Morgunblaðið - 15.07.2017, Page 52

Morgunblaðið - 15.07.2017, Page 52
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 196. DAGUR ÁRSINS 2017 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Heitustu einhleypu konur landsins 2. Vonsviknir með ákvörðun Gylfa 3. Fimm sýruárásir í London … 4. Börðu bandarískan ferðamann til bana  Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir Föðurnum eftir Florian Zeller í Þjóð- leikhúsinu en verkið verður frumsýnt í október. Um er að ræða nýtt franskt verðlaunaverk sem lýst hefur verið sem harmrænum farsa. Það fjallar um André sem tekinn er að eldast. Á árum áður starfaði hann sem verk- fræðingur … eða var hann kannski steppdansari? Bláókunnugt fólk birt- ist á heimili hans og segist skylt hon- um. Óvíst er hvort heilinn er farinn að gefa sig eða heimurinn genginn af göflunum. Leikarar eru Edda Arn- ljótsdóttir, Eggert Þorleifsson, Harpa Arnardóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Leikmynd hannar Stígur Steinþórsson og búninga Þór- unn María Jónsdóttir, en tónlist sem- ur Borgar Magnason. Íslensk þýðing er eftir Kristján Þórð Hrafnsson. Morgunblaðið/Kristinn Leikstýrir frönsku verðlaunaverki  Kvartett söngkonunnar Kristjönu Stefánsdóttur kemur fram á áttundu tónleikum sumartónleikaraðar veit- ingahússins Jómfrúarinnar við Lækj- argötu í dag kl. 15. Auk Kristjönu skipa kvartettinn Ómar Guðjónsson sem leikur á gítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Krist- ófer Rodriguez Svönuson á trommur. Kvartettinn mun flytja klass- íska djass- standarda. Tónleikarnir fara fram á Jómfrúar- torginu. Kvartett Kristjönu djassar á Jómfrúnni FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-10 m/s og víða skúrir. Heldur hvassara við suð- austurströndina síðdegis. Hiti 9 til 18 stig. Á sunnudag Vestan- og norðvestanátt, víða 8-13 m/s. Skýjað með köflum og úrkomulít- ið suðaustanlands, annars skúrir, en rigning á Vestfjörðum og við norðurströndina. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast suðaustantil. Á mánudag Suðvestan 5-10 og smáskúrir, en þurrt aust- anlands. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig. Fer að rigna á Suðvestur- og Vesturlandi um kvöldið. „Okkar markmið er að ná sem lengst í riðlakeppninni því að henni lokinni tekur við útsláttarkeppni í 16-liða úr- slitum. Eins og margir þekkja er ekki á vísan að róa þegar komið er út í út- sláttarkeppni. Þar má ekkert bera út af,“ segir Sigursteinn Arndal, annar þjálfara 21-árs landsliðs karla í hand- bolta, sem er á leið á heimsmeist- aramótið í Alsír. »2 Ætlum að ná sem lengst í riðlakeppninni „Ég hef síðasta árið æft und- ir stjórn Bobs Bowmans, þjálfara Michaels Phelps til margra ára. Bowman hefur aðstoðað mig mikið. Breytt sundtækninni hjá mér og ver- ið hreint frábær þjálfari á alla lund. Þess vegna er ég afar spennt að sjá hvernig gengur,“ segir sundkonan Ingibjörg Kristín Jónsdóttir sem er á leið á heimsmeist- aramótið. »4 Æfði hjá þjálfara Michaels Phelps Jón Daði Böðvarsson, landsliðs- framherji í knattspyrnu, skrifaði í gær undir samning til þriggja ára við enska B-deildarfélagið Reading. Hann var keyptur til félagsins frá Wolves og flaug til móts við nýja liðs- félaga til Hollands í gær, þar sem þeir eru í æfingabúðum. Reading hefur góða reynslu af íslenskum leik- mönnum en Jón Daði verður fimmti Íslend- ingurinn sem spilar fyrir aðallið fé- lagsins. » 3 Jón Daði verður sá fimmti hjá Reading Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Verbúðir voru íverustaðir sjómanna sem reru til fiskjar á árum áður frá landnámi. Þetta eru steinhlaðin hús við sjávarströndina. Þessar minjar eru einfaldlega að hverfa í brimið með hækkandi sjávaryfirborði og land- sigi,“ segir Eyþór Eðvarðsson, for- maður Fornminjafélags Súganda- fjarðar, en félagið hefur reist verbúð í Staðardal í Súgandafirði að þúsund ára gamalli fyrirmynd. „Verkefnið byrjaði með stofnun Fornminjafélagsins fyrir rúmum þremur árum. Við stofnuðum félagið til þess að skoða hvað væri til af forn- minjum í firðinum, skrá örnefni og sögu fornra hluta og svæða. Einnig er- um við að safna gömlum ljósmyndum á vefsvæði,“ segir Eyþór en bygging verbúðarinnar hófst síðastliðið sumar. „Við fengum Valdimar Össurarson úr Kollsvík til þess að rýna í gamlar verbúðir og hann kom með tilgátu um hvernig þetta leit út. Fyrirmyndin er sótt í gamla tímann og því mjög ein- föld, byggð úr grjóti, torfi og viði.“ Eyþór segir að margar fornminjar séu í Súgandafirði og eins á öllu land- inu. „Ísland er búið að skrá um 25% af fornminjum sínum, sem er mjög lítið en það vantar pening í verkefnið.“ Allt unnið í sjálfboðavinnu „Í næsta nágrenni má sjá tóftir af verbúðum en í Staðardalnum var róið til fiskjar frá nokkrum verstöðvum; Stöðinni, Árósnum og Keravíkinni,“ segir Eyþór og bætir við að verkefnið hafi verið unnið í góðu samstarfi við Minjastofnun sem m.a. tók út svæðið áður en framkvæmdir hófust til að tryggja að engum minjum yrði rask- að. Verbúðin hefur fengið nafnið Ársól eftir kvenfélaginu sem rak réttarskál- ann sem var á sama stað og búðin er byggð á. Sá skáli var rifinn fyrir ein- hverjum tugum ára, að sögn Eyþórs. „Við heiðruðum kvenfélagið með því að nefna búðina eftir því.“ Við hliðina á verbúðinni er sex- æringur sem Fornminjafélag Súg- andafjarðar fékk frá bátasafninu á Reykhólum og er hann um 80 ára gamall. „Við ætlum einnig að setja niður aflraunasteina en algengt var að sjómenn reyndu sig í aflraunum, og hugsanlega búa til hróf fyrir bátinn, fiskgarða og trönur. Við ætlum líka að skoða inni í búðinni hvað við getum gert þar, hvernig fletin voru og eld- unaraðstaða. Fjöldi félagsmanna og annarra vel- unnara kom að verkefninu og sýndi því mikinn velvilja. Allt var unnið í sjálfboðavinnu og það sem þurfti að kaupa var keypt með félagsgjöldum Fornminjafélagsins. Þessi verbúð er fyrir okkur alla Íslendinga, þetta er okkar þjóðararfur. Þetta er líka svo gríðarlega fallegur staður. Allir eru velkomnir en við biðjum fólk bara að ganga vel um.“ Súgfirðingar eignast verbúð  Byggð að þús- und ára gamalli fyrirmynd Verbúð Fornminjafélag Súgandafjarðar hefur reist verbúð í Staðardal í Súgandafirði að þúsund ára gamalli fyr- irmynd. Hún er öllum opin og öllum velkomið að líta inn og lifa sig inn í þúsund ára sögu útræðis. Ljósmynd/Ingrid Kuhlman Sjálfboðavinna Vinna við verbúðina hófst síðastliðið sumar þegar vegg- irnir voru hlaðnir og í sumar var sett torfþak og gaflar og hurð smíðuð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.