Morgunblaðið - 15.07.2017, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.07.2017, Qupperneq 25
Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Fyrir 50 árum kl. 10 aðmorgni settust að tafliFriðrik Ólafsson ogdanski stórmeistarinn Bent Larsen. Þetta var síðasta um- ferð alþjóðlegs móts í Dundee í Skotlandi sem haldið var í tilefni þess að 100 árum fyrr hafði farið fram í borginni skákmót, hið fjórða alþjóðlega í skáksögunni og meðal keppenda var Wilhelm Steinitz síðar heimsmeistari. Baráttan sem Friðrik og Larsen útkljáðu þennan dag stóð í næstum níu klukkustundir án þess að hlé væri gert; þetta var síðasta umferð mótsins og vegna þess hve lengi við- ureignin stóð var lokahófið sett í bið en alls kyns fyrirmenn höfðu verið kvaddir til þess , þ. á m. borgarstjór- inn, hinn háæruverðugi Provst lá- varður sem annað veifið vitjaði skák- salarins og glamraði allnokkuð í keðju hans. Skákin snerist um það hvort Friðrik næði Svetozar Gligoric að vinningum eða Larsen með sigri tækist að komast upp við hlið Frið- riks í annað sætið. Þung undiralda einkenndi barátt- una framan af, strategía Larsens minnti á skæruhernað sem bar lítinn árangur þó þar sem stöðuuppbygg- ing Friðriks var heilsteypt og traust og sjálfur gat hann reynt ýmsar smábrellur – sjá 26. leik. Þegar leið á þessa löngu setu var eins og spenn- an milli þeirra félaga ykist og bar- áttan yrði æ persónulegri. Friðrik lét skiptamun af hendi í 37. leik en minnugur þess hversu viðsjárverður Friðrik var þegar þannig stóð á liðsafla kaus Larsen að svara í sömu mynt; í 49. leik var eins og hann segði: „Skítt með þínar skiptamun- arfórnir. Hér hefur þú hrókinn, lagsi.“ Friðrik lét sér fátt um finn- ast, hirti fenginn en stillti síðan óvaldaðri drottningu sinni upp. Þetta kostaði mikil heilabrot Lar- sens og tímahrak en þegar hrókur Friðriks ruddist til b2 blasti sig- urinn við. Hann þurfti einn snjallan hróksleik til að klára dæmið en seildist eftir peði sem hafði verið að þvælast fyrir honum og Larsen greip tækifærið: Bent Larsen – Friðrik Ólafsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Bd7 4. a4 Rc6 5. O-O Rf6 6. d3 g6 7. Rbd2 Bg7 8. Rc4 O-O 9. He1 a6 10. Bxc6 Bxc6 11. a5 Rd7 12. Bg5 f6 13. Bd2 d5 14. exd5 Bxd5 15. Re3 Bf7 16. Rg4 g5 17. Re3 e6 18. Bc3 Bh5 19. De2 He8 20. Rc4 Dc7 21. De3 Bg6 22. Rfd2 e5 23. De2 Rf8 24. Re4 Had8 25. Df3 Dc6 26. Hab1 g4 27. Dg3 Re6 28. Red2 Rd4 29. Bxd4 Hxd4 30. Rb3 Hf4 31. De3 Bf8 32. Hbd1 Hd8 33. De2 h5 34. Re3 Bf7 35. c4 Da4 36. Dc2 Dc6 37. g3 Hfd4 38. Rxd4 cxd4 39. Rf5 Bd5 40. Dd2 Bf3 41. Hb1 Dd7 42. Rh4 Bc6 43. b4 Kh7 44. Da2 Bh6 45. b5 axb5 46. cxb5 Bd5 47. Da3 Hc8 48. a6 b6 49. Hec1 Bxc1 50. Hxc1 Dd6 51. Da1 Hc5 52. h3 Hxb5 53. Da4 Dc6 54. Dd1 Dd7 55. Kh2 Hb2 56. De1 Ba8 57. hxg4 hxg4 58. Hc4 Bd5 59. Hb4 Hc2 60. Hxb6 Dc8 61. Db4 Hxf2 62. Kg1 Ha2 63. De7 Kg8 64. Hb1. Klukkan var nú langt gengin í sjö og sigurinn vís leiki svartur 64. … Hh2! 64. … Hxa6?? 65. Rf5! Riddarinn sem steig til hliðar í 42. leik stekkur skyndilega inn á sviðið og gerir út um taflið. 65. … Df8 66. Rh6+! Svartur gafst upp, 66. … Dxh6 er svarað með 67. Hb8+ og mátar. C.H.O.D. Alexander – ein söguhetj- an úr kvikmyndinni Imitation Game – lét þess getið í grein sem hann skrif- aði um mótið í Daily Express að það myndi líða langur tími þar til Bent Larsen yrði svo heppinn aftur. Friðrik og Larsen í Dundee 1967 UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017 Grandavegur 42 A,B ogC Perla í vesturbænum Stórglæsilegar útsýnisíbúðir Lokaáfangi Grandavegs 42 sem samanstendur af þremur stigagöngum frá 6 upp í 9 hæða byggingar meðfram Eiðsgranda þar sem flestar íbúðir njóta sjávarútsýnis. Í boði eru studioíbúðir ásamt 2ja og 3ja herb. íbúðum. Íbúðirnar afhendast fullbúnar utan gólfefna í stofu og herbergjum. Vandaðar innréttingar frá HTH í eldhúsi og baðherbergjum ásamt því sem eldhús skilast með gæðatækjum frá AEG m.a. ísskáp, uppþvottavél, tveir ofnar, span helluborð og háf. Stæði í lokaðri bílgeymslu fylgir hverri íbúð Yfirbyggðar svalir Allar þriggja herbergja íbúðir með tveimur baðherbergjum Kvarts steinn í borðplötum eldhúss og baðherbergja Baðherbergi og forstofa flísalögð Þvottaaðstaða innan íbúða Fataskápar í herbergjum og forstofu Þakíbúðir með um 150 fm þakrými 2ja til 3ja herbergja íbúðir Stærð íbúða frá 59 fm til 155 fm Vel skipulagðar og fjölbreyttar íbúðir Studioíbúðir frá 35,7 millj 2ja herb íbúðir frá 44,5 millj 3ja herb íbúðir frá 63,6 millj - með þér alla leið - 569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is SÖLUMENN Á STAÐNUM - ÁHUGASAMIR VELKOMNIR Fullbúin sýni ngaríbúð OPIÐ HÚS sunnudaginn 16.júlí kl.16:00-18:00 Stefán Snævarr: Vitenskapsfilosofi for Humaniora. En kritisk innføring. Cappelen Damm akademisk. 324 bls. Þetta rit hefst skömmu fyrir aldamótin 1800 og nær til nútímans. Þetta er inn- gangsrit að vísindaheimspeki hugvísinda, og spannar allt sem máli skiptir, að því er ég best fæ séð. Raunar má segja að bókin fjalli um heimspeki og annað slíkt sem varðar hugvísindi en þó sérstaklega aðferð- ir þeirra. Það er gætt nafnaskrá, hug- takaskrá og ritaskrá. Það skiptist í 17 kafla og tvo hluta ámóta stóra sem heita: Analyt- isk og pragmatisk vitenskapsfilosofi og Kontinentalfilosofi og humaniora. Fjallar höfundur um helstu spekinga, ég nefni bara: Hegel, Marx, Peirce, Wittgenstein, Popper, Kuhn, Weber, Chomsky, rússneska formalismann og loks nýjustu kvenspekinga. Það sem ég þekki til virðist mér hann segja frá af hlutlægni, draga fram meginatriði í kenningum þessara spekinga. Auðvitað er það í stuttu máli, en við bætist að Stefán vísar í ýmis yfirlitsrit um helstu kenningar hvers og eins. Ritið er auðlesið, höfundur gerir sér far um að vera auðskilinn. Það er óhætt að mæla með þessu riti við Íslendinga. Það er á ríkisnorsku, en það tungumál er mjög svipað dönsku. Örn Ólafsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Vísindaspeki Mikill fjöldi lausna barst við sumarsólstöðugátunni og voru margir með rétta lausn á henni. Lausnin er: Vorsins nótt er ljúf og löng lifnar allt, sem bærist og fyllir þig af fuglasöng í flæði, svo þú nærist. Burtu eyðir böli og sút blómgast lífið í sér. Hrífstu með og hleyptu út hrollköldunni í þér. Þrjú nöfn voru dregin úr inn- sendum lausnum. Ingibjörg Þorgilsdóttir, Stóra- gerði 2 á Hvolsvelli, fær bókina Veggur og andstyggð í Las Vegas eftir Hunter S. Thompson. Jónía Jónsdóttir, Hörðukór 5 í Kópavogi, fær bókina Stofuhiti eft- ir Berg Ebba. Inga Hrönn Flosadóttir, Urð- argili 10 á Akureyri, fær bókina Stúlkan á undan eftir P.D. Del- aney. Vinningshafar geta vitjað vinn- inganna í móttöku ritstjórnar Morgunblaðsins eða hringt í 569- 1100 og fengið bækurnar sendar heim. Morgunblaðið þakkar þeim sem sendu lausnir. Sumarsólstöðugáta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.