Morgunblaðið - 15.07.2017, Síða 33

Morgunblaðið - 15.07.2017, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017 Elsku hjartans amma mín. Mikið er ég þakklát fyrir þær stundir sem við átt- um saman. Þá helst á Kveldúlfsgötunni þar sem þú og afi tókuð alltaf á móti öllum með opnum örmum og bros á vör. Minningarnar eru dýrmætar og þær mun ég varðveita að eilífu. Til dæmis hvernig ég hentist fram og til baka á stofugólfinu, helst með hausinn á undan. Þar var teppi og því tilvalið að þróa eða æfa nýjar fimleikaæfingar. Þér fannst ég nú stundum fara heldur „glæfra- lega“, eins og þú sagðir, en ég full- vissaði þig um að ég gæti ekki meitt mig á teppinu, svo var haldin sýning. Í eldhúsinu leið þér vel, þar fannst mér gaman að fylgjast með þér og hjálpa til. Helst man ég eftir sigtaða hafragrautnum hans afa, hjónabandssælunum og hvernig það var hvergi leyfilegt að fá marga íspinna á dag, nema hjá ömmu. Hjá þér var ekki hægt að vera svangur, þú passaðir vel upp á það. Elsku amma, ekki má gleyma að minnast á fallega hjartalagið þitt. Yndisleg, góðhjörtuð, einlæg og hlý, og talaðir svo fallega um Ólína Jóhanna Gísladóttir ✝ Ólína JóhannaGísladóttir var fædd 11. ágúst 1929. Hún lést 19. júní 2017. Útför Ólínu fór fram 23. júní 2017. allt og alla. Ég man að ég hugsaði oft, hvernig er hægt að vera svona góð eins og amma er? Þú ert fyrirmyndin mín um hvernig manneskja mig langar til að vera. Það gleður mig að hugsa til þess að nú séuð þú og afi loksins sameinuð á ný. Mik- ið sem hann hefur tekið vel á móti þér, elsku amma mín. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Takk fyrir vísurnar sem þú ortir, við fjölskyldan munum varðveita þær, það er dýrmætt að geta lesið yfir þær í framtíðinni og hugsað til þín. Ég læt hér fylgja vísu sem ég orti til þín þegar ég var lítil, þér þótti vænt um hana og hún er skrifuð einhvers staðar í bækurn- ar þínar. Amma falleg, fríð og góð, yrkir fín og fögur ljóð. Alltaf snyrtileg til fara, stelpuleg ertu bara. Og aðra sem kom til mín þegar þú kvaddir. Hvíl í friði amma mín, í örmunum hans afa. Að eilífu ég mun sakna þín, og hugsanir um þig hafa. Guð geymi þig elsku amma. Þín ömmustelpa, Fríða Rún. ✝ Mary EstherSimundson var fædd í Seattle í Bandaríkjunum 9. apríl 1956. Hún lést 4. maí 2017. Foreldrar henn- ar voru Leonard Simundson, f. 1914, d. 2001, og Lois Simundson, f. 1920. Mary átti einn bróður, Dav- id, f. 1953. Hún stundaði nám við University of Washington í Seattle. Árið 1981 kom hún til Íslands og árið 1984 giftist hún Guðjóni Inga Haukssyni, f. 24 ágúst 1953, sagn- fræðingi og graf- ískum hönnuði. Synir þeirra eru Daníel Jón, endur- skoðandi, f. 26. júní 1985, og Jó- hann Ingi við- skiptafræðingur, f. 24 ágúst 1989. Mary Esther starf- aði lengst af við skrifstofustörf en síðustu árin starfaði hún hjá bandaríska sendiráðinu í Reykjavík. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Elsku Mary okkar. Fréttirnar um andlát þitt komu okkur öllum í opna skjöldu, tilfinningin var yfir- þyrmandi og söknuðurinn greip okkur strax. Það var nefnilega þannig að hvert sem þú komst fylgdi þér mikil gleði og enda- laus húmor. Kraftur og þraut- seigja þrátt fyrir allt sem þú hafðir gengið í gegnum var okk- ur hinum mikil hvatning til að halda alltaf áfram, sama hvað. Þú komst mjög óvænt inn í hópinn og varðst strax ein af okkur. Alltaf sami húmorinn, myndin af þér með göngugrind- ina eftir erfiða æfingu, allir Body Pump-tímarnir og allt annað sem við gerðum saman. Alltaf komstu gangandi úr vinnunni alveg sama hvernig veður var, 5 km fyrir hvern ein- asta tíma á hverjum degi. Svona varstu, algjör nagli en hafðir samt svo gaman af því að tuða endalaust yfir æfingunum. Elsku vinkona, minningarnar eru endalausar og söknuðurinn sár. Við erum gríðarlega þakklát fyrir tímann sem við fengum saman og setjum minningarnar á góðan stað. Við skálum í rauð- víni þér til heiðurs og hlustum á Eurovision. Við sendum fjöl- skyldu og vinum innilegar sam- úðarkveðjur. Ástarkveðjur. Fyrir hönd Inguborgara, Inga María Balursdóttir. Mary Esther Simundson Sigurjón Jónsson fæddist á Hofi og bjó þar með for- eldrum sínum og systkinum fyrstu árin. Þegar hann var um sjö ára aldurinn flutti fjölskyldan í ný- býlið að Ási, en þar reistu for- eldrar hans, Jón Oddsson og Helga Sigurðardóttir, fyrsta steinhúsið sem var byggt í Öræf- um. Sigurjón og Sigga byrjuðu búskap í Ási, en fluttu svo bú- ferlum til Reykjavíkur árið 1961, þá með Ágúst og Helgu, en yngsta barnið, Guðný, fæddist í Reykjavík. Ég hef alla ævi átt Sigurjón, Siggu og börnin þeirra sem bakhjarla hér „fyrir sunn- an“ og man satt að segja ekki eftir öðru en að þannig hafi það verið. Ættartengslin voru sterk (Sigurjón bróðir mömmu og Sigga systir pabba) og börnin þeirra eru mér eins náin og systkini mín, enda voru þau öll sumur „í sveit“ hjá mömmu og pabba. Ég er þakklát fyrir að hafa notið þess að eiga þessa stóru fjölskyldu, sem ásamt fjöl- skyldu Dodda (Odds) bróður mömmu var sá jarðvegur sem okkur systkinum var búinn og mér finnst lífið ekki geta orðið betra en það. Eftir að Doddi var dáinn og árin liðu, varð mér enn betur ljóst hve sterkur sá strengur er sem bindur þau systkinin saman og aldrei liðu Sigurjón Jónsson ✝ Sigurjón Jóns-son fæddist 8. janúar 1932. Hann lést 2. júlí 2017. Útför Sigurjóns fór fram 10. júlí 2017. margir dagar á milli þess að mamma og pabbi heyrðu í Sig- urjóni og Siggu. Svo heimsótti Sig- urjón pabba dag- lega á spítalann þegar hann lá bana- leguna haustið 2015 og þá varð mér líka enn ljósar að tengslin voru óbrjótanleg. Þó að ég hafi verið ófædd þeg- ar Sigurjón og Sigga fluttu „á mölina“, þá voru þau síðustu ábúendur í Ási, á bænum sem afi og amma byggðu og ég tengdi þau alltaf sterkt við bæinn. Op- inbert heiti bæjarins er Malarás, en í daglegu tali okkar fjölskyld- unnar var hann aldrei nefndur annað en Ás og ég á þaðan margar góðar minningar frá heyskap á góðviðrisdögum og snúningum í kringum féð, þegar pabbi og mamma fengu að nota fjárhúsið í Ási til bráðabirgða eftir að fjárhúsið í Stekkatúni sligaðist undan snjó veturinn 1974. En ég man fyrst eftir Sig- urjóni sem bílstjóra á olíubíl og ég leit mikið upp til þessa frænda míns sem var alltaf svo glaður og frísklegur þegar hann kom í heimsókn. Ég vissi líka snemma að Sigurjón hafði mik- inn áhuga á flugvélum. Líklega hef ég nú fyrst haft þá vitneskju frá Ágústi, sem fékk flug- áhugann í föðurarf og teiknaði flottustu flugvélar sem ég hafði séð! En nú hef ég líka heyrt og lesið að Sigurjón teiknaði og smíðaði flugvélar þegar hann var strákur, eða eins og amma (Helga Sigurðardóttir) segir um hann í vísu um börnin í bókinni Brotagull sem var gefin út árið 2015: Sigurjón hann sækir kýr, sá er góður drengur, smíðar flugvél, báta, brýr, bíl og vogarstengur. Börnin þau eru, sem blóm á grænni grund, gleðjum þau og fræðum og blessum alla stund. Á kveðjustund dvel ég við þær góðu minningar sem samveran með Sigurjóni og fjölskyldunni hefur gefið mér, öryggi og alúð sem mér var veitt og minni stækkandi fjölskyldu, hvort sem það var í Sörlaskjóli, við Laug- arnesveg, Kleppsveg eða í Ból- staðarhlíðinni. Með hjartans kveðju, ykkar Jónína. Nú þegar Sigurjón er farinn á vit nýrra ævintýra er ýmislegt sem rifjast upp. Sigurjón var sérlega umhyggjusamur við systur sínar allar þrjár – því þó að mamma væri eina systirin á pappírunum þá höfðu Doddi, mamma og Sigurjón alist upp fyrstu æviárin í baðstofu í Vest- urhúsum á Hofi með Þuríði og Guggu og mamma hefur alltaf talað um að þetta hafi verið eins og ein fjölskylda. Frá Sigurjóni stafaði birtu og yl til frændfólks- ins, hjálpsemi hans voru engin takmörk sett. Já, systkinahóp- urinn var stór þegar allt kemur til alls. Afi og amma fluttu að Ási (Malarási) og þar með nær frændfólkinu á Nesinu (Hofs- nesi). Ás og Nes voru eins og eitt heimili, krakkarnir gengu út og inn á báðum bæjunum og Doddi, mamma, Guðgeir, Siggi, Sigrún, Sigurjón, Palli og Gunna voru eins og einn stór systkinahópur. Ég var svo heppin að eiga for- eldra bæði heima og í Reykjavík. Sigurjón og Sigga voru mér eins og aðrir foreldrar alla tíð. Þegar ég fór í mínar fyrstu Reykjavík- urferðir sem barn, var Sigurjón boðinn og búinn að leiðbeina mér því ýmislegt var með öðrum hætti en heima í Öræfum. Þegar ég kom í bæinn til skólagöngu var ég alltaf innilega velkomin á heimili þeirra Sigurjóns og Siggu, þar hef ég þegið margan málsverðinn og oft gist líka. Sig- urjón og Sigga voru samhent í að láta gestum sínum líða vel og vinátta milli fjölskyldanna hefur alla tíð verið mér og minni fjöl- skyldu dýrmæt: margar ánægju- stundir áttu pabbi og mamma með þeim í gegnum tíðina og Ágúst, Helga og Guðný hafa allt- af verið sem hluti af mínum systkinahópi. Tónlistin var sam- eiginlegt áhugamál alla tíð, það hefur verið mikið spilað og sung- ið á lífsleiðinni. Þegar ég heimsótti Sigurjón á Borgarspítalann í vetur var ég einmitt að ræða við hann um hve gjöfult lífshlaup hans hefði verið: hann hafði jú tækifæri til að flytja með fjölskylduna á mölina þegar hugur þeirra stóð til þess, tækifæri til að eyða frítímum að vild í Öræfunum hjá fjölskyld- unum sem þar voru eftir, tæki- færi til að ferðast um landið í starfi sínu sem olíubílstjóri – mér er minnisstæð ein sérlega skemmtileg heimsókn hans í Neðribæinn þegar hann kom við í slíkri ferð. Síðast en ekki síst var það mikil gæfa að eignast af- komendahóp eins og Sigurjón og Sigga gerðu, þar sem mannkost- ir og hæfileikar afla þeim alls staðar vina. Ég votta þeim öllum samhug minn vegna fráfalls Sig- urjóns. Sigrún Sigurgeirsdóttir. Í mínum huga var Halldór maður leikgleðinnar. Hann var dagfarsprúður maður sem lét yfirleitt ekki mikið yfir sér en honum fylgdi þó ævinlega kátína og góðlátlegur andblær. Hann hafði einstaklega gaman af að bregða sér í gervi og manni lærðist að láta það ekki koma sér á óvart þó hann mætti til vinnu í bæverskum leðurbux- um með tilheyrandi höfuðbún- aði. Um leið kom skýring á fjar- Halldór Ingvi Emilsson ✝ Halldór IngviEmilsson fædd- ist 27. september 1981. Hann lést 21. júní 2017. Útför Halldórs Ingva fór fram 5. júlí 2017. veru hans dagana á undan, en hann var ekkert að básúna ferðir sínar, og mátti öllum vera ljóst að hann væri nýkominn úr reisu um Alpahéruð Þýskalands. Það fór heldur ekki framhjá neinum hvar Hall- dór var staddur í skólanum þegar brugðið var á leik á þemadög- um. Á meðan margur karlkenn- arinn átti erfitt uppdráttar á bleika deginum gerði Halldór sér lítið fyrir og mætti í bleikum jakkafötum með samlitt bindi. Þrátt fyrir allan leikaraskap- inn var Halldór einstaklega yf- irvegaður. Hann hafði gaman af að spjalla en tal hans var aldrei hversdagsleg. Hann hafði brenn- andi áhuga fyrir afmörkuðum viðfangsefnum og þó að áhuga- málin væru ekki með öllu sam- eiginleg fundum við samhljóm í nördaskap hvor annars. Bóklest- ur og margvíslegar pælingar tengdu okkur saman en meðan hann var allur í fantasíunni var ég fastur í klassíkinni. Halldór hafði ævinlega eitthvað til mál- anna að leggja og iðulega brydd- aði hann upp á forvitnilegum umræðuefnum. Hann var þó aldrei ágengur með áhugamál sín en sagði gjarnan: „ég held þú gætir haft gaman af þessu“, þegar hann vildi kynna manni hugðarefni sín. Það var helst að andstæð sjónarmið kæmu upp þegar pólitík var til umræðu en aldrei kom til þess að skærist í odda. Halldór var enginn rifrild- ismaður. Þvert á móti brosti hann góðlátlega, hló kannski á sinn hljóðláta hátt og sagði svo hæversklega: „Ég er nú ekki al- veg sammála …“ Halldór var jafnan með góðlátlegt bros á vör og lágvær hlátur hans var ávallt skammt undan. Það var eins og hann kynni ekki annað en vera í góðu skapi og minnist ég þess varla að hafa hitt viðkunnanlegri mann. Við kynntumst í Öldutúns- skóla síðasta veturinn sem ég kenndi á þeim ágæta vinnustað og er hann einn þeirra sem ég sakna hvað mest. Í hvert skipti sem ég fer inn í nördabúðina okkar, þar sem bækur og borðs- pil eru í hávegum höfð, á ég hálfpartinn von á að rekast á Halldór. Þar áttum við síðast tal saman í sumarbyrjun. Hann stóð þar með spil í hönd en ég hafði gripið bók. Báðir vorum við með kaskeiti en skegg hans var áberandi betur snyrt en mitt. Hann gat verið jafn skap- andi með rakvélina og í klæða- vali. Við höfðum orð á að gaman væri að hittast með hækkandi sól enda um nóg að ræða. Margt fer öðruvísi en ætlað er en ég mun áreiðanlega minnast hans í hvert sinn sem ég fer í nörda- búðina. Leikgleði hans var lífs- gleði hins skapandi manns sem lætur hversdagsleikann lönd og leið. Leifur Reynisson. Oft rifjuðum við vinkonurnar upp hvernig var í Breið- holtsskóla hjá okkur og höfðum gaman af. Kennarinn með samanbitnar varir setti eina okkar undir kennaraborð, aðra inn á klósett og þriðju fram á gang – þannig var gjarnan hluti skóladagsins hjá okkur vinkonun- Auður Ósk Aradóttir ✝ Auður ÓskAradóttir fæddist 20. mars 1962. Hún lést 2. júlí 2017. Auður Ósk var jarðsungin 9. júlí 2017. um þar sem við þótt- um of málglaðar. Vinátta sem hélst alla tíð sama hvar við vorum staddar í lífinu. Dugnaður og þrautseigja var hennar auðkenni sem kom vel fram í veikindum hennar – Auður Ósk var ekki sú sem kvartaði heldur framkvæmdi. Vottum Ara Auðunni, Daníel Þór, Kolbrúnu og systkinum sam- úð okkar. Minning Auðar Óskar lifir með okkur. Arna Dungal og Jóna Ósk Konráðsdóttir. Elsku vinkona, aldrei hefði mér dottið í hug að ég ætti eftir að skrifa minningargrein um þig. Mikið á ég eftir að sakna þess að hitta þig ekki þegar ég er að koma vestur, bara að heyra hlát- urinn þinn gat sett mann í gott skap. Þegar ég frétti af veikindum þínum trúði ég því engan veginn að þetta væri svona alvarlegt. Við hittumst núna um páskana og það var bara eins og það yrði allt- af þannig, við að spjalla um séns- ana okkar og hlæja að allri vit- leysunni í okkur. Við höfðum alltaf átt auðvelt með að spjalla saman þegar við hittumst enda þekkst síðan við vorum unglingar. Við vorum af- skaplega bráðþroska eða alla- vega héldum við það og auðvitað fyrstar í okkar árgangi að eign- ast börn. Svo skildu leiðir um tíma þar sem þú fluttir til Reykjavíkur en alltaf var kært á milli okkar og við hittumst annað slagið og þá höfðum við bara gam- an. Þegar ég hugsa núna til baka þá rifjast upp fyrir mér atvík, þegar við vorum að hlusta á tón- list í herberginu þínu talandi um stráka og yngri systkini þín voru endalaust að koma inn og trufla okkur. Vá, hvað okkur þótti þau pirrandi en svo tveimur árum seinna vorum við orðnar mæður. Já, svona getur þetta nú farið, maður veit ekki sinn farveg í líf- inu. Elsku Auður mín, ég vil þakka þér allar fallegu góðu stundirnar sem ég átti með þér. Ég á eftir að sakna þín mikið. Ég vil að lokum senda fjöl- skyldu þinni, og sonum þínum, Ara og Daníel, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þín vinkona Sigurlaug R. Halldórsdóttir (Lauga). Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.