Morgunblaðið - 15.07.2017, Síða 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þetta er góður dagur til að gera
breytingar á nánasta umhverfi þínu. Leiðin
sem þú ert á, er ekki leiðin til ríkidæmis.
Gakktu eins og þú vitir hvert þú ert að fara.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er komið að því að taka ákvörðun
svo þú verður að taka af skarið. En þér er al-
veg óhætt að hafa meiri trú á samstarfs-
mönnum þínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur þá dirfsku til að bera sem
ætti að duga til að koma metnaðarfullu verk-
efni í höfn. Bíddu með að kveða upp þinn
dóm þangað til öll kurl eru komin til grafar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það kallar á heilmikið skipulag þegar
margt liggur fyrir bæði í starfi og utan þess.
Láttu til skarar skríða en gættu þess þó að
fara ekki of hratt yfir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert friðsæl/l og í góðu jafnvægi og
hefur því góð áhrif á alla í kringum þig. Erg-
elsi úti í gamla vini er liðið hjá og þú getur
einbeitt þér að því sem stendur þér næst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Áhrifamiklir félagar birtast í öllum
stærðum og gerðum. Hvernig væri að vera
hlýlegri í viðmóti? Skoðaðu alla möguleika í
stöðunni og láttu að lokum þitt eigið brjóstvit
ráða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einbeittu þér að því sem þú kemst auð-
veldlega yfir og getur leyst svo vel fari. Hafðu
í huga að raunveruleg ást á yfirleitt lítið skylt
við það sem við sjáum í Hollywood-
kvikmyndum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Undarlegar tilfinningar bærast
hugsanlega innra með þér í dag. Leitaðu ráða
hjá sérfræðingi um lagaleg atriði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samband við nána vini og félaga
verður erfitt í dag og þér líður ekki sérlega
vel. Láttu smásmugulegar athugasemdir
vinnufélaga sem vind um eyru þjóta.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samstarfsmaður mun koma þér til
hjálpar þegar þú þarft á því að halda. Vertu á
varðbergi gagnvart skyndihugdettum í inn-
kaupum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki leggjast í þunglyndi þótt
stóru verkefni sé nýlokið. Framlag þitt er
mun mikilvægara og áhrifameira en þú gerir
þér grein fyrir á þessu augnabliki lífs þíns.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt gott með að tjá þig við aðra
hvort heldur það er í gamni eða alvöru.
Gefðu þér góðan tíma til þess að undirbúa
textann.
Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns-
son:
Á skipunum oft er harla há.
Í heiti flokksins bundin.
Getulausum er lítil hjá.
Léttir þeim, sem dóma fá.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Reisn á skipi skagar hátt.
Skattfé á Viðreisnar snærum.
Typpisreisnin missti mátt.
Mætra bófa reisn á ærum.
Árni Blöndal svarar:
Skipum yfirbygging á,
einnig viðreisn nefna má,
reisn ef vantar, vont er þá,
vondir uppreisn æru fá.
Svarið strax ég sendi þér
svona beint það kemur hér
og með reisn það frá mér fer,
fundið svar sem líkar mér.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Yfir skipum oft er reisn.
Er sá flokkur Viðreisn.
Getulausra lítil reisn.
Léttir æru uppreisn.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Fangar uppreisn æru hljóta,
aðeins bregðast reisnin fer.
Viðreisnin mun náðar njóta
næg er reisn á skipi hér
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig:
Er lausninni var leitað að
leyndist víða feillinn.
Rétt var samt að reyna það.
„Reisnin var það, heillin.“
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Skipanna reisn er harla há.
Heitir Viðreisn flokkur sá.
Lítil reisn er linum hjá.
Léttir dæmdum, sem uppreisn fá.
Þá er limra:
Stjórnin er komin á stera
og stöðugt má áhyggjur bera,
því framtíðin Björt
er bara kolsvört,
og Viðreisn er búin að vera.
Og síðan kemur Guðmundur með
laugardagsgátuna:
Í morgun ég vaknaði að vanda
og var næsta glaður í anda,
er hugsi ég gekk út á Granda,
því gátan ei lét á sér standa:
Í brjósti mér löngum bærist.
Í blænum vart seglið hrærist.
Látæði montinna manna.
Hjá mörgum er tímabil anna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Allir vilja halda reisn sinni
Í klípu
„GETUM VIÐ SKILAÐ HONUM EF ÞETTA
GENGUR EKKI UPP?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ ER EKKERT AÐ HONUM. HANN
GERIR ÞETTA BARA TIL ÞESS AÐ LÁTA
MIG LÍTA ILLA ÚT.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að prjóna peysuna
hans tveimur númerum
of stóra!
HA! HA! HA!
HA! HA! HA! HA!
HA! HA!
OG HVERJU ERT
ÞÚ AÐ HLÆJA AÐ?
JEMINN…
HVAR Á ÉG AÐ
BYRJA… HVAR Á
ÉG AÐ BYRJA…
HVENÆR RÁÐUMST
VIÐ Á KASTALA
HERTOGANS
ÁSTARSÓFAR
VIÐ GERUM ÞAÐ
EKKI. ÉG SENDI
INN LEYNIVOPNIÐ
MITT!
ER HANN
OFURHER-
MAÐUR?
HANN ER
SPILAFANTUR!
Víkverji viðurkennir það fúslegaog algjörlega án þess að skamm-
ast sín að hann er mikill áhugamað-
ur um fótbolta, hvort sem er kvenna-
eða karlabolta. Nú um stundir eiga
„Stelpurnar okkar“ alla hans athygli
og aðdáun og munu eiga allt Evr-
ópumótið í Hollandi. Fyrsti leikur
stelpnanna í Hollandi á móti sjálfum
Frökkum, er mikið tilhlökkunarefni.
Það hefur satt best að segja verið
stórskemmtilegt og áhugavert að
fylgjast með íslenska kvennalands-
liðinu í knattspyrnu undanfarin ár
og misseri. Stelpurnar eru ekki bara
gullfallegar, hreystin uppmáluð og
sjálfstraustið uppmálað frá toppi til
táar, heldur ljóma þær af tilhlökkun
og leikgleði skín úr hverju andliti.
x x x
Víkverja finnst til fyrirmyndarhvernig fjölmiðlar hafa mark-
visst unnið að því að undanförnu að
kynna íslenska kvennalandsliðið til
sögunnar, ekki bara leikmenn og
leikskipulag, heldur einnig liðið sem
liðsheild og persónurnar sem leik-
mennirnir eru.
EM-umfjöllun Morgunblaðsins í
íþróttablaði Morgunblaðsins og á
fréttasíðum blaðsins um liðið og hin-
ar ýmsu hliðar undirbúnings fyrir
mótið hefur verið afskaplega lífleg,
litrík og skemmtileg og á hverjum
degi hefur mátt fræðast um nýja hlið
á liðinu í þeirri umfjöllun. Þá kom
stórglæsilegt sérblað íþróttadeildar
Morgunblaðsins um EM út í gær og
áhugasamir munu örugglega geyma
blaðið og hafa við höndina fram yfir
mótið.
x x x
Þá má ekki gleyma að minnast ámjög vel gerða og unna þætti
RÚV Leiðin á EM, sem Edda Sif
Pálsdóttir, íþróttafréttamaður RÚV,
gerði í einstaklega persónulegri og
góðri samvinnu við stelpurnar.
Þættirnir fjórir kynntu lands-
mönnum nýjar og áður óþekktar
hliðar á stelpunum. Við fengum inn-
sýn í þankagang þeirra, sorgir og
gleði, væntingar og vonbrigði og
fannst vitanlega eftir þættina að við
ættum hvert bein í stelpunum okkar,
ekki satt? Á þriðjudag mun Áfram
Ísland hljóma víða, það er öruggt.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Óttast eigi því að ég er með þér, vertu
ekki hræddur því að ég er þinn Guð.
Ég hjálpa þér, ég hjálpa þér, ég styð þig
með sigrandi hendi minni. (Jes. 41:10)