Morgunblaðið - 15.07.2017, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.07.2017, Qupperneq 17
17EM KVENNA Í FÓTBOLTA 2017 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager og á leiðinni Sími 4 80 80 80 2017 GMC Denali Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Nýja 6,6L Duramax Diesel vélin 445 hö. VERÐ 9.890.000 2017 Ford F-350 Lariat 6,7L Diesel, 440 Hö, 925 ft of torque með upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver altert-pakki og Trailer tow camera system. VERÐ 9.490.000 2017 Chevrolet Silverado High Country Nýja 6.6L Duramax Diesel vélin, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. VERÐ 9.790.000 2016 Suburban LTZ Keyrður 2000 km. 7 manna bíll, 4 kapteinsstólar. Með sóllúgu, hiti í stýri, loftkæld og hituð sæti. 22 felgur. 5,3L V8, 355 hö. VERÐ 13.870.000 Einnig til hvítur og svartur Einnig til hvítur Morgunblaðið fór á stúfana og kannaði hvernig almenningur telur að íslenska kvennalandsliðinu muni vegna á Evrópumótinu í sumar. Mikil bjartsýni ríkir meðal fólks og eru flestir orðnir spenntir að fylgjast með því þegar liðið leikur fyrsta leik sinn í mótinu gegn Frökkum á þriðjudaginn. Vegfarendur voru almennt ánægðir með aukna umfjöllun í kringum kvennalandsliðið og segja það af hinu góða. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fólk veitti Morgunblaðinu þekkti það til fjölmargra sem ætla að ferðast til Hollands auk þess sem margir eru enn að skoða þann möguleika að fylgja liðinu út. Það má því gera ráð fyrir mikilli stemningu á leikjum liðsins en talið er að um 3.000 miðar hafi verið seldir til íslenskra stuðningsmanna á hvern leik í riðlakeppninni. Mikil spenna fyrir Evrópumótinu Þær Jóhanna Kristín og Birna Dögg Egilsdóttir segjast vera mjög spenntar fyrir EM í knattspyrnu í Hollandi og þekkja margt fólk sem ætlar út til Hollands. Þær mæðgur eru úr Vestmannaeyjum en voru mættar í bæinn þar sem Birna er að spila með liði ÍBV á Símamótinu. Birna sagðist spennt að sjá Eyjakonuna Sigríði Láru spila á Evrópumótinu í sumar. Spenntar að sjá Eyjakonu á EM „Við spáum því að þær fari alla leið,“ segir Lilja Kristín Magn- úsdóttir létt í bragði þegar blaða- maður Morgunblaðsins spyr hana hve langt hún spáir íslenska liðinu á Evrópumótinu í Hollandi. Hún var stödd í Kringlunni ásamt Benediktu Lovísu Þorvaldsdóttur og Emblu Ásgeirsdóttur. Lilja segist finna fyrir miklum áhuga á Evrópumótinu „Það eru mjög margir í kringum mann að tala um mótið.“ „Við spáum því að þær fari alla leið“ Sverrir Örn er einn þeirra fjöl- mörgu Íslendinga sem lögðu leið sína á Evrópumótið í Frakklandi í fyrra. Hann segist ekki hafa tök á því að end- urtaka leikinn í Hollandi í ár en segist þó þekkja fjölmarga sem ætla til Hollands. Hefur Sverrir mikla trú á íslenska kvennalandsliðinu og spáir því í undanúrslit á mótinu í ár. „Ég held að við förum alla leið í undanúrslitin.“ Veit um fjölmarga sem ætla á EM Þau Hjalti Sigurður Karlsson og Inga Brá Ólafsdóttir sögð- ust ekki hafa sett sig mikið inn í gang mála fyrir Evr- ópumótið í Hollandi. „Ég fylgdist aðeins með nokkrum leikjum á mótinu í Frakklandi, eins og öll þjóðin, en ég var ekki að skipuleggja daginn minn í kringum það,“ segir Hjalti og viðurkennir það fús- lega að vera ekki mikill knatt- spyrnuáhugamaður. Hafa ekki sett sig inn í gang mál Þau Magnús Grétar Ingibergs- son og Lana Sóley Magn- úsdóttir sögðust vera nýkomin frá Hollandi þegar Morg- unblaðið ræddi við þau. „Það er ekki bara mikill áhugi á lið- inu hér, heldur einnig erlendis. Það eru margir að tala um Ís- land og íslenska liðið, sér- staklega frammistöðuna í Frakklandi í fyrra,“ segir Magnús og bætir við að hann hafi mikla trú á liðinu í sumar. Mikill áhugi á landsliðinu erlendis Morgunblaðið/Árni Sæberg Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það verða um 100 manns á okkar vegum á öllum leikj- unum í Hollandi,“ segir Þór Bæring Ólafsson hjá Gam- anferðum um hversu margir munu ferðast með fyr- irtækinu á Evrópumótið. Í kringum EM verða um 80 stelpur í Knattspyrnu- skóla Gamanferða sem allar ætla á leikina en auk þess verður 50 manna hópur frá fyrirtækinu sem fer á tvo eða þrjá leiki hjá íslenska liðinu í riðlakeppninni. „Við vildum gera eitthvað skemmtilegt á meðan EM væri í gangi og ákváðum því að setja saman þennan skóla í Hollandi en skólinn er ætlaður stelpum á aldr- inum 13-16 ára. Okkur tókst vel til og munu afar færir þjálfarar koma í heimsókn og sjá um æfingar. Þess ut- an vildum við bjóða upp á ferðir fyrir fólk sem vill kíkja á leiki íslenska landsliðsins í keppninni.“ Talsvert meiri áhugi Þór segir áhugann á mótinu í ár talsvert meiri en fyrir fjórum árum þegar Evrópumótið í Svíþjóð fór fram. „Við reyndum að setja saman ferð á EM í Svíþjóð 2013 og þá náðist ekki í hópferð. Það var aftur á móti miklu meiri áhugi á þessu móti sem eru frábærar frétt- ir,“ segir Þór og bætir við að hann telji að fjölmargir Íslendingar muni fylgja liðinu til Hollands. Hann segir að ef íslenska liðið kemst upp úr riðlinum muni Gam- anferðir bjóða upp á fleiri ferðir til Hollands. „Auðvitað verðum við viðbúnir að setja í sölu ferðir á útsláttarkeppnina ef Ísland kemst áfram upp úr riðl- inum.“ Fjölmargir Íslendingar munu fylgja landsliðinu til Hollands  Gamanferðir verða með um 100 manns á hverjum leik Ferðalag Stelpurnar héldu til Hollands fyrr í vikunni. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is KSÍ mun ekki senda lög- reglumenn með kvennalandsliðinu til Hollands eins og gert var hjá karlalandsliðinu síðasta sumar. Víðir Reynisson, öryggisstjóri Knattspyrnu- sambands Ís- lands, segir að lögreglumenn- irnir sem voru í för með karla- landsliðinu í fyrra hafi verið sendir að beiðni frönsku lögreglunnar. „Í fyrra var þetta gert vegna þess að franska lögreglan óskaði eftir því og taldi þörf á því að vera með aukna ör- yggisgæslu. Við höfum ekki fengið neinar slíkar óskir frá hollensku lögreglunni og þar af leiðandi munum við ekki senda neinn.“ Öll plön líta vel út Hann segir að öll öryggismál landsliðsins verði unnin í samráði við hollensku lögregluna. „Ég hef verið að sjá um öryggismál lands- liðsins ásamt annarri manneskju. Við vinnum þetta saman en ég mun fara út fyrir okkar hönd til þess að skipuleggja öryggismálin með Hollendingunum,“ segir Víðir. Nýlega bárust fréttir af því að hryðjuverkasamtökin Ríki íslams hefðu hótað árás á meðan EM kvenna stendur yfir.Víðir segir þau plön er varða öryggismál meðan á mótinu stendur líta vel út. „Allt sem við höfum séð, öll þau plön sem liggja fyrir varðandi framkvæmd leikja og annað slíkt eru mjög góð. Allar viðbragð- sáætlanir líta vel út. Þetta mun verða mjög vel gert ef farið verð- ur eftir því sem okkur var kynnt.“ Spurður hvernig öryggismálum á hóteli stelpnanna verði háttað segir Víðir að hann geti ekki svar- að því. „Ég vil ekki fara út í öryggis- mál á hótelinu en við munum passa það að stelpurnar verði al- veg öruggar.“ Tryggja öryggi stelpnanna  Öryggismál unnin í samráði við hollensku lögregluna Víðir Reynisson MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.