Morgunblaðið - 15.07.2017, Qupperneq 15
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
verið vöntun á íbúðum,“ segir Elliði
sem tekur fram að ferðaþjónustan sé
ekki að gleypa húsnæði í Eyjum.
Hlutfall þeirra sem vilja koma og búa
í Eyjum án þess að kaupa sér hús-
næði strax hefur aukist og leigu-
markaðurinn verið mjög þröngur að
sögn Elliða. „Ég held að séreignar-
hugsunin eigi við hér eins og á flest-
um öðrum stöðum á landsbyggðinni.
Fólk vill búa í eigin húsnæði,“ segir
Elliði og bendir á að ungt fólk undir
þrítugu sé byggja sér töluvert stór
einbýlishús í Eyjum.
„Við finnum aðeins fyrir því að fólk
er að flýja fasteignamarkaðinn á höf-
uðborgarsvæðinu. Landsbyggðin
spilar eftir öðrum mælistikum. Það er
ofboðslegur sogkraftur frá borginni
til fólks af landsbyggðinni. Störfin
þar þarf að manna. Landsbyggðin er
enn með mun einhæfara atvinnulíf og
eðlilega hefur það áhrif sérstaklega á
ungt fólk,“ segir Elliði sem telur að
þegar fólk sé komið með ákveðna
starfsreynslu og fer að eignast börn
þá sæki það aftur í lífsgæðin á lands-
byggðinni.
„Okkar leið til þess að mæta þeirri
þörf er að tryggja hátt þjónustustig.
Bæði í þjónustu við barnafólk og eldri
borgara og í raun alla aðra þjón-
ustuhópa. Þetta skýrir þann mikla
framkvæmdahug sem hér er,“ segir
Elliði og tekur fram að sveitarfélagið
geti brugðist við harðnandi sam-
keppni um íbúa með háu þjón-
ustustigi. Hann segir mjög hátt þjón-
ustustig í Vestmannaeyjum en alltaf
megi gera betur.
Elliði segir að það sem helst vanti
upp á þjónustustigið séu betri sam-
göngur. „Þær eru okkur ofboðslega
óþægur ljár í þúfu og gríðarlega heft-
andi bæði á þróun atvinnulífsins og
lífsgæði íbúa. Eftir að hafa reynt í
mörg ár þá höfum við gefist upp á að
vera á línunni og höfum einbeittan
vilja til þess að taka yfir rekstur
Herjólfs.“
Full samstaða er um að taka yfir
rekstur Herjólfs innan bæjar-
stjórnar og meðal flestra bæjarbúa
að sögn Elliða. „Hjá rekstaraðilum
telur innkoman en fyrir samfélagið
telja áhrifin af hverri ferð í veld-
isreikningi. Áhrifin eru langt út fyrir
það sem sést í bókhaldgögnum,“ seg-
ir Elliði sem horfir björtum augum til
framtíðar.
Þakgarður Íbúðir með einstöku út-
sýni yfir hafnarsvæðið og Heima-
klett af þaki gamla Fiskiðjuhússins.
Stefán Lúðvíksson blikksmíðameistari
byggir átta þakíbúðir á gamla Fiskiðju-
húsinu í Vestmannaeyjum. Stærðir
íbúðanna verða 86 til 220 fermetrar, til
stóð að byggja íbúðir þar sem gömlu
verbúðirnar voru en byggingarmáti
fyrri tíma bauð ekki upp á þær lúxus-
íbúðir sem byggðar verða.
Hvað fær eiganda blikksmíðaverk-
stæðis til þess að fara út í byggingar á
lúxusíbúðum? ,,Ég var hræddur um að
það yrði lítið að gera og ákvað að búa
til meiri vinnu,“ segir Stefán hlæjandi.
,,Reyndar datt mér þessi vitleysa í
hug þegar ég sat og horfði á Heima-
klett út um gluggann heima og sá Fisk-
iðjuhúsið sem nú er verið að byggja
upp af miklum myndarskap. Mig hefur
reyndar alltaf dreymt um að gera upp
gamalt hús en þessi hugmynd er aðeins stærri.“
Stefán segir að íbúðirnar verði „háklassa“. Allar klæðningar verða
læstar álklæðningar. Fjórar íbúðir snúa að Heimakletti og fjórar í
austur-vestur. Garður fyrir íbúanna verður á 4. hæð og bílakjallari
undir húsinu. Ofan á honum er gert ráð fyrir sundlaug fyrir hvalina
sem komið verður fyrir í Klettsvíkinni þar sem Keikó bjó á sínum
tíma.
Stefán hefur rekið fyrirtæki sitt Eyjablikk í 20 ár og segir alltaf nóg
að gera. Þrátt fyrir að fiskvinnslufyrirtækin séu að tæknivæðast, þá
þurfi þau alltaf sitt viðhald.
Sjálfur ætlar hann að búa í einni þakíbúðinni. ,,Það verða aldrei
byggðar svona íbúðir aftur í Eyjum. Það er engin önnur staðsetning
sem toppar þetta, að geta fylgst með lífinu á bryggjunni. Rómantíkin
að horfa á skipin koma og fara með Heimaklett fyrir augum, það ger-
ist ekki betra. Nema þá að sjá sólina koma upp á milli Helgafells og
Eldfells,“ segir Stefán.
Útsýni sem ekki verður toppað
LÚXUSÞAKÍBÚÐIR VIÐ HÖFNINA
Rómantík Að mati blikksmiðs-
ins Stefáns jafnast ekkert á við
iðandi líf við höfnina.
Tölvuteikning/Fiskiðjan fasteignafélag
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
H
ér
er
að
ei
n
s
sý
n
d
u
r
h
lu
ti
af
b
ílu
m
íb
o
ð
i.
Fu
llt
ve
rð
er
ve
rð
hv
er
s
b
íls
m
eð
au
ka
b
ún
að
i.
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d
um
g
æ
ti
ve
rið
an
na
r
en
ía
ug
lý
st
um
ve
rð
d
æ
m
um
.*
Fi
m
m
ár
a
áb
yr
g
ð
g
ild
ir
ek
ki
m
eð
at
vi
nn
ub
ílu
m
.
KJARAKAUP 2.890.000
VW Polo CrossPolo 1.4 TDI / Dísil / Beinskiptur
Fullt verð: 3.390.000 kr.
500.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 6.240.000 kr.
Audi A4 Station Sport 1.4 TFSI / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð: 7.800.000 kr.
1.560.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 4.790.000 kr.
VW Tiguan Trendline 2.0 TDI / Fjórhjóladrifinn / Dísil / Sjálfskiptur
Fullt verð: 5.995.000 kr.
1.205.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 2.470.000 kr.
Skoda Fabia Hathcback Ambition 1.2 / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð: 2.890.000 kr.
420.000 kr.
Afsláttur
Afsláttur
KJARA
Skoda
Fullt verð: 4.860.000 kr.
730.000
HEKLA býður einstök kjör á takmörkuðu magni nýrra
sýningarbíla, reynsluakstursbíla og valdra bíla frá Volkswagen,
Skoda, Mitsubishi og Audi – allir með fimm ára ábyrgð.
é
ý
í
í
ð
ð
kr.
Nú er tækifærið
að fá sér nýjan bíl!
KAUP 4.130.000 kr.
Superb Combi Ambition 1.4 TSI / Bensín / Sjálfskiptur
kr.
KJARAKAUP 2.890.000 kr.
VW Polo Comfortline Beats 1.2 TSI / Bensín / Sjálfskiptur / 300 vatta Beats-hljómflutningskerfi
úr smiðju Dr. Dre.
Fullt verð: 3.130.000 kr.
240.000 kr.
Afsláttur