Morgunblaðið - 15.07.2017, Qupperneq 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
Kristján Ottósson verðuráttræður á morgun, 16.júlí. Hann er einn aðal-
frumkvöðull að stofnun Lagna-
félags Íslands árið 1986 og
fyrsti formaður þess og fram-
kvæmdastjóri frá upphafi. Hann
hefur verið ritstjóri og ábyrgð-
armaður bæði Lagnafrétta og
fréttabréfs félagsins frá stofnun
þess, og liggja margar greinar
eftir hann í báðum ritunum, auk
fjölda annarra blaðagreina.
„Þegar Lagnafélagið var stofn-
að 1986 var ástandið þannig að
iðnaðarmenn og hönnuðir töl-
uðust ekki við, voru feimnir
hvorir við aðra. Þetta var stórt
vandamál. Lagnafélagið opnaði
þessa rás og nú vill enginn fara
til baka. Það eru allir vinir eins og þar stendur,“ en að Lagnafélaginu
koma allar þær fagstéttir sem vinna að lagnamálum.
Kristján var einn aðalhvatamaður að stofnun Tölvutæknifélags Ís-
lands árið 1991, varaformaður og framkvæmdastjóri fyrstu fjögur árin
og það var einnig fyrir tilstuðlan og eldmóð Kristjáns að Lagnakerfa-
miðstöð Íslands var stofnuð árið 1999. Kristján var framkvæmdastjóri
miðstöðvarinnar frá upphafi, þar til hún var gefin Tækniskólanum,
skóla atvinnulífsins, árið 2009. Það er ekki síst fyrir tilstuðlan Kristjáns
að fjöldi ráðstefna og fyrirlestra á sviði lagnamála hefur verið haldinn
hér á landi. Í áraraðir fór Kristján sem fararstjóri lagnamanna á fag-
sýningar erlendis.
Áður en Kristján varð framkvæmdastjóri Lagnakerfamiðstöðvar-
innar rak hann Hita- og loftræstiþjónustuna ehf. frá 1988 til 2000 í 12
ár. Kristján hefur unnið mikið að félagsstörfum og var m.a. formaður
Félags blikksmiða árið 1972-1984, en hann er blikksmiður og vélstjóri
að mennt. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín og fé-
lagsmál og var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu af
forseta Íslands, 17. júní 2013.
Kristján er kvæntur Þóru Hafdísi Þórarinsdóttur, fyrrverandi banka-
starfsmanni, og eignuðust þau fjögur börn, þrjár dætur og einn son.
Hann fæddist í Svalvogum í Dýrafirði og þau hjónin eiga hús á Þingeyri.
„Við erum eins mikið hérna og við getum, erum hér í júní, júlí, ágúst og
september. Við erum að dytta að húsinu og þjóna trjánum og blóm-
unum. Trén eru orðin tólf metra há síðan við plöntuðum þeim en það
var ekki eitt einasta tré hérna þegar við keyptum húið árið 1994.“ Í til-
efni af afmæli Kristjáns verður veisla í samkomuhúsinu á Þingeyri á
morgun og hefst hún kl. 4.
Dýrfirðingur Kristján Ottósson.
Stýrir ennþá
Lagnafélaginu
Kristján Ottósson áttræður á morgun
K
ristján Þór Júlíusson
fæddist á Akureyri
15.7. 1957. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA
1977, fyrsta og annars
stigs skipstjórnarprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík 1978,
stundaði nám í íslensku og almennum
bókmenntum og lauk prófi í uppeldis-
og kennslufræði 1984.
Eftir stúdentspróf fórstu í Stýri-
mannaskólann. Var það ætlunin að
gera sjómennskuna að ævistarfi?
„Nei, nei! Þetta var bara það sem
mig langaði að gera þá. Tíminn leiddi
svo í ljós nýjar áskoranir sem ég vildi
ekki víkjast undan. Ég hef aldrei
ákveðið neitt eitt ævistarf í eitt skipti
fyrir öll – aldrei lokað á ný tækifæri.
Það er m.a. ástæða þess að ég hef not-
ið þeirrar gæfu í gegnum tíðina að fá
að glíma við fjölbreytileg verkefni
með frábæru fólki. Fyrir það er ég
þakklátur.“ En þetta er ólíkur starfs-
vettvangur – sjómennska og pólitík?
„Já, á yfirborðinu. En í grunninn
snýst þetta um að sinna sínum verk-
um af alúð og ábyrgð, hvort heldur
það er gagnvart áhöfninni, fjöl-
skyldum hennar eða gagnvart kjós-
endum.
Það skiptir einnig miklu máli að
glæða starfsandann, stilla saman
strengi og hvetja fólk til dáða. Án þess
fiska menn lítið og koma fáu góðu til
leiðar í stjórnmálum.“
Kristján var stýrimaður og skip-
stjóri á skipum frá Dalvík á árunum
1978-81 og á sumrin 1981-85. Hann
var kennari við Stýrimannaskólann á
Dalvík 1981-86 og við Dalvíkurskóla
1984-86, ritstjóri Bæjarpóstsins á Dal-
vík 1985-86, bæjarstjóri á Dalvík 1986-
94, bæjarstjóri Ísafjarðarkaupstaðar
1994-96 og Ísafjarðarbæjar 1996-97,
og bæjarstjóri á Akureyri 1998-2006.
Kristján hefur verið alþingismaður
Norðausturkjördæmis fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn frá 2007, var heilbrigð-
isráðherra 2013-2017 og er mennta-
og menningarmálaráðherra og ráð-
herra norrænna samstarfsmála frá
2017.
Kristján var bæjarfulltrúi á Akur-
eyri 1998-2007 og sat í fjölda ráða og
nefnda á vegum bæjarins. Hann sat í
stjórn Fjórðungssambands Norðlend-
inga 1989-90, í Héraðsráði Eyja-
fjarðar 1990-94, var stjórnarformaður
Hafnasambands sveitarfélaga 1994-
Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra – 60 ára
MA-sextettinn Fjölskyldan í garðinum, heima á Akureyri, í tilefni af stúdentsprófi Þorsteins 17. júni sl. Talið frá
vinstri: Gunnar, Þorsteinn, Kristján, Guðbjörg, María og Júlíus. Þau eru auðvitað öll stúdentar frá MA.
Yfirvegaður og ábyrgur
Afmælisbarnið Sjómaður og dáða-
drengur, ungur að árum.
Sigtryggur Benedikts, ávallt kall-
aður „Siddi“ verður áttræður
mánudaginn 17. júlí. Siddi er fyrr-
verandi skipstjóri, útgerðarmaður
og nú síðast dreifingaraðili Morg-
unblaðsins á Hornafirði. Á afmæl-
isdaginn verða Siddi og kona hans,
Bryndís Flosadóttir, á heimili sínu
á Hæðagarði 6, Hornafirði.
Árnað heilla
80 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
NÝ ÞJÓNUSTA
FYRIR ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ