Morgunblaðið - 15.07.2017, Page 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
Smáauglýsingar
Atvinnuhúsnæði
Gott skrifstofuhúsnæði til leigu.
Til leigu er 197 ferm. skrifstofu-
húsnæði við Bíldshöfða. Skiptist í
móttöku, fimm stór skrifstofuher-
bergi, eldhús og geymslu. Ágæt
vinnuaðstaða fyrir allt að 12 starfs-
menn Sameiginlegar snyrtingar eru á
hæðinni. Vsk. innheimtist ekki af
leigunni og hentar húsnæðið því vel
aðilum sem eru í vsk. lausri starf-
semi. Beiðni um frekari
upplýsingar sendist í tölvupósti
til dogdleiga@gmail.com.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær og heitir pottar
Rotþrær-heildarlausnir með
leiðbeiningum um frágang.
Ódýrir heitir pottar-leiðbeiningar
um frágang fylgja.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Til sölu
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Tjaldvagnar
TIL SÖLU
COMANCHE Tjaldvagnar
Montana með 13“ dekkjum.
Með ferðaboxi Kr. 1088.000,-
Án ferðabox Kr. 990.000,-
Sími 530 5900
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Kerrur
Kerra til sölu
Til sölu er ný kerra á fjöðrum.
Hentar vel fyrir hálendið.
Upplýsingar í s.4838282
Til leigu
Flugskýli til leigu
í Fluggörðum á
Reykjavíkurflugvelli
halldorjonss@gmail.com✝ Fjóla Guð-brandsdóttir
fæddist í Hafn-
arfirði 1. febrúar
1942. Hún lést á
heimili sínu 6. júní
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Guð-
brandur Pálsson,
fæddur árið 1911,
látinn 1953, og
María Mark-
úsdóttir, fædd 1915, látin 1962.
Systkini Fjólu eru í aldursröð:
Klara, Ester, Páll, þá Markús og
yngstur var Kristjón. Systkinin
eru öll látin nema Markús.
Fjóla giftist Ásbirni Skarp-
héðinssyni, f. 3. apríl 1934, d. 1.
janúar 1994. Þau eignuðust fjög-
ur börn saman. Elst er María
Björk, fædd 1959; Skarphéðinn,
fæddur 1961, Guðbrandur Æg-
ir, fæddur 1963 og yngstur var
Sigurður Þór, fæddur 1968 en
hann lést úr
krabbameini aðeins
19 ára gamall.
Barnabörnin eru
tíu og lang-
ömmubörn Fjólu
eru fimm.
Fjóla sleit barns-
skónum í Hafn-
arfirði þar sem hún
ólst upp og hún var
einnig mikið austur
í Þykkvabæ hjá
frændfólki sínu en móðir hennar
átti ættir sínar að rekja þangað.
Fjóla lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborgarskóla árið 1957.
Hún var ung að árum þegar hún
fann ástina. Fluttist með Ás-
birni, manni sínum til Sauð-
árkróks 1959 og bjó þar til árs-
ins 1997 en þá flutti hún aftur til
Hafnarfjarðar þar sem hún bjó
til æviloka.
Útför Fjólu hefur farið fram í
kyrrþey.
Vinkona mín Fjóla Guðbrands-
dóttir er nú fallin frá. Leiðir okk-
ar Fjólu lágu fyrst saman á Sauð-
árkróki, þegar við hjónin fluttum
þangað. Við vorum báðar ungar
með lítil börn. Eiginmenn okkar
unnu saman og millum okkar
hófst góður vinskapur sem hélst
alla tíð þó leiðir skildu um sinn
vegna búferlaflutninga. Náin
samskipti okkar Fjólu voru mest
á árunum á Króknum og minn-
ingar mínar um þau flestar það-
an.
Ásbjörn (Böddi) og Fjóla eign-
uðust fjögur börn. Einn dreng,
Sigurð, misstu þau á unglings-
aldri eftir langvarandi og erfið
veikindi. Það er öllum aðstand-
endum sárt að lifa slíka raun en
sárust er hún þó ævinlega móð-
urinni.
Fjóla var hrifnæm og mjög ein-
læg. Hún var afar músíkölsk og
hafði fallega altrödd og samdi lög,
m.a. í danslagakeppnir á Krókn-
um. Hún lék á gítar og eignaðist
síðar píanó og lærði á það. Hún
var fjölhæf og vann ýmis verk,
sem ekki voru alvanaleg. Böddi
var slyngur veiðimaður og aflakló
og aflaði heimilinu mikið matar
með veiðiskap. Mér þótti gaman
að horfa á hana gera að veiðinni,
hvort sem það var fiskur eða tugir
af svartfugli eða gæsum.
Eitt sinn þegar ég kom til
hennar var hún komin með tæki
sem Böddi hafði smíðað. Það not-
aði Fjóla til að vinda anker í raf-
ala, mest fyrir bíla. Á þessum ár-
um var mikil eftirspurn eftir
slíkum varahlutum og Fjóla
framleiddi þá heima hjá sér.
Fjóla fékkst mikið við garð-
rækt á Króknum. Fyrst á Hólma-
grundinni þar sem þau byggðu
stórt og veglegt hús. Það var
aðdáunarvert að sjá hvað henni
tókst að rækta þrátt fyrir sjávar-
seltuna og rokið. Seinna byggðu
þau svo framanvert í Sauðárhæð-
inni fallegt og glæsilegt hús. Þar
var sundlaug og gróðurhús með
sjálfvirku hita- og vökvunarkerfi.
Þar ræktaði hún garð, sem fékk
viðurkenningu sem fegursti garð-
urinn á Sauðárkróki.
Fjóla og Böddi ferðuðust víða
um Evrópu á húsbíl sínum. Í þeim
ferðum keypti hún lauka og fræ,
sem hún ræktaði svo heima á
Króknum.
Eftir að Böddi lést, langt um
aldur fram, flutti hún suður og
keypti sér íbúð efst á Setbergs-
hæðinni. Þaðan blasti við henni í
allri sinni dýrð Hafnarfjörður,
fæðingarstaður hennar og heima-
byggð. Svo vann hún í mörg ár á
saumastofunni á Sólvangi og sá
um hana meðan heilsan leyfði.
Við héldum alltaf sambandi þó
að það hafi farið minnkandi síð-
ustu árin.
Minnisstætt er mér þegar við
Valla vinkona okkar heimsóttum
hana í tilefni afmælis hennar. Þá
var rifjað upp ýmislegt frá því við
vorum allar saman á Króknum og
hláturinn glumdi hátt og dátt eins
og svo oft í gamla daga.
Það er dýrmætt að eiga slíkar
minningar.
Ég sendi börnum hennar og
barnabörnum einlægar samúðar-
kveðjur.
Kristín Viggósdóttir (Lóló).
Fjóla
Guðbrandsdóttir
Mig langar til að
minnast Halla vinar
míns með örfáum
orðum.
Það er ekki nema
hálft ár síðan að við fengum þær
slæmu fréttir að Halli hefði verið
að greinast með krabbamein.
Við höfum ýmislegt brallað
saman í gegnum tíðina, í kringum
16 ára aldurinn og upp úr því vor-
um við strákarnir oftast fimm
saman. Það var oft ansi gaman hjá
okkur félögunum. Aðal-sam-
komustaðirnir okkar voru uppi á
lofti í Hagafelli hjá Gúnda og Bróa
eða í kjallaranum hjá mér á Mána-
götunni og þaðan var svo haldið á
Hallgrímur Bogason
✝ HallgrímurBogason fæddist
30. nóvember 1954.
Hann lést 2. júlí 2017.
Útför Hallgríms
fór fram 10. júlí
2017.
böllin. Halli stofnaði
með félaga sínum
Hjólbarðaverkstæði
Grindavíkur í mars
1974 og keypti hann
síðan hans hlut fljót-
lega og rak verk-
stæðið upp frá því
einn. Það var svo
þegar ég var í stýri-
mannaskólanum og
stundum eftir það að
ég greip í að vinna
með Halla á verkstæðinu, okkur
báðum til mikillar ánægju. Ég
held að það hafi svo verið snemma
árs 1975 að þau skötuhjúin Halli
og Tótla byrja að skjóta sér sam-
an og hófu síðan búskap um
haustið í pínulítilli íbúð í kjallaran-
um á prestsbústaðnum.Það var
ósjaldan að við félagarnir komum
heim til Tótlu seint á kvöldin
drulluskítugir uppfyrir haus eftir
vinnu á verkstæðinu og sátum þá
stundum fram á nótt að sumbli
með tilheyrandi hávaða og
skemmtilegheitum við misjafnar
vinsældir ungu húsfreyjunnar
sem þurfti að þola okkur svona á
meðan hún var ófrísk að elsta
barni þeirra hjóna, en síðan fórum
við nú að róast.Við byggðum svo
húsin okkar saman í Heiðar-
hrauninu,þar sem við bjuggum
lengi vel hlið við hlið. Það er svo
eins og gengur og gerist að menn
fara hver í sína áttina með tím-
anum og sambandið varð minna í
seinni tíð en alltaf hélst vinátta
okkar og bar þar aldrei skugga á.
Hvíldu í friði, elsku vinur.
Elsku Tótla og fjölskylda, okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Rúnar og Karen.
Stutt símtal frá München til
Grindavíkur árið 1991 og símbréf
(telefax) til baka með boði um
samstarf frá bílaleigunni Rás ehf.
var upphafið að einstöku sam-
starfi sem stóð yfir í áratugi og
vináttu sem varað hefur fram á
þennan dag. Þegar við kynntumst
var ég enn blautur á bak við eyrun
en Halli 12 árum eldri, reynslu-
bolti með langa reynslu af banka-
málum, fjármálum og fyrirtækja-
rekstri en líka annarri dýrmætri
lífsreynslu eins og að vera fjöl-
skyldufaðir og starfa í stjórnmál-
um.
Engin vandamál, bara verkefni
og lausnir. Alltaf úrræðagóður, já-
kvæður, bjartsýnn, víðsýnn og
traustur. Alltaf gaf hann sér tíma
til þess að ræða málin fram og aft-
ur og benda mér á fleiri sjónar-
horn, leiðir og lausnir. Hann var
alltaf tilbúinn til að gefa mér af
tíma sínum og viskubrunni sem
var fjársjóður að komast í. Halli
var ómetanlegur bakhjarl við
stofnun Katla Travel GmbH árið
1997.
Einn besti drengur sem ég hef
kynnst er nú lagður af stað í ferð-
ina löngu sem við förum öll í fyrr
eða síðar. Á kveðjustund og tíma-
mótum er þakklátur fyrir ein-
staka vináttu, allt traustið, öll
góðu samtölin um allt milli himins
og jarðar. Hafðu þökk fyrir allt og
allt, elsku vinur.
Pétur Óskarsson.
Kæri vinur.
Það er margs að
minnast. Það er
fyrsta útilegan í
Borgarfirði rétt
hjá Hraunfossum, það geislaði
af þér og frænku minni ástin.
Nú ert þú róinn á æðri mið, en
ekki á bátnum okkar Erlu –
Jónu sem við rérum út á Með-
alfellsvatn, eins og við gerðum
svo oft, veiddum þar silung og
einstaka lax. Margt kemur í
hugann að leiðarlokum allar
yndislegu ferðirnar í Vatnsvík-
ina á Þingvöllum. Þar sem við
tjölduðum, þá mátti tjalda þar,
það sem stendur upp úr er
samneytið með ykkur og börn-
unum, svo má ekki gleyma
kassanum með litlu Coca Cola
sem þú varst ætíð með í skott-
inu og börnin elskuðu. Þar
veiddum við margar murturnar
Jóhann
Ólafsson
✝ Jóhann Ólafs-son fæddist 20.
júlí 1936. Hann lést
14. júní 2017.
Útför Jóhanns
fór fram 3. júlí
2017.
og bleikjur, hvað
þá heldur þegar
einn fiskurinn
hljóp á land, það
reyndist vera
minkur sem hafði
bitið á. Hvar á
maður að stoppa?
Það er svo margs
að minnast frá ljúf-
um lífsferli með
þér og öllum hin-
um.
Þú varst mikill bílakarl en
öllu slóstu við þegar þú komst
með splunkunýtt hjólhýsi aftan
í Landrovernum til að sýna
okkur. Þetta var með allra
fyrstu hjólhýsum sem sáust hér
á götunum á þeim tíma.
Hafðu hjartans þökk, og þín
fjölskylda, fyrir allar gleði-
stundirnar sem okkar fjöl-
skylda átti með ykkur. Þú varst
gleðigjafinn mikli.
Okkar innlegustu samúðar-
kveðjur til Jónu Bjargar og
fjölskyldu.
Hvíldu í friði, kæri vinur, og
þökk fyrir allt.
Sigurður Már
og Erla.
Okkur fjölskyld-
una langar að senda
nokkrar línur til
minningar um kær-
an vin Kela okkar,
hann Óla Val. Það sem stendur
upp úr í minningunum um þá fé-
laga er hinn djúpi kærleikur sem
var þeirra á milli, hvernig sem á
stóð í þeirra lífum. Þær voru ófáar
fjallaferðirnar upp í ÍR skála sem
þeir félagar fóru í og var Tinna
Björk afastelpa oft með í för. Hún
var svo heppin að Óli Valur
kenndi henni á skíði, þar sem afi
hennar var löngu hættur þeirri
iðkun á þeim tíma. Hún minnist
þess líka oft hversu spennt hún
varð í einni slíkri ferðinni með
þeim félögum þegar strákurinn
hans Óla Vals átti að koma með og
hún hélt að hún hefði loksins ein-
hvern að leika við í fjallferðunum.
En vonbrigðin urðu mikil þegar
Ólafur Valur
Sigurðsson
✝ Ólafur ValurSigurðsson
fæddist 12. desem-
ber 1930. Hann lést
13. júní 2017.
Útför hans fór
fram 4. júlí 2017.
hún fattaði að strák-
urinn var eldri en
foreldrar hennar. Í
augum Kela voru
allir félagar hans
strákar og það lærði
hún á þessum tíma.
Það er samt skrítið
til þess að hugsa að
nú eru strákarnir
sem voru sem mest
saman upp í fjöllum,
allir samankomnir á
einn stað. Vonandi eru það fjör-
ugir endurfundir.
Keli var veikur í ansi langan
tíma en Óli Valur sá alltaf um að
hafa ofan af fyrir honum með því
að taka hann með sér upp í fjöll
eða í karlakaffi í Perlunni. Það er
ekki oft sem maður verður vitni af
svo góðum og djúpum vinskap og
það ber að þakka. Þar sem Óli
Valur var svo mikið til staðar fyrir
Kela varð hann sem órjúfanlegur
partur af fjölskyldunni á erfiðustu
stundunum í sjúkdómsferlinu. Við
fjölskyldan sendum fjölskyldu
Óla Vals okkar dýpstu samúðar-
kveðjur frá Danmörku.
Grethe Ingimarsson
og fjölskylda.