Morgunblaðið - 22.07.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7067 | 869 7537 Guðmundur Gísli
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Arnar Þór Ingólfsson
Ólöf Ragnarsdóttir
Síðdegis á fimmtudag slapp fangi á
Akureyri og var laus í tæpar sjö
klukkustundir. Hann var í garð-
vinnu við lögreglustöðina og gekk
einfaldlega í burtu á meðan fanga-
vörðurinn sem var með honum hafði
brugðið sér frá í skamma stund.
„Hann bara labbaði í burtu,“ segir
Guðmundur Gíslason, forstöðumað-
ur fangelsanna á Hólmsheiði og Ak-
ureyri. Að sögn Guðmundar slapp
fanginn klukkan rúmlega fjögur síð-
degis og fannst ekki fyrr en að
klukkan var að verða ellefu að
kvöldi. Lögregla fann fangann fyrir
utan Borgarbíó á Akureyri og færði
hann aftur í fangelsið. Fanginn hafði
þó ekki skellt sér á kvikmyndasýn-
ingu. „Hann var ekki í bíói á Prison
Break eða eitthvað,“ segir Guð-
mundur.
Ekki liggur fyrir hvað olli því að
fangavörðurinn sem hafði umsjón
með manninum þurfti að bregða sér
frá, en Guðmundur segir að í fram-
haldi af þessari uppákomu verði
málið skoðað betur og athugað hvað
hefði mátt betur fara.
Verst sé málið þó fyrir fangann
sjálfan þar sem um gróft agabrot sé
að ræða. „Þetta skemmir bara fyrir
honum sjálfum varðandi reynslu-
lausn og annað,“ segir Guðmundur.
Fanginn er ekki talinn hættulegur
frekar en aðrir fangar sem vistaðir
eru á Akureyri.
Fangi gekk laus í margar
klukkustundir á Akureyri
Labbaði burt frá garðvinnu Fannst við Borgarbíó
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyri Fangelsið er til húsa í lög-
reglustöðinni í bænum.
Engar vís-
bendingar
um ofbeldi
Engar vísbend-
ingar komu fram
um ofbeldi, t.d.
einelti eða kyn-
ferðislega áreitni
á vinnustað
Stígamóta. Koma
þær upplýsingar
fram í niðurstöðu
mats, sem gert
var á vinnustað
Stígamóta í kjölfar þess að tíu konur
lýstu neikvæðri upplifun sinni af
starfi sínu hjá samtökunum.
Guðrún Jónsdóttir hefur tekið við
hlutverki talskonu Stígamóta að
nýju, óskaði stjórn Stígamóta í sam-
ráði við starfshóp eftir því. Segir í
tilkynningu frá Stígamótum að í ljósi
niðurstaðna matsins „þykir stjórn
Stígamóta yfir allan vafa hafið að
traust, trúnaður og starfsánægja
ríki meðal starfsfólks Stígamóta“.
Þá segir í samantekt matsins, sem
gert var af Forvörnum, starfsmenn
Stígamóta „búa við talsvert starfs-
álag en virðast ráða vel við það og
hafa góðan stuðning“. axel@mbl.is
Guðrún Jónsdóttir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Tillaga Umhverfisstofnunar að starfsleyfi
fyrir kísilverksmiðju PCC Bakka Silicon hf.
gerir ráð fyrir að heimilt verði að framleiða
allt 66.000 tonnum á ári af hrákísli og allt að
27.000 tonnum af kísildufti/kísilryki og
6.000 tonnum af málmleif og gjalli og 1.500
tonnum af forskiljuryki.
Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu
Umhverfisstofnunar. Þar kemur einnig
fram að tillagan ásamt fylgiskjölum og um-
sókn rekstraraðila mun verða aðgengileg
hjá sveitarfélaginu Norðurþingi á tíma-
bilinu 20. júlí til 15. september 2017.
Fram kemur að Skipulagsstofnun taldi í
sínu áliti að áhrif framkvæmdarinnar yrðu
talsvert neikvæð á loftgæði og á landslag
og ásýnd svæðisins.
Verða innan marka
Orðrétt segir í frétt Umhverfisstofnunar:
„Í tillögunni er tekið fullt tillit til þeirra
gagna sem fram komu við mat á umhverfis-
áhrifum en einnig unnið nokkuð nánar
nokkra mengunarþætti, til dæmis þung-
málmalosun til lofts.
Umhverfisstofnun benti á við mat á um-
hverfisáhrifum sem fram fór árið 2013 að
loftgæði muni versna umtalsvert við að
setja upp verksmiðju af þessu tagi. Engu að
síður muni þau, ef forsendur standast,
verða innan þeirra marka sem íslenskar
reglugerðir setja og hægt er að draga úr
áhrifunum með mótvægisaðgerðum. Meng-
unarvarnir sem verksmiðjunni er með
starfsleyfinu gert að sinna beinast mjög að
því að takmarka einmitt þessi áhrif.
Ákvæði um lykt voru sett beinlínis
vegna reynslu af annarri sambærilegri
verksmiðju, þ.e. United Silicon hf. (kísil-
verksmiðjan í Helguvík – innskot blaða-
manns) Þá skilaði fyrirtækið minnisblaði
vegna gangsetningarferlis. Þar er m.a.
vakin athygli á að notuð verða forbökuð
skaut í verksmiðjunni, svokölluð grafít-
iseruð skaut. Rekstraraðili álitur að þessi
tækni hafi minnst umhverfisáhrif af þeim
valkostum sem til greina koma til greina
við að breyta raforku í varmaorku í ljós-
bogaofnum.“
Fyrirhugað er að halda opinn kynning-
arfund um tillöguna á auglýsingatíma.
Hann verður haldinn í Norðurþingi.
Frestur til að skila skriflegum athuga-
semdum til Umhverfisstofnunar er til 15.
september næstkomandi.
Vilja leyfa 100 þúsund tonn á ári
Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir PCC Bakka Silicon hf. við Húsavík
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Starfsleyfi Umhverfisstofnun telur að loftgæði á svæðinu muni versna með tilkomu
verksmiðjunnar á Bakka en þó verða innan marka reglugerða.
Eftir vikudvöl á Íslandi létu systurnar Miroslava og
Barbora Doušova frá Tékklandi fara vel um sig í fjöru-
borðinu á Seltjarnarnesi og dýfðu tánum í fótalaugina
Bollastein. Þetta ágæta útilistaverk Ólafar Nordal,
gert úr heilum grágrýtissteini, hefur slegið í gegn og
vakið mikla athygli, ekki síst erlendra ferðamanna.
Morgunblaðið/Hanna
Systur dýfðu tánum í Bollastein
Páley Borgþórsdóttir, lögreglu-
stjóri í Vestmannaeyjum, mun
halda sama skipulagi varðandi veit-
ingu upplýsinga af afbrotum á
Þjóðhátíð og verið hefur síðustu ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
lögreglustjóranum að loknum
reglulegum undirbúningsfundi með
helstu viðbragðsaðilum vegna
Þjóðhátíðar Vestmannaeyja árið
2017. Í tilkynningu lögreglustjór-
ans segir að „meðal þess sem var
kynnt var vinnulag lögreglu við
miðlun upplýsinga. Eins og áður
verða allar upplýsingar um verk-
efni lögreglu veittar um leið og bú-
ið verður að tryggja rannsókn-
arhagsmuni og velferð mögulegra
brotaþola“. Á fundinum voru sam-
ankomnir allir helstu viðbragðs-
aðilar sem koma að verkefnum fyr-
ir Þjóðhátíð. Meðal þeirra sem sátu
fundinn voru fulltrúar frá þjóð-
hátíðarnefnd, lögreglu, slökkviliði,
björgunarsveit, gæslu, heilbrigðis-
stofnun, sjúkraflutningum, sál-
gæsluteymi, flugvelli, Herjólfi,
Vestmannaeyjabæ og sýslumanni.
Ekki náðist í Páleyju við vinnslu
fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir blaðamanns. mhj@mbl.is
Hafa sett vinnulag
um miðlun upplýs-
inga á Þjóðhátíð
Kristín Linda Árnadóttir, for-
stjóri Umhverfisstofnunar,
segir það hafa verið flókið
og mikið verk að vinna til-
löguna að starfsleyfi fyrir
PCC á Bakka og hafi tekið
marga mánuði. Mikil gagna-
krafa sé gerð á fyrirtæki
eins og PCC Bakki Silicon
hf.
Kristín Linda sagði í
samtali við Morgun-
blaðið í gær að það
þyrfti að vakta fyr-
irtækið í 12 mánuði
áður en það hæfi
rekstur, svo hægt
væri að kortleggja
öll grunngildin,
því það væru
ýmsir utan-
komandi
þættir sem gætu skekkt
mælingar, s.s. sandryk
vegna foks á hálendinu.
„Þeir fyrir norðan munu
ekki nota nákvæmlega
sömu framleiðslutækni og í
verksmiðjunni í Helguvík.
Við setjum auðvitað strang-
ar kröfur og það er okkar að
fylgja því eftir að þær
verði uppfylltar.
Samkvæmt fyr-
irliggjandi
gögnum á
þetta fyr-
irtæki að
geta búið í
sátt við ná-
granna,“
sagði
Kristín
Linda.
Stofnunin setur strangar kröfur
og fylgir þeim síðan eftir
FORSTJÓRI UMHVERFISSTOFNUNAR
Kristín Linda
Árnadóttir