur til að ekki verði leyft eldi í Ísafjarðardjúpi vegna mögulegra mikilla neikvæðra áhrifa á laxastofna í Djúpinu  Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segir niðurstöðuna áfall Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Laxeldi Engin stóriðja er á Vestfjörðum og treystir fólk í landsfjórð- ungnum á fiskeldi sem umhverfisvænan kost í atvinnuuppbyggingu. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í skýrslu starfshóps sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði til að fara yfir skattskil af erlendri ferðaþjón- ustustarfsemi er m.a. lagt til að lög- fest verði skylda erlendra ferðaþjón- ustuaðila sem hafa með höndum skattskylda starfsemi hér á landi til að standa skil á skattgreiðslum áður en ökutæki er flutt úr landi, að við- lögðum refsingum. Samhliða verði málsmeðferðarreglur skattalaga skoðaðar í slíkum tilvikum með ein- földun að leiðarljósi. Starfshópurinn var settur á laggirn- ar vegna ábendinga sem fram hafa komið um ójafna samkeppnisstöðu ís- lenskra ferðaþjón- ustuaðila gagnvart erlendum keppi- nautum, einkum á sviði hópferða. „Ég fagna þessari niðurstöðu og vona að stjórnvöld fylgi skýrsluni eft- ir,“ segir Grímur Sæmundsen, for- maður stjórnar Samtaka ferðaþjónustunnar. „Mestu máli skiptir að þeir sem starfa í ferðaþjónustu sitji við sama borð. Þetta er atvinnugrein sem hefur verið í miklum vexti og vex enn. Þeim mun frekar verður að gæta vel að málum sem þessum.“ Grímur segir í mörg horn að líta enda um flókið mál að ræða. Hér skipti máli hvort aðili hafi fasta starfs- stöð, hvort undanþágur tvísköttunar- samninga eigi við o.fl. Ábendingar skýrslunnar snúa fyrst og fremst að skattskilum erlendu að- ilanna, einkum skilum á virðisauka- skatti en einnig mögulegri tekju- skattsskyldu þeirra hérlendis vegna þessarar starfsemi, staðgreiðslu- skyldu vegna launamanna á þeirra vegum, sem og greiðslu aðflutnings- gjalda. Þá segir í skýrslunni að ákvæði tollalaga er varðar tollfrelsi skemmtiferðaskipa í innanlandssigl- ingum verði viðhaldið, en þó þannig að lagaumhverfið verði skýrt og þrengt. Allir sitji við sama borð  Tryggja þurfi að erlendir aðilar í ferðaþjónustu á Íslandi greiði með réttum hætti skatta og gjöld hér á landi Grímur Sæmundsen Myllusetur ehf., sem gefur út Viðskiptablaðið, Fiskifréttir og Eiðfaxa, hefur samkvæmt heim- ildum Morgun- blaðsins keypt tímaritið Frjálsa verslun af Út- gáfufélaginu Heimi hf., sem er í eigu Talnakönnunar hf. Með söl- unni á Frjálsri verslun lýkur Heimur sölu á tímaritum sínum, en fyrirtækið gaf meðal annars út Iceland Review, Vísbendingu og Ský. Frjáls verslun er elsta viðskipta- tímarit landsins og hefur komið út frá árinu 1939. Ritstjóri þess er Jón G. Hauksson. Engar ákvarð- anir hafa verið teknar um breyt- ingar á útgáfu tímaritsins. Myllusetur kaupir Frjálsa verslun Heiðar Orri Þorleifsson, 31 árs gam- all karlmaður sem lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu lýsti eftir í fyrra- dag, fannst látinn um hádegisbilið í gær. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki sé talið að andlát Heiðars Orra hafi borið að með saknæmum hætti og er þar komið á framfæri þökkum frá fjölskyldu hans til þeirra sem að- stoðuðu við leitina að honum. Fannst látinn eftir leit Fyrsta húsið sem Högna Sigurðar- dóttir arkitekt teiknaði er nú til sölu. Högna var fyrsta íslenska konan til að útskrifast sem arkitekt og má því líklega segja að húsið, sem stendur við Brekkugerði 19 í Reykjavík, sé fyrsta húsið sem hannað er af ís- lenskum kvenkyns arkitekt. Högna teiknaði húsið árið 1961 og var það fullbyggt tveimur árum síðar. Húsið ber sterk höfundareinkenni en í verkum sínum lagði Högna áherslu á tengsl byggingar við nátt- úruna. Innveggir hússins eru úr ómálaðri og ópússaðri steypu en það mun vera í fyrsta sinn sem slíkt var gert hér á landi. Ljær það húsinu hráan blæ sem kallast á við viðarinn- réttinguna. Lítið rúm var fyrir garð á lóðinni og kaus Högna því að gera garð á þaki hússins. Í húsinu er einn- ig innilaug á jarðhæð sem tengd er þakgarðinum með hringstiga en svæði laugarinnar er klætt flísum úr Drápuhlíðarfjalli. alexander@mbl.is Sögufrægt Högnu- hús er nú til sölu Ljósmynd/Sverrir Gunnlaugsson Til sölu Eigendur hafa haldið hús- inu í svo til upprunalegri mynd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.