Morgunblaðið - 15.07.2017, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það fórvæntanlegaekki framhjá
neinum, að leiðtog-
ar helstu iðnríkja
heims funduðu í
Hamborg um síðustu helgi.
Fundurinn kom upp á tíma þegar
mörg brýn úrlausnarefni liggja
fyrir í alþjóðamálum. Leiðtog-
anna beið því margt sem full
ástæða var til að ræða til hlítar.
Fundurinn sjálfur féll hins
vegar næstum algjörlega í
skuggann af mótmælunum sem
fylgdu honum, ekki síst vegna
þess að á köflum leystust þau
upp í hrein og bein skrílslæti og
skemmdarverk. Hvaða álit sem
fólk kann að hafa á leiðtoga-
fundum af þessu tagi, hnattvæð-
ingunni eða jafnvel því fólki sem
valist hefur til þess að gegna for-
ystustörfum í ríkjum heims get-
ur aldrei verið nein afsökun til
fyrir því að beita ofbeldi til þess
að koma sjónarmiðum sínum og
málstað á framfæri.
Óeirðirnar gengu svo langt, að
lögreglan í Hamborg hefur nú
hafið leit að þeim, sem þar stóðu
í fararbroddi, og vilja borgaryf-
irvöld þar helst sækja þá sem
lengst gengu til saka fyrir
óspektirnar, enda full ástæða til.
Mótmælin, sem fengu þá geð-
felldu yfirskrift „velkomin til
Helvítis“, náðu einmitt að breyta
hluta borgarinnar í hálfgert hel-
víti, jafnvel þó að það hafi að
sögn ekki verið ætlun þeirra sem
fyrst skipulögðu
mótmælin.
Vissulega voru
margir, sem nýttu
sér rétt sinn til
mótmæla á skyn-
samlegan hátt. Hætt er þó við
því, að málstaður þeirra, hversu
góður sem hann mögulega er, fái
lítinn hljómgrunn ef mótmæli,
sem ætlað er að vera friðsamleg,
eru tekin yfir af ofbeldisfullum
öfgamönnum á mjög auðveldan
hátt. Voru þar á meðal hópar
fólks, sem sögðust vera að
„berjast á móti fasisma“, á sama
tíma og þeir mættu til Ham-
borgar íklæddir svörtum fötum
og grímum og gengu berserks-
gang.
Það er því ákaflega athygl-
isvert að sjá, að sumir þátttak-
enda á fundinum hafa veigrað
sér við að fordæma mótmælin,
þrátt fyrir að full ástæða væri
til. Sumir þeirra létu jafnvel svo
ummælt, að hugsanlega þyrfti
að hlusta meira á boðskap mót-
mælenda, þar sem mótmælin
sýndu að einhver hluti fólks
væri óánægður með þróun al-
þjóðamála á síðustu misserum.
Nær væri að spyrja, hvort þeir
sem fóru ránshendi um Ham-
borg, brenndu bíla og skemmdu
eignir fólks hafi endilega verið
að biðja um áheyrn. Og hafi þeir
valið þessa leið til að láta í sér
heyra, þá er að minnsta kosti
engin ástæða fyrir sómakært
fólk að hlusta.
Ofbeldisfullir mót-
mælendur breyttu
Hamborg í „helvíti“}
Ofbeldi, ekki mótmæli
Lula da Silva,fyrrverandi
forseti Brasilíu,
hlaut fyrr í vikunni
níu og hálfs árs
langan fangelsisdóm fyrir mútu-
þægni. Hafði forsetinn meðal
annars fengið ókeypis vinnu við
sumarhús sitt við ströndina frá
verktakafyrirtæki einu, sem síð-
an var óvænt úthlutað verðmæt-
um verkefnum hjá brasilíska
olíurisanum Petrobras, sem er í
eigu ríkisins. Þá þótti sannað að
Lula hefði þegið fjárhæðir, sem
námu um 115 milljónum ís-
lenskra króna, til þess að greiða
fyrir viðskiptum verktakafyr-
irtækisins.
Fallið er hátt fyrir da Silva,
sem var á sínum tíma einn vin-
sælasti forseti sem Brasilíumenn
höfðu eignast. Ímynd hans var
sú að þar væri á ferðinni „sami
gamli alþýðupilturinn“, en da
Silva braust úr sárri fátækt til
æðstu metorða Brasilíu. Spill-
ingarmál léku þó ríkisstjórn
hans grátt, en hann sjálfur hafði
verið talinn tiltölulega „hreinn“.
Allt það hefur nú breyst. Að
vísu á Lula eftir að áfrýja dómn-
um, en lögfræðingar hans segja
kokhraustir að þeir muni sanna á
efri dómstigum að allt sé málið
tilbúningur, og gert
til þess að koma í
veg fyrir frekari
frama skjólstæð-
ings síns. Da Silva
hafði enda gælt við þá hugmynd
að hann gæti jafnvel boðið sig
fram á ný til forseta, en kosið
verður á næsta ári að öllu
óbreyttu. Munu þau áform hans
enn vera óbreytt, þrátt fyrir
áfallið í vikunni.
Málið allt hefur vitanlega vak-
ið gríðarlega athygli, enda virð-
ist spillingin vera alltumlykjandi
í brasilískum stjórnmálum. Víð-
tæk lögreglurannsókn á
stjórnmálamönnum og tengslum
þeirra við viðskiptalífið hefur
leitt margt misjafnt í ljós og nú
fellt bæði Lula da Silva og eft-
irmann hans, Dilmu Rouseff, af
stalli sínum. Þá er staða Michels
Temers, sem nú gegnir forseta-
embættinu, veik vegna rann-
sóknar á meintri spillingu hans.
Hrökklist Temer úr embætti
verður hann í raun þriðji forset-
inn í röð, sem þarf að víkja vegna
spillingar. Ekki þarf að hafa
mörg orð um að allt lýsir þetta
stjórnmálaástandi sem er full-
komlega óviðunandi og fyrir
löngu farið að hafa skaðleg áhrif
á líf almennings í Brasilíu.
Brasilísk stjórnmál
bíða enn hnekki.}Fyrrverandi forseti dæmdur
Í
haust verður nýr vígslubiskup í Skál-
holti kjörinn og vígður til þjónustu.
Verður nú í fyrsta sinn gengið til bisk-
upskjörs eftir nýjum starfsreglum sem
Kirkjuþing samþykkti á síðasta ári.
Reglurnar kveða á um að áður en gengið verð-
ur til kjörsins muni prestar og djáknar sem
starfa á vegum þjóðkirkjunnar innan umdæmis
vígslubiskupsins í Skálholti, vígðir kirkjuþings-
og kirkjuráðsmenn, þjónandi prestar eða
djáknar sem lúta tilsjónar biskups Íslands og
eru í föstu og launuðu starfi á vegum stofnunar
og/eða félagasamtaka hér á landi og sem starfa
í umdæmi Skálholts, vígðir starfsmenn Bisk-
upsstofu, og þeir kennarar guðfræðideildar HÍ
sem hlotið hafa vígslu, fá tækifæri til að tilnefna
allt að þrjá guðfræðinga sem uppfylla hæfiskil-
yrði til að gegna embætti vígslubiskups. Verða
tilnefningarnar teknar saman og verða nöfn þeirra þriggja
guðfræðinga sem flestar tilnefningar fá, á kjörseðlinum í
sjálfu vígslubiskupskjörinu.
Mun stærri hópur en sá sem talinn var upp hér að ofan
mun greiða atkvæði um hver hinna þriggja kandídata að
lokum verður vígður til biskupsþjónustu og sest að í Skál-
holti. Í þeim kosningum mun fjöldi leikmanna sem starfa á
vettvangi þjóðkirkjunnar hafa atkvæðisrétt til jafns við
hópinn sem tilnefnir kandídatana þrjá. Er þar um að ræða
þann mikla fjölda fólks sem með óeigingjörnum hætti
sinnir trúnaðarstörfum á vettvangi sóknanna vítt og breitt
um vígslubiskupsdæmið.
Starfsreglurnar nýju tryggja því að það eru
aðeins vígðir þjónar kirkjunnar, og reyndar
vígðir menn sem starfa utan hennar einnig,
sem í raun ákveða hvaða þrír einstaklingar
komi til greina í embætti vígslubiskups (það á
einnig við þegar biskup Íslands og vígslubisk-
upinn á Hólum verða kjörnir næst). Umræður
sem sköpuðust í kringum setningu þessara
starfsreglna bera vott um að vígðir þjónar
kirkjunnar hafi óttast þá þróun að færa aukið
vald til leikmanna þegar kemur að vali á æðstu
embættismönnum kirkjunnar, enda leikmenn
með kosningarétt miklu fleiri en hinir vígðu.
Það er hins vegar ekki í anda evangelísk-
lútherskrar kirkju að horfa með þessum hætti
á málið og líta á presta og leikmenn með gler-
augum þess sem segir „við“ og „hinir.“ Ólíkt
kaþólsku kirkjunni lítur lútherska kirkjan ekki
á prestsdóminn sem sakramenti og raunar er í allri henn-
ar boðun undirstrikað að allir kristnir menn séu prestar
(Fyrra Pétursbréf) og í þjónustu kirkjunnar og í þjónustu
hins eina æðsta prests, Jesú Krists (Hebreabréfið).
Kirkjan þarf að mæta nýjum tíma með því að treysta
samfélaginu sem hún samanstendur af fyrir þeim ákvörð-
unum sem mestu varða um framgang hennar. Það verður
ekki gert með því að skilgreina hina vígðu þjóna sem for-
réttindastétt sem hafi meðal annars það hlutverk að
ákveða fyrir leikmenn hennar hverja þeir megi kjósa í
embætti biskupa. Þeir eru betur bærir til þess að ákveða
það sjálfir. ses@mbl.is
Stefán Einar
Stefánsson
Pistill
Lítt lútherskt á siðbótarári
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Vinna við undirbúning aldarafmælis
sjálfstæðis og fullveldis Íslands er
komin í fullan gang og er flest sem
bendir til þess að hátíðarhöldin og
dagskráin á afmælisárinu verði veg-
leg og fjölbreytileg um allt land.
Nefnd sú sem Alþingi skipaði til að
annast undirbúning og framkvæmd
hátíðarinnar, undir forystu Einars
K. Guðfinnssonar, fyrrverandi for-
seta Alþingis, hefur þegar hafið
vinnu við þau verkefni sem henni
voru falin af Al-
þingi, að sögn
Ragnheiðar Jónu
Ingimarsdóttur,
en hún er fram-
kvæmdastjóri
undirbúnings há-
tíðarhaldanna.
Mikil áhersla er
lögð á að dag-
skráin verði sem
mest mótuð af
landsmönnum í
samvinnu við nefndina. „Til að ná því
fram verður kallað eftir fjöl-
breyttum og vönduðum verkefnum á
dagskrá afmælisársins. Meðal ann-
ars verður lögð áhersla á samstarfs-
verkefni og verkefni með nýstárlega
nálgun á viðfangsefnið, hvort sem
litið er til fortíðar, nútíðar eða fram-
tíðar. Auglýst verður eftir verk-
efnum í lok ágúst,“ segir í frétta-
tilkynningu sem nefndin sendi frá
sér í gær.
„Við erum að leggja drög að því
hvernig verkefni verða valin inn á
dagskrána, hún verður mótuð af
landsmönnum og við munum leita
eftir verkefnum frá fólki um allt
land,“ segir Ragnheiður. Hún segir
að öll þau verkefni sem nefndinni
eru falin og tilgreind eru í þings-
ályktun Alþingis séu þegar komin í
gang. Er m.a. hafin ritun tveggja
rita um aðdraganda sambandslag-
anna og inntak fullveldisréttarins og
undirbúningur er hafinn að sýningu
í samvinnu við Árnastofnun á hand-
ritum og skjölum. Ragnheiður segir
að mikil áhersla sé lögð á að ná til
barna og ungs fólks.
,,Við gerum það líka í gegnum
vefsíðu sem við erum að búa til og
verður væntanlega opnuð í ágúst en
þar verður algengilegt efni sem skól-
arnir og börnin geta nýtt.“
Birtar hafa verið áherslur
nefndarinnar á verkefni sem eru á
mjög víðtæku sviði. M.a. verður litið
til verkefna þar sem minnst er
aldarafmælis sjálfstæðis og fullveld-
isins og/eða hafa skírskotun til þess
þáttar í sögu þjóðarinnar og á verk-
efni sem fjalla um og/eða byggjast á
fullveldishugtakinu, hvort heldur er
í fortíð, nútíð eða framtíð.
Þá er t.a.m. áhersla lögð á verk-
efni sem hvetja til samstarfs, sem
getur verið þvert á greinar, milli
landsvæða, aldurshópa, þjóðfélags-
hópa, landa, ólíkra stofnana og fé-
lagasamtaka o.s.frv. Einnig er hvatt
til verkefna sem höfða til fjölbreytts
hóps fólks og hvetja til almennrar
þátttöku.
Mörg verkefni þegar í vinnslu
Dagskráin mun hefjast strax í
janúar og standa yfir allt afmæl-
isárið en tveir hápunktar verða á
árinu, annars vegar þegar Alþingi
heldur hátíðarfund á Þingvöllum 18.
júlí, sem þingið undirbýr, og svo á
fullveldisdaginn 1. desember sem
verður í höndum ríkisstjórnarinnar.
,,Það er mikill áhugi á þessu,
margir hafa haft samband og ég veit
um mjög mörg verkefni sem eru í
undirbúningi,“ segir Ragnheiður.
„Þetta ætti að geta höfðað til
margra. Við erum ekki eingöngu að
horfa á þetta sagnfræðilega heldur
erum við líka að horfa á þetta verk-
efni í gegnum gleraugu samtímans
og beinum ekki síst augum að unga
fólkinu.“
Landsmenn móti
dagskrá afmælisins
Morgunblaðið/Ófeigur
Alþingi Margvísleg dagskrá verður á næsta ári þegar 100 ára fullveldis-
afmælis Íslands verður minnst. Alþingi mun m.a. koma þar við sögu.
Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir
Birtar voru myndir af merki af-
mælisársins í gær. Það var
hannað af auglýsingastofunni
Pipar/TWBA sem einnig mun
annast gerð kynningarefnis fyr-
ir hönd nefndarinnar.
Merkið er sett fram á hvítum
grunni en einnig er merkið sett
fram án hvíta litarins og mynd-
ar þannig óvænta og mjög
sterka litasamsetningu,“ segir í
tilkynningu frá undirbúnings-
nefndinni.
Í ágúst ætlar nefndin svo að
kalla eftir verkefnum um land
allt og þá verður vefsíða afmæl-
isársins opnuð og opna á fyrir
upplýsingar og samskipti á
samfélagsmiðlum.
Kynna merki
afmælisárs
ALDARAFMÆLI FULLVELDIS