Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 21
Yusuf Ogundare, höfðingi ættbálks
í stærstu borg Nígeríu, Lagos, hef-
ur verið rekinn úr starfi og kærður
fyrir að setja eigið mannrán á svið.
Var markmið Ogundares að setja
ríkisstjórn landsins úr jafnvægi
með því að koma grun á keppinaut
hans.
Yngri bróðir Ogundare tilkynnti
lögreglu þann 5. júlí að bróður hans
hefði verið rænt. Sást hann ekki
aftur fyrr en 11. júlí þegar meintir
ræningjar slepptu honum úr haldi.
Í ljós kom hins vegar að Ogundare
hafði verið að keyra um fyrir utan
höfuðborgina á meðan hann var
sagður vera í haldi. Ogundare hef-
ur verið handtekinn ásamt yngri
bróður sínum og rekinn úr starfi.
Höfðinginn sviðsetti
rán á sjálfum sér
NÍGERÍA
AFP
Lagos Mannrán eru mjög algeng í
suðurhluta Nígeríu.
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
Skútuvogur 1c 104 Reykjavík | Sími: 550 8500 | www.vv.is
FJARLÆGÐAMÆLIR
LD 220
Eiginleikar:
Drægni: 30m
Nákvæmni: +/- 3mm
Mælir: Lengd, fermetra og rúmmetra.
Gæðastaðall: Class 2
Aflgjafi: 2 x AAA
Veðurþol: IP54
Verð 7.998 kr.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tveir ísraelskir lögreglumenn voru
myrtir í Jerúsalem í gærmorgun
þegar þrír Palestínumenn hófu
skothríð á hóp lögreglumanna í
borginni. Árásarmennirnir flúðu
við svo búið að musterishæðinni,
einum helgasta stað borgarinnar,
þar sem þeir voru felldir.
Atvikið ýfði upp spennu í sam-
skiptum Ísraela og Palestínu-
manna, og ræddust Mahmoud Ab-
bas, forseti palestínsku
heimastjórnarinnar, og Benjamín
Netanyahu, forsætisráðherra Ísr-
aels, við í síma vegna árásarinnar.
Fordæmdi Abbas árásina harð-
lega, þar sem ofbeldi ætti ekki rétt
á sér, sérstaklega í nágrenni við
bænastaði fólks. Þótti yfirlýsing
Abbas harðorðari en þær sem
hann hafði áður sent frá sér.
Æðsti klerkurinn handtekinn
Lögreglan í Jerúsalem brást
snarlega við og lokaði Musteris-
hæðinni fyrir allri umferð, en þar
er meðal annars Al Aqsa-moskan.
Gátu múslimar í Jerúsalem því
ekki sótt föstudagsbænir sínar
þar.
Lögreglan handtók einnig æðsta
klerk múslima í Jerúsalem, Mu-
hammad Ahmad Hussein, í kjölfar
árásarinnar, en hann gagnrýndi þá
ákvörðun lögreglunnar að loka
moskunni vegna atviksins.
Tveir árásarmannanna voru 29
ára að aldri og sá þriðji var 19 ára.
Þeir voru allir frá borginni Umm
al-Famm í Ísrael, sem er í ná-
grenni Vesturbakkans. Lögreglan
hóf í gær að kanna tengsl þeirra
við öfgamenn, en skotvopn fundust
við húsleit á heimilum árásar-
mannanna.
Réðust á lögreglumenn
Þrír Palestínumenn drápu tvo áður en þeir voru sjálfir felldir í skotbardaga
AFP
Árás Lögreglan í Jerúsalem var
með mikinn viðbúnað eftir árásina.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er í sinni fyrstu
opinberu heimsókn í Frakklandi. Í gær tók hann þátt í
hátíðarhöldum í tilefni Bastilludagsins, upphafs
frönsku byltingarinnar, en þess var einnig minnst að
100 ár eru síðan fyrstu bandarísku hermennirnir komu
til Evrópu til þess að berjast í fyrri heimsstyrjöldinni.
Trump og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sjást
hér fylgjast með hátíðarhöldunum í París.
AFP
Minntust fyrri heimsstyrjaldar
Ben Emmerson, sérfræðingur á
vegum Sameinuðu þjóðanna, gagn-
rýndi í gær stjórnvöld á Srí Lanka
fyrir að hafa látið undir höfuð
leggjast að rannsaka meinta stríðs-
glæpi sem framdir voru í átökum
ríkisstjórnarinnar og Tamíla, átta
árum eftir að þeim lauk.
Meira en 100.000 manns féllu í
átökunum og hétu stjórnvöld því á
sínum tíma að þau myndu láta
rannsaka framferði beggja fylk-
inga og sækja til saka þá sem gerst
hefðu sekir um stríðsglæpi.
Sagði Emmerson að fátt benti til
þess að nokkuð hefði gerst í þeim
efnum á síðustu átta árum, en hann
sagði að slíkar rannsóknir væru ein
helsta forsenda þess að hægt yrði
að tryggja varanlegan frið.
Hafa ekki rannsakað
meinta stríðsglæpi
SRÍ LANKA
Hugtakið „náinn ættingi“ er skil-
greint of þröngt í ferðabanni Do-
nalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Svo segir í úrskurði Derricks Wat-
son, alríkisdómara í Hawaii-ríki.
Í úrskurðinum kemur meðal ann-
ars fram að afar, ömmur, barnabörn
og fleiri ættingjar ættu einnig að
falla undir hugtakið, ólíkt því sem
ríkisstjórn Trumps hafði gefið út.
Watson sagði þá ákvörðun ekki
vera í samræmi við ákvörðun Hæsta-
réttar og því mætti ekki banna þess-
um ættingjum að koma inn í landið
vegna bannsins. Fordæmdi hann
skilgreiningu ríkisstjórnarinnar og
sagði hana „óhóflega takmarkandi“.
„Heilbrigð skynsemi segir að afar
og ömmur séu skilgreind sem nánir
ættingjar. Raunar eru þau tákn-
mynd náinna ættingja,“ skrifaði
hann í dómnum.
Ferðabannið beinist gegn íbúum
Írans, Líbíu, Sýrlands, Sómalíu,
Súdan og Jemen þar sem meirihluti
íbúa er múslimar. Bannið hefur í för
með sér að einstaklingar sem ekki
eiga „nána fjölskyldumeðlimi“ í
Bandaríkjunum eða eiga viðskipta-
hagsmuna að gæta geta átt erfitt
með að komast inn í landið.
Þá sagði Watson að ríkisstjórn
Trumps hefði túlkað ákvörðun
Hæstaréttar Bandaríkjanna of
þröngt, en rétturinn sagði í síðasta
mánuði að stjórnvöldum væri heimilt
að framfylgja banninu, nema í þeim
tilvikum þegar um væri að ræða ein-
staklinga sem hefðu sannarlega lög-
mæt tengsl við Bandaríkin.
Trump hefur sagt að ferðabannið
væri nauðsynlegt til að halda Banda-
ríkjunum öruggum og koma í veg
fyrir hryðjuverkaárásir.
urdur@mbl.is
Ferðabannið skil-
greint of þröngt
Afar, ömmur,
barnabörn líka
„nánir ættingjar“
AFP
Mótmæli Ferðabann forsetans hef-
ur verið harðlega gagnrýnt.
Tveir unglingar voru handteknir í
Lundúnum í gær, grunaðir um að
hafa skvett sýru í andlit fimm
manna í fyrrinótt í fimm mismun-
andi árásum. Tildrög sýruárás-
anna voru þau að tveir ein-
staklingar keyrðu um hverfin
Islington, Stoke Newington og
Hackney aðfaranótt föstudagsins
og skvettu þar sýru í andlit fórn-
arlambanna. Að minnsta kosti eitt
þeirra var sagt hafa hlotið örkuml
vegna árásarinnar, en ekki var
ljóst hvort fórnarlömbin tengdust
innbyrðis, eða hvort árásarmenn-
irnir hefðu þekkt þau.
Um 1.800 sýruárásir hafa verið
framdar í Lundúnum frá árinu
2010. Mun innanríkisráðuneytið
vera að kanna hvort tilefni sé til
að banna einstaklingum að verða
sér úti um ætandi efni, og kallaði
Stephen Timms, þingmaður
Verkamannaflokksins, eftir því að
refsingar við því að bera á sér
sýru yrðu gerðar harðari.
Skoða
bann á
ætandi efni
Tveir handteknir
eftir sýruárásir