Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
Síðasta heila árið sem Herjólfur
sigldi til Þorlákshafnar voru farþegar
127.000 að sögn Elliða en búast má
við 350.000 ferðamönnum í ár og vel
yfir 400.000 þegar ný ferja kemur á
næsta ári ef allt gengur upp.
Risavaxin fasteignaþróun
Leigusamningur hefur verið und-
irritaður við Merlin Entertainment
eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki
heims að sögn Elliða, um afnot af
1.000 fm af jarðhæð Fiskiðjunnar. „Í
samstarfi við Merlin flytjum við fiska-
og náttúrugripasafnið okkar þangað.
Þeir munu svo byggja upp flottasta
fiska- og náttúrugripasafn landsins.
Til viðbótar þessu er stefnt að því að
byggja sundlaugarathvarf fyrir hvali
og hús þar við hliðina. Í lauginni er
gert ráð fyrir 1.500 tonnum af sjó,“
segir Elliði. Hann segir leigusamn-
inginn taka þegar leyfi fáist til þess
að flytja hvalina til landsins.
„Undir lauginni verður ef til vill
bílakjallari. Á aðra hæð flyst þekk-
ingarsetrið með rannsóknar- og há-
skólastarfsemi sem verður að eins
konar sjávarklasa. Við erum að skoða
að flytja félagsþjónustu, tæknideild
og stjórnsýslu Vestmannaeyjabæjar
undir einn hatt á þriðju hæðina.
Fjórða hæðin fer svo undir þakíbúðir
sem Stefán Lúðvíksson í Eyjablikki
byggir. Þetta er skemmtilegt módel
og hver einasti fermetri nýttur,“ seg-
ir Elliði.
„Við auglýstum eftir samstarfs-
aðilum um fasteignaþróun í Ísfélags-
húsinu. Byggingarfélagið Steini og
Olli voru hlutskarpastir í hugmynda-
samkeppni og í samstarfi við þá kom
upp sú hugmynd að nota bogahluta
Ísfélagsins undir gallerí eða einhvers
konar listamiðstöð og íbúðir á jarð-
hæðinni. Á annarri hæð er stefnt á
sambýli fyrir fatlaða. Núverandi sam-
býli er barns síns tíma. Öryrkja-
bandalagið á það hús og hefur hug á
að bjóða öryrkum íbúðirnar til leigu.
Við munum fjölga úrræðum fyrir fatl-
aðra og bjóða auk sambýlisins í Ís-
félaginu leiguíbúðir fyrir fatlaða á
þriðju hæðinni. Þar verður boðið upp
á sjálfstæða búsetu í eins konar þjón-
ustuíbúðum. Þar sem fatlaðir geta
leigt húsnæði og notið öryggis af ná-
býli við sambýlið. Á hluta þriðju hæð-
ar og á allri fjórðu hæðinni verða
íbúðir sem Steini og Olli byggja,“ seg-
ir bæjarstjórinn stoltur af risavöxnu
fasteignaþróunarverkefninu sem
bærinn stendur að með samstarfs-
aðilum.
Samkeppni við höfuðborgina
„Við höfum verið að tosast upp í
4.300 íbúa,“ segir Elliði spurður um-
fjölgun nýbygginga sem ekki eru al-
veg í takt við fjölgun íbúa.
Elliði segir þarfir hafa breyst. Í
dag séu fleiri fermetrar á bak við
hvern íbúa. Í stórum húsum þar áður
bjuggu 10 til 12 manns búi nú fjórir í
dag. „Við þurfum að bregðast við og
bjóða upp á fjölbreyttara húsnæð-
isúrræði. Þörfin í dag held ég að sé á
fyrstu og seinustu íbúð og þar hefur
Hvalasundlaug og
þakíbúðir í sama húsi
Sjávarklasi, sambýli, gallerí, í gömlum fiskvinnsluhúsum
Blikksmiður byggir lúxusíbúðir 60 íbúðir í smíðum
Morgunblaðið/Ófeigur
Uppbygging Elliði Vignisson með Ísfélagið og Fiskiðjuna í baksýn.
Fasteignaþróun Svona líta gömlu fiskvinnsluhúsin út eftir endurbætur.
Íbúðir Lúxusíbúðir á þaki Fiskiðjunnar. Fjölbreyttar íbúðir verða í Ísfélaginu.
SVIÐSLJÓS
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Gömul fiskvinnsluhús í miðbæ Vest-
mannaeyja fá nýtt hlutverk.Vest-
mannaeyjabær og samstarfsaðilar
hafa nú hrundið af stað fast-
eignaþróunarverkefni í 15 til 18.000
fermetra húsnæði. Starfsemi í húsinu
verður fjölbreytt allt frá sundlaug
fyrir hvali á jarðhæð upp í lúxusíbúðir
með garði á fjórðu hæð.
Mikil og víðtæk uppbygging hefur
átt sér stað í Vestmannaeyjum und-
anfarið og áætlar Elliði Vignisson,
bæjarstjóri að fjárfestingar atvinnu-
lífsins í húsum, kvótum og bátum séu
á milli 15 og 20 milljarðar.
„Þegar atvinnulífið stendur sterkt
ríkir almenn bjartsýni. Það eru 60
íbúðir og einbýli í byggingu eða í und-
irbúningi í sveitarfélaginu. Bærinn
hefur ekki látið sitt eftir liggja. Lokuð
deild fyrir heilabilaða og Alzheim-
ersjúklinga er í byggingu við dval-
arheimilið Hraunbúðir og verið er
bjóða út stækkun við leikskólann
Kirkjugerði auk annarra viðhalds-
framkvæmda,“ segir Elliði. Hann
bætir við að stærsta verkefni bæj-
arins sé fasteignaþróunarverkefni
sem tengist gömlu frystihúsunum í
miðbænum.
„Við vorum hrædd við að fella hús-
in og fá tóman blett í miðbæinn. Það
kom tóm í hann þegar fiskvinnsl-
urnar færðu starfsemi sína úr mið-
bænum fyrir 3 til 4 árum. Í upphafi
stóð til að halda hluta af Fiskiðjunni
og fella stóran hluta Ísfélagsins en
húsin eru sambyggð að hluta. Vissu-
lega voru deildar meiningar um hvað
skyldi gera. En þegar byrjað var að
rífa Fiskiðjuna kom í ljós að ýmislegt
var hægt að gera við bæði húsin,“
segir Elliði
Milljarða fjárfestingar í Eyjum
„Með gríðarlegum fjárfestingum
fiskvinnslunnar skapast mikið öryggi
fyrir íbúa Vestmannaeyja. Það skipt-
ir öllu fyrir okkur sem búum í sjáv-
arplássum að fyrirtæki fjárfesti í
landi af því það eru fjárfestingar sem
ekki verða svo glatt í burtu teknar.
Bátar og kvóti geta siglt í burtu hve-
nær sem er en þegar búið er að fjár-
festa fyrir milljarða á milljarða ofan í
landi þá eykur það byggðafestuna og
það breytir miklu fyrir okkur,“ segir
Elliði og bætir við að á sama tíma hafi
ferðaþjónustan vaxið gríðarlega.
Tölvuteikning/Fiskiðjan fasteignafélag